Fjarðarpósturinn - 05.02.2009, Qupperneq 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 5. febrúar 2009
MÁLÞING UM RAFRÆNT EINELTI
SAFT vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun
barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum, hefur á síðustu
árum staðið fyrir viðburðum á alþjóðlega netöryggisdaginn.
Í ár standa Síminn, Microsoft, menntamálaráðuneytið, Lýð -
heilsustöð, Heimili og skóli og SAFT sameiginlega að málþingi
um rafrænt einelti þennan dag.
Málþing verður haldið þriðjudaginn
10. febrúar í Skriðu, Háskóla Íslands,
við Stakkahlíð, kl. 14.30 - 16.15.
Á þinginu verður fjallað um ýmsar tegundir og birtingar form
rafræns eineltis, sagt frá nýjum rannsóknum á rafrænu einelti
og fjallað um tæknilegt umhverfi tölvu notkunar og netsins.
Einnig munu einstaklingar lýsa reynslu sinni af rafrænu einelti
og sálfræðingur fjalla um sál – og félagsfræðilegar hliðar
eineltis. Í lok málþingsins verða umræður og veitingar.
Málþingið er öllum opið – fundarstjóri Þorlákur Helgason
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á saft@saft.is
Sérstök athygli er vakin á því að málþingið verður einnig sent út á
vefnum, vefslóð fyrir netútsendingu er http://sjonvarp.khi.is/
Það hefur verið aumkunarvert
að fylgjast með tilraunum
Haraldar Þórs Ólasonar, oddvita
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
til að rökstyðja og réttlæta af
hverju flokkur hans tók ekki
þátt í vinnu við gerð fjárhags -
áætlunar fyrir þetta ár. Hann
hefur ekki heldur tekið þátt í
öðru starfi samráðshóps bæjar -
ráðs, sem hefur það verkefni að
leita leiða til að draga úr
neikvæðum áhrifum efnahags -
þrenginganna á íbúa í Hafnar -
firði.
Haraldur Þór skrifaði grein í
síð asta Fjarðarpósti, þar sem
hann reynir að réttlæta gjörðir
sín ar. Við ætlum ekki að elta ólar
við einstök efnisatriði í grein
Haraldar. Það er heldur ekki víst,
að við sem þetta skrifum, séum
sammála um það allt. Hitt erum
við aftur á móti sammála um, að
afar ósmekklega og ómaklega er
vegið að bæjar stjóra, Lúðvík
Geirs syni í grein Haraldar. Þar
seg ir hann: „Skyldi það vera að
Lúðvík sé einfaldlega ekki gefinn
sá eiginleiki að hvetja fólk til
sam starfs?“ Hér er heldur betur
verið að snúa hlutunum á hvolf.
Þeir eru vandfundnir sem eru
lipurri í samstarfi en Lúðvík
bæjarstjóri. Það vita allir sem með
honum starfa, hvort sem þeir eru
samherjar í pólitík eða ekki.
Nema þá oddviti Sjálfstæðis -
flokks ins. Það er raunar
sérstakt að hann skuli tala með
þessum hætti um hæfileika til
að laða fólk til samstarfs,
miðað við hve marga kjósendur
honum tókst að laða til
samstarfs við Sjálfstæðis flokk -
inn í síðustu kosningum.
Sjálfur notaði Haraldur orðið
veru leikafirringu í fyrirsögn í
grein inni um samstarfsvilja
bæj ar stjóra. Spurning hvort
það á ekki vel við innihaldið í
um ræddri grein.
Dæmir sig sjálft
Flótti Haraldar undan eigin
afstöðu og ábyrgðarleysi dæm ir
sig sjálfur. Með fram komu sinni
hefur Sjálfstæðis flokk urinn dæmt
sig úr leik í um fjöll un um afleið -
ingar hruns hag kerfis ný frjáls -
hyggjunnar. Bæjar full trúar Sam -
fylkingar innar og Vinstri grænna
töldu einfald lega – eins og
sveitar stjórnar menn í öllum
flokkum um allt land – að það
væri skyn samlegt að fara sam -
eiginlega í þessa vinnu. Það að
Sjálf stæðis menn skyldu kjósa að
taka ekki þátt í henni lýsir engu
öðru en þeirra eigin viðhorfum.
