Fjarðarpósturinn - 05.02.2009, Qupperneq 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 5. febrúar 2009
Komdu á æfingu!
www.haukar.is
Hafnar -
fjarðar -
slagur í
kvöld
Haukar - FH kl. 19.30
Þeir hljóta að vera æstir í
sigur Haukastrákarnir í
handboltanum en FH-ingarnir
sem komu upp úr 1. deild sl. ár
hafa sigrað í báðum leikjum
liðanna í vetur. FH-ingar sem
hafa komið á óvart í vetur hafa
eflst með hverjum leiknum og
léku stórvel í síðasta leik á
móti Stjörnunni þrátt fyrir að
vera án lykilmannana Arons
Kristjánssonar og Ólafs Guð -
munds sonar en óvíst er með
þátttöku þeirra í leiknum í
kvöld.
Haukar hafa verið í mikilli
siglingu og hreinlega niður -
lögðu topplið Fram í síðasta
leik og mæta FH-ingum með
sitt sterkasta lið.
Opið hús verður að Ásvöll -
um frá kl. 18.30 en þá leika 7.
flokkar FH og Hauka, tónlist
verður leikin og boðið upp á
andlitsmálningu. Umgjörðin
verður að venju glæsileg að
Ásvöllum og von á fullu húsi.
Frítt er fyrir 15 ára og yngri.
Einvígi
Vals og
FH
FH sækir Val heim á sunnu -
daginn kl. 16 í undanúrslitum
bikarkeppni karla í handbolta
en FH sló Hauka út í miklum
baráttuleik í Kaplakrika.
Telja sumir að leikurinn sé
hreinn úrslitaleikur þar sem
tvö lið úr 1. deild leika í hinum
undanúrslitaleiknum, Selfoss
og Grótta. Skyldi þó enginn
vanmeta 1. deildarlið í bikar -
keppni.
Búist er við hörkuleik en
Val ur er stigi á undan FH, í 2.
sæti í úrvalsdeildinni. FH-
ingar reikna með að geta teflt
fram sínu sterkasta liði.
w w w . f j o r u k r a i n . i s - P ö n t u n a r s í m i 5 6 5 1 2 1 3
Rammíslenskt þorrablót
að hætti Fjörugoðans
með þjóðlegum söng víkinga og valkyrja yfir borðhaldi
Hljómsveitin Papar
leikur föstudaga og laugardaga allan þorrann
Kjötréttir
Súrmatur
Sjávarfang
Meðlæti
Eftiréttur
Hangikjöt
Lundabaggar
Harðfiskur
Uppstúf
og kartöflur
Skyr
Svið
Lifrarpylsa
Hákarl
Rauðrófur
Sviðasulta
Blóðmör
tvær tegundir af síld
Rófustappa
Saltkjöt
Hrútspungar
Sýrt hvalkjöt
Grænar baunir
Svínasulta
Bringukollar
Reykt þorskhrogn
Hverabrauð
Sviðasulta
Flatkökur
og smjör
Pottréttur
Skoðið
tilboðspakkana
okkar á vefsíðunni
www.fjorukrain.is
1. Þorrapakki:
Þorrahlaðborð kr. 6.400 á mann
m/fordrykk og einn bjór með mat
2. Árshátíðarpakki
3. Sælkerapakki
4. Fyrirtækjapakkinn
Hvunndagsmatseðill öll kvöld
virka daga, tveggja rétta,
á kr. 1.500.
Sérstakur helgartilboðs-
matseðill, þriggja rétta,
á kr 4.200.
Hart var deilt á 7 klukkustunda
löngum bæjarstjórnarfundi á
þriðjudag. Töluverður tími fór í
umræður um tillögur um stjórn -
skipulagsbreytingar þar sem
sjálf stæðis menn vilja m.a. sam -
eina ráð og leggja niður mið -
bæjar nefnd. Telja þeir að ein -
falda megi stjórnsýsluna og voru
bæjarfulltrúar alls ekki á einu
máli.
Þá var hart deilt um formsatrið
við tillögu sjálfstæðismanna
vildu að bæjarstjórn samþykkti
tillögu um að lækka verð á
skólamáltíðum í 210 kr. og að
mánaðarverð verði aldrei hærra
en 4500 kr. auk þess að veita
systkinaafslátt. Í tillögunni var
gert ráð fyrir að fræðsluráð
útfærði tillöguna og kæmi í
framkvæmd. Þessu mótmælti
samfylkingarfulltrúarnir og töldu
að vísa ætti tillögunni til
fræðsluráðs og töldu ekki eðli -
legt að afgreiða hana án umræðu
í fræðsluráði. Um þessa af -
greiðslu var rifist í á annan tíma.
Velferðarsjóður
Í fjárhagsáætlun er gert ráð
fyrir 0,25% hækkun á útsvari
sem á að skila átti 148 millj. kr. á
móti lækkunum vegna lækkunar
útsvarsstofns. Við fjárhagsá ætl -
unar gerðina kom hins vegar í
ljós að lækkunin nam 63 millj.
kr. og var þá aukin þátttaka í
kostnaði við heilsurækt starfs -
manna í 6,6 millj. kr. og
stofnaður velferðarsjóður með
78 millj. kr. í. Sjálfstæðismenn
deila á að engin skipulagsskrá er
til fyrir þennan sjóð né að sérstök
samþykkt hafi verið gerð um
stofnun hans. Þá vanti alla stefnu
um það hvernig eigi að nýta hann
og hvort hann eigi að nýtast sem
einhver bjargráðasjóður heimil -
anna.
Tillögunni var vísað frá en
tillögu Samfylkingar og VG um ,
í rauninni sama efni, var vísað til
fræðsluráðs.
Stjórnskipulag
Tillögu Sjálfstæðismanna um
að leita ráða til að einfalda og
spara í stjórnsýslu bæjarins hafði
verið vísað úr bæjarráði til
bæjar stjórnar og var svo aftur
vísað til bæjarráðs. Telja sjálf -
stæðis menn að rétt sé að hefja
sparnaðinn í stjórnkerfinu en
meirhluti bæjarstjórnar taldi ekki
hægt að hlaupa til í slíkar
aðgerðir þó skoða mætti einstaka
þætti.
Hart deilt í bæjarstjórn
Deilt um velferðarsjóð, skólamáltíðir og stjórnskipulag