Fjarðarpósturinn - 04.04.2007, Síða 8
HRAFNISTA
SUMARSTÖRF
Hægt er að sækja um á www.hrafnista.is
Nánari upplýsingar gefa:
Viltu vinna með okkur?
Við bjóðum sveigjanlegan vinnutíma og aðlögun að þínum þörfum.
Starfshlutfall samkomulag.
8 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 4. apríl 2007
Hópbílar með
hönd á
Kynnisferðum
Reynimelur ehf., eignar -
haldsfélag í eigu fjárfesta undir
forystu SBA-Norðurleiðar hf.
og Hópbíla hf. hefur eignast
allt hlutafé í Kynnisferðum
sem m.a. sér um Flugrútuna.
Með þessu hefur FL Group
lok ið sölu á öllum dóttur fyrir -
tækjum sínum sem tengdust
gamla ferðaþjónustuhluta
Flug leiða eins og hann var, áð -
ur en fyrirtækið fékk nafnið FL
Group.
Reynimelur ehf. komst síðast
í hafnfirskar fréttir er fyrir -
tækið óskaði eftir vilyrði fyrir
lóð undir 80-120 m² sjálfs -
afgreiðsluhóteli á Völlum en
ekkert varð síðan af byggingu
hótelsins.
Sjávarútvegsdeild Fjöl smiðj -
unnar, sem er verkþjálfunarsetur
ungmenna á aldrinum 16-24 ára,
gerði í fyrra samkomulag við
hafnfirska fyrirtækið Nýsi um
rekstur deildarinnar. Keypt var
150 tonna skip, sem nú ber heitið
Fagriklettur HF-123. Skipið er
til búið til netaveiða en enn vant -
ar nokkurt fjármagn til þess að
koma því úr höfn.
Mörg fyrirtæki hafa sýnt áhuga
á að gerast styrktar- eða stuðn -
ingsaðilar sjávarútvegsdeildar
Fjöl smiðjunnar. Þetta kom skýrt
fram á fundi deildarinnar fyrr í
vikunni, þar sem starfsemi henn -
ar var kynnt fyrir fulltrúum fyrir -
tækja sem leitað hafði verið til.
35-40 milljónir kr. vantar
Þorbjörn Jensson, for stöðu -
maður Fjölsmiðjunnar, áætlar að
35-40 millj. kr. vanti til þess að
hægt sé að hefja útgerðina.
„Áhöfnin er klár í slaginn og nú
vantar aðeins herslumuninn til
þess að þessi draumur verði að
veruleika. Markmiðið er að nem -
ar Fjölsmiðjunnar geti síðan
verið gjaldgengir skipverjar og
svar að kallinu þegar vanan há -
seta vantar á bát,“ segir Þorbjörn.
Eitt af markmiðunum með
starf semi deildarinnar er að gefa
ung mennum sem vilja starfa í
sjávarútvegi færi á verklegri
þjálfun og réttindanámi í sam -
vinnu við Fjöltækniskólann.
Skjólstæðingar Fjölsmiðjunnar
eru ungt fólk, sem hefur af
einhverjum ástæðum flosnað
upp úr námi eða vinnu. Að
jafnaði eru ungmennin 6-8 mán -
uði undir handarjaðri Fjöl -
smiðjunnar. Um 270 ungmenni
hafa notið leiðsagnar á þeim sex
árum sem Fjölsmiðjan hefur
verið starfrækt og um 80% þeirra
hafa ýmist sest á skólabekk að
nýju eða stunda nú reglubundna
atvinnu.
Fagriklettur gerður út fyrir
16-24 ára ungmenni
Fjölsmiðjan og Nýsir keyptu, Fagraklett, HF-123, 150 tonna skip
Þorbjörn Jensson, forstöðu -
maður Fjölsmiðjunnar, kynnir
starfsemi hennar á fundi. Stein -
unn Guðnadóttir, í stjórn Fjöl -
smiðjunnar og Stefán Þórarins -
son stjórnarformaður Nýsis.