Guðmundur Rúnar er bæjar -
full trúi Samfylkingar og for -
maður bæjarráðs.
Jón Páll er bæjarfulltrúi VG
og áheyrnarfulltrúi í
bæjarráði.
Á harðahlaupum undan sjálfum sér
Guðmundur
Rúnar Árnason
Jón Páll
Hallgrímsson
Deildakeppni Badminton sam -
bands Íslands var haldin í
Reykjavík um helgina. Fjögur lið
frá Badmintonfélagi Hafnar -
fjarðar tóku þátt í keppninni.
BH naglar, sem að mestu er
skipað eldri spilurum, kepptu í
B-deild og gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu með glæsibrag. Naglarn -
ir voru því krýndir Íslands meist -
arar í B-deild og voru stolt
félags ins í keppninni þetta árið.
Í A-deild voru tvö lið frá BH.
BH gamlir sem urðu í 3. sæti og
BH ungir sem urðu í 5. sæti.
Mikil barátta var í báðum liðum
og stóð unga fólkið sig sér -
staklega vel, stal óvæntum sigr -
um öðru hvoru.
BH keppti í sameiginlegu liði
með ÍA í Meistaradeildinni. BH-
ÍA liðið endaði í fjórða og síðasta
sæti í deildinni en stóð sig engu
að síður vel. Margir leikir voru
spilaðir gegn sterkum and -
stæðingum og létu sigur ekki af
hendi áreynslulaust auk þess sem
nokkrir leikir unnust.
BH naglar Íslandsmeistarar
BH naglarnir sem urðu Íslandsmeistarar í B-deild í badminton.
Dansað í Hraunseli
föstudaginn 6. febrúar
Ingólfur Steinsson og
Stefán Jökulsson
leika fyrir dansi.
Dansað er í Hraunseli, Flatahrauni 3,
kl. 20.30 - 24.
Mikið fjör og mikið gaman.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Húsið opnað kl. 20
Upplýsingar á www.febh.is og í síma 555 0142
DEIGLAN
ATVINNU- OG
ÞRÓUNARSETUR
Hafnarfjarðarbær óskar eftir hugmyndaríkum
sjálf boðaliðum til að koma að uppbyggingu Deigl -
unnar sem er atvinnu- og þróunarsetur Hafnar -
fjarðarbæjar. Deiglan mun taka til starfa í febrúar
og verður þar vettvangur fyrir þá sem misst hafa
vinnuna eða hafa á einhvern hátt fundið fyrir
þrengingum á atvinnumarkaði.
Í Deiglunni er ætlunin að byggja upp starfsemi fyrir
íbúa Hafnarfjarðarbæjar sem leita nýrra tækifæra í
atvinnu eða námi þar sem boðið verður upp á
fjölbreytt námskeið, fræðslu og ráðgjöf. Þar verð -
ur jafnframt hægt að huga að atvinnusköpun,
tómstundum, menningarstarfsemi og líkamsrækt í
samstarfi við fjölmarga aðila.
Allir sem vilja leggja hönd á plóginn og búa yfir
góðum hugmyndum sem nýtast myndu við
uppbyggingu setursins eru hvattir til að hafa
samband við Brynhildi Barðadóttur, verkefnisstjóra
Deiglunnar í síma 664 5526 eða á netfangið
brynhildur@hafnarfjordur.is
Deiglan verður til húsa í Menntasetrinu við
Lækinn, gamla Lækjarskóla.
Aðalfundur
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka
verður haldinn þriðjudaginn 17. febrúar kl. 18
á Ásvöllum.
Fundarefni samkvæmt lögum félagsins.
Aðalstjórn Hauka
Lögbann á
deilisíðu staðfest
Héraðsdómur Reykjaness
hefur staðfest lögbann sem sett
var á deili síð una torrent.is sem
gerði fólki kleift að hlaða niður
ýmsu efni sem ekki var alltaf
heimild fyrir. STEF, Samband
tónskálda og eigenda flutn -
ings réttar fékk lögbannið sett
19. nóvember 2007.
Aug l ý s i n g í F j a r ð a r p ó s t i n um bo rg a r s i g !
Auglýsingasími: 565 3066
Óbreytt verðskrá frá nóvember 2001