Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 07.05.2009, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 07.05.2009, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 7. maí 2009 Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is Hemlar Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Sveitarfélagið Álftanes og Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafa tekið höndum saman um rekstur á nýju frumkvöðlasetri sem fengið hefur nafnið Kvik - an. Kvikan mun opna þann 15. maí að Strandgötu 11 hér í bæ en henni er ætlað að veita ein - staklingum aðstöðu, tengslanet og stuðning til að stofna fyrir - tæki undir faglegri handleiðslu sérfræð inga Impru á Nýsköp - unarmiðstöð. Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun sjá um rekstur Kvikunnar fyrir sveitarfélögin þrjú sam - kvæmt samningi sem Lúðvík Geirs son bæjarstjóri í Hafna - rfirði, Gunnar Einarsson bæjar - stjóri í Garðabæ, Sigurður Magnús son bæjarstjóri á Álfta - nesi og Þorsteinn Ingi Sigfús - son forstjóri Nýsköpunar mið - stöðvar undirrituðu sl. fimmtu - dag í Bugalowinu. Í Kvikunni munu 10-15 ein - staklingar fá aðstöðu til að vinna að viðskiptahugmyndum undir faglegri handleiðslu sér - fræðinga Impru á Nýsköpunar - miðstöð. Þeir fá: • Skrifstofuaðstöðu • Aðgang að fundar her bergj - um • Faglega handleiðslu sérfræð inga Nýsköpunar - miðstöðvar Íslands • Skapandi umhverfi og öflugt tengslanet einstaklinga og fyrirtækja Kvikan er fjórða frumkvöðla - setrið á hálfu ári sem Nýsköp - unar miðstöð opnar á höfuð - borgar svæðinu og hefur starf - semi þeirra haft mikið að segja fyrir þá 60 einstaklinga sem þar hafa aðstöðu. Nánari upplýsingar má fá á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, www.nmi.is. Nýtt frumkvöðlasetur í Hafnarfirði Kvikan verður starfrækt að Strandgötu 11 Bæjarstjórarnir og Þorsteinn Ingi undirrita samninginnL jó s m .: G u ð n i G ís la s o n Hinn heimskunni kvik mynda - leikstjóri David Lynch boðaði til blaðamannafundar í ráðhúsi Reykjavíkur laugardag inn 2. maí en hann var staddur hér á landi til að kynna inn hverfa íhugun. David kvaðst hafa lært íhugunina í Kaliforníu fyrir 36 árum þegar Maharishi Mahesh yogi lagði á sig ferða lög um allan heim til að kenna þessa fornu andlegu tækni. Hing að til lands kom Lynch í boði vinar síns, Sigurjóns Sig hvatssonar kvikmynda fram leið anda, en með honum í ferð var fulltrúi Alþjóða íhugunar hreyf ingar - innar, raja Tom Stan ley. David Lynch einskorðaði mál sitt við Innhverfa íhugun þótt eflaust hefðu margir viðstaddra vænt þess að hann talaði um kvikmyndagerð sem hann hefur orðið frægastur fyrir. Lynch er þeirrar skoðunar að skilvirkasta leiðin til að komast upp úr þeim djúpa dal sem íslenskt þjóðlíf er í um þessar mundir sé þessi and lega tækni, Innhverf íhug - un. Sjálfur sagðist David vera fyrst og fremst listamaður. List af hvaða tagi sem er sækir tján - ing ar kraft sinn djúpt í hug lista - mannsins þótt hún á hinn bóg - inn sé alltaf spegill þess ytra umhverfis sem listamaðurinn lifir og hrærist í. David Lynch sagði að íhugunin hefði í ára - tugi veitt sér aukinn aðgang að þeim hugarfylgsnum sem hann sækir innblástur sinn til. Á sama hátt taldi hann að einmitt þessi andlega tækni, Innhverf íhugun, TM, gæti með sam - einuðu átaki nokkur hundruð íhugenda, helst sem flestra, leyst úr læðingi þann sköp unar - kraft sem íslenska þjóðin þarf að efla, sérstaklega nú á kreppu tímum í þjóðlífinu. Aðspurður hvort hér væri ekki bara um hefðbundinn lodd ara skap einhvers sértrúar - hóps að ræða svaraði hann því til að Innhverf íhugun kæmi hvorki trú eða kukli við. Inn - hverf íhugun, TM væri hlutlaus andleg tækni sem virkaði eins á alla venjulega mannlega hugi og um það lægju fyrir hundruð vísindalegra rannsókna sem allar bentu í sömu átt: Til góðs fyrir líkamlegt og andlegt at - gerfi þeirra sem íhugunina stunda. S.A. Hlutlaus andleg tækni til gagns? Sigurjón Sighvatsson, David Lynch, raja Tom Stanley, Ari Halldórsson. Vortónleikar Bæjarstjóri boðar nú til hverfa funda í sjötta sinn en á undanförnum árum hafa bæjar - búar sótt þessa fundi og komið þar gagn legum ábend ing um á framfæri. Á fundunum kynnir bæjarstjóri stöðuna í dag og framtíðarhugmyndir sem snerta íbúa viðkomandi hverfis. Umræðuefnin á fundunum hafa verið fjölbreytt enda margt sem brennur á íbúum bæjarins sem hafa tekið því fagnandi að hafa beinan aðgang að bæjar - stjóra með þessum hætti Steinunn Þorsteinsdóttir upp - lýs ingafulltrúi bæjarins segir fundina mjög gagnlega enda séu þeir góður vettvangur fyrir bæjarbúa til að fylgjast með því sem er á döfinni hjá bænum og ekki síður gott tækifæri til að koma ábendingum beint til bæjarstjóra. Öllum ábending - um er komið í farveg hjá þeim embættismönnum sem hafa með viðkomandi málaflokk að gera og er þeim fylgt eftir af bæjarstjóra. Vill hún hvetja bæjarbúa til að mæta á fundina í sínu hverfi. Allir fundirnir hefjast kl. 20 og boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Mánudag 11. maí kl. 20 í Álfafelli, íþróttah. Strandg. Setberg – Hraun – Suðurbær - Miðbær Þriðjudag 12. maí kl. 20 í íþróttamiðst. Ásvöllum Hvaleyraholt – Vellir – Ásland Miðvikudag 13. maí kl. 20 í skátaheimilinu Hraunbyrgi Norðurbær – Vesturbær Kíktu á fund í þínu hverfi ! Bæjarstórinn í beinni með bæjarbúum Þrír hverfafundir með bæjarstjóra, 11., 12., og 13. maí Gaflarakórinn og Garðakórinn úr Garðabæ syngja miðvikudaginn 13. maí kl. 17 í Víðistaðakirkju Stjórnendur eru Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir og Jóhann Baldvinsson Harmónikkuleikari: Þórður Marteinsson Meðleikari: Arngerður María Árnadóttir Allir velkomnir 1. maí gangan Fengu sól á rigningardegi Veðurguðirnir voru með göngu mönnum í kröfugöngu á 1. maí í Hafnarfirði sem fór friðsamlega fram að vanda. Álíka fjöldi var í göngunni og fyrri ár, jafnvel færri en troðfullt var í Hraunseli á baráttu- og kaffifundi þar sem Karl Rúnar Þórsson og Halldór Grönvold héldu ræður. L jó s m .: G u ð n i G ís la s o n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.