Fjarðarpósturinn - 07.05.2009, Blaðsíða 6
Að venju hefst ferm -
ingar starfið um miðjan
ágúst þó skráning fari
fram við poppmessu að
kvöldi sunnudagins 17.
maí nk.. Ferm ing ar börn
velja hvort þau verða í
sumar hópi eða haust hópi,
Sumar hóp ur inn mun fara
í þriggja daga fermingar -
námskeið í Vatnaskóg í
ágúst mán uði áður en
skólar byrja á ný.
Börnum úr Setbergs- og
Öldutúnsskóla býðst að
fara í Vatnaskóg mánu -
daginn 17. ágúst - mið -
viku dags 19. ágúst. Börn -
um úr Hvaleyrar- og
Lækjar skóla býðst að fara
í Vatnaskóg miðviku dag -
inn 19. ágúst - föstu dags -
ins 21. ágúst. Prestar
Hafn ar fjarðarkirkju hafa
um sjón með ferðunum
ásamt Skógarmönnnum
KFUM og KFUK.
Engin reglubundin
kennsla verður síðan fyrir
sumar hópinn fyrr en um
miðj an október. Ferm -
ingar börn í þeim hópi
munu þó áður gera lauf á
Lífsins tré á verkstæði
Alicar sem er á horni
Lækj ar götu og Brekku -
götu. Jafnframt eru þau
hvött til að taka þátt í
helgihaldi kirkjunnar með
sínu fólki og einnig í
æsku lýðsstarfi hennar.
Haust hópurinn mun
sækja fermingarfræðslu í
safnaðarheimilinu frá
byrj un september annað
hvert þriðjudagskvöld og
einnig vinna að gerð Lífs -
ins trés. Þeim hópi býðst
að fara í Vatnaskóg í
septem ber mánuði í hálf -
an annan sólahring. For -
eldrum/ forráða mönn um
fermingarbarnanna verð -
ur boðið til fundar með
prestum kirkjunnar um
fermingarstarfið í lok
september.
Ferm ingarstarfið hefst
form lega með fjölskyldu -
hátíð fermingarbarnanna
og fjölskyldna þeirra
sunnu daginn 23. ágúst.
Ef fermingarbörn hafa
misst af skráningunni 17.
maí geta þau skráð sig
með því að senda skrán -
ingar upplýsingar á
thorhallur33@gmail.com
eða með því að hringja í
sr. Þórhall Heimisson í
síma 891 7562 sem veitir
frekari upplýsingar um
fermingarstarfið.
6 www.hafnarfjardarkirkja.is Fimmtudagur 7. maí 2009
w
w
w
.H
af
na
rf
ja
rd
ar
ki
rk
ja
.is
Hafnarfjarðarkirkja:
sími 555 4166.
Sóknarnefnd:
Aðalmenn:
Sigurjón Pétursson,
formaður
Jónína Steingrímsdóttir,
varaformaður
Gunnlaugur Sveinsson,
gjaldkeri
Björg Jóhannesdóttir, ritari
Guðbjörg Edda Eggerts -
dóttir, Margrét Guðmunds -
dóttir og Magnús
Sigurðsson.
Staðarhaldari:
Ottó Ragnar Jónsson.
Listakonan Alice Olav -
ie Clarke vinnur nú að
gerð mosaíklistaverks í
fremra anddyri Strand -
bergs sem vekur mikla at -
hygli og hrifningu. Það
sýnir keltneskan kross
sem Lífsins tré.
Sóknarnefnd Hafnar -
fjarðar kirkju samþykkti
að verkið yrði unnið eftir
tillögum Alicar og hafa
fermingarbörn vorsins
unnið með henni að gerð
þess. Þau gera hvert um
sig eitt lauf sem eru mis -
munandi að lit og formi
og tákna þau sjálf á lífs -
meiði frelsarans. Alice
fylgir grunn hug mynd um
sr. Gunnþórs Inga sonar
að slíkum krossi og
útfærir þær af miklu
listfengi.
Fermingarbörn tveggja
næstu ára munu halda
verk inu áfram svo að
lauf króna trésins kemur
til með að verða lit skrúð -
ug, stór og mikil.
Lífsins tré í keltneskum krossi
Í júlímánuði verður boðið upp á sumarkvöldvökur
á fimmtudagskvöldum í Strandbergi. Þær hefjast kl.
20.30 og verða í umsjá sr. Þórhalls Heimissonar:
Sumarkvöldvökur
2. júlí Umfjöllunarefnið: Englar og djöflar
9. júlí: Kristin talnaspeki
16. júlí: 10 leiðir til lífshamingju
23. júlí: Opinberunarbók Jóhannesar.
Barna- og unglingastarf kirkjunar hefur verið mjög
blómlