Fjarðarpósturinn - 14.12.2006, Blaðsíða 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 14. desember 20068 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. desember 2006
Kór Flensborgarskólans heldur
hátíðartónleika sína í hinum nýja
og glæsilega sal Flensborgar-
skólans, Hamarssal á laugar-
daginn kl. 16.
Gestir tónleikanna verða þau
Páll Óskar og Monika en stjórn-
andi kórsins er sem fyrr Hrafn-
hildur Blomsterberg.
Flutt verður hátíðardagskrá er
hittir beint í hjartastað, gömul og
ný jóla- og aðventulög í vönd-
uðum flutningi áttatíu manna
ungmennakórs og tvíeykisins
Páls Óskars og hörpuleikarans
Moniku.
Boðið verður upp á frítt kaffi
og meðlæti í hléi. Forsala miða
er hafin í Súfistanum og hjá kór-
félögum.
Vinakvöld á aðventu
Kórs Flensborgarskólans og Páll Óskar og Monika
Hvaleyrarbraut hefur verið
lokuð vegna endurnýjunar lagna
í götunni frá því 4. október og
hafa fjölmargir íbúar haft
samband við Fjarðarpóstinn og
lýst óánægju sinni með seina-
gang framkvæmda og skort á
upplýsingum en lokunin var
hvergi auglýst og merkingar við-
vaningslegar.
Lesandi sem hafði samband
sagðist hafa hringt í Hafnar-
fjarðarbæ og þá hafi átt að opna
eftir þrjár vikur. Þær þrjár vikur
séu löngu- löngu liðnar.
Að sögn Ishmaels Davids á
umhverfis- og tæknisviði Hafn-
arfjarðarbæjar er stefnt að því að
verkinu verði lokið fyrir jól en
segir að veður geti þó haft áhrif á
framgang verksins. „Ef veður
hamlar malbikun fyrir jól mun
gatan verða opnuð,“ segir Ismael
í svari við fyrirspurn Fjarðar-
póstsins.
Hvaleyararbrautin er nú lokuð
við Holtabraut/Hólabraut og öll
umferð sem áður fór um götuna
er nú beint á Suðurbrautina.
Ekki hafa enn borist svör frá
Hafnarfjarðarbæ hvers vegna
verkið tekur svo langan tíma sem
raun ber vitni þó heyrst hafi að
lagnir hafi leynst í götunni sem
ekki komu fram á teikningum án
þess að sú frétt hafi fengist
staðfest.
Fjölmörg fyrirtæki eru á
svæðinu og eykur þetta mjög
umferð þungra bifreiða um Suð-
urbrautina, m.a. fram hjá leik-
skólanum Smáralundi.
Hvaleyrarbraut lokuð
frá byrjun október
Óánægja íbúa með seinagang
Mozart-tónleikar Camerarctica
hafa verið fastur liður í aðventu-
hátíðinni í yfir áratug og þykir
mörgum ómissandi að fá að
setjast inn í kyrrðina og kerta-
ljósin á síðustu dögum hennar og
heyra kammerkórinn Camer-
arctica leika ljúfa tónlist í Hafn-
arfjarðarkirkju.
Á þessu ári hefur verið haldið
upp á að 250 ár eru liðin frá fæð-
ingu Wolfgangs Amadeusar
Mozart. Af því tilefni leikur
Camerarctica á upprunahljóð-
færi eins og þau sem tíðkuðust á
klassíska tímanum, hljóðfæri
sem bera með sér andblæ liðinna
alda, þegar lífið var rólegra og
hljóðlátara.
Tónleikarnir eru klukkustund-
arlangir og verða Hafnarfjarðar-
kirkju miðvikudaginn 20. des-
ember klukkan 21.
Camerarctica skipa þau Hall-
fríður Ólafsdóttir, flautuleikari,
Ármann Helgason, klarinettuleik-
ari, Hildigunnur Halldórsdóttir,
fiðluleikari, Svava Bernharðs-
dóttir, lágfiðluleikari og Sigurður
Halldórsson, sellóleikari.
Aðgöngumiðar eru seldir við
innganginn, nemendur og eldri
borgarar fá afslátt og ókeypis er
fyrir börn.
Mozart við kertaljós
Tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju á miðvikudagskvöld
... menningarpóstur
Hafn f i rð inga f rá 1983
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Gamlar myndir úr bæjarlífinu
Áslaug Gunnarsdóttir sendi
blaðinu þessa mynd en hún er
ein margra úr safni föðurs hennar
heitins, Gunnar Bjarnasonar,
trésmíðameistara. Myndirnar eru
úr skátasafni hans og er myndin
að ofan sennilega frá Sumar-
deginum fyrsta um miðja síðustu
öld.
Gaman væri ef einhver lesandi
gæti tímasett myndina nánar
myndin sýnir Hafnarfjarðar-
kirkju til hægri og þar fyrir aftan
sést í gömlu Dvergshúsin við
Lækinn, þá Einarsbúð og Skál-
ann svo einhver hús séu nefnd.
Verslum í Hafnarfirði!
. . . það e r svo s tu t t að fa ra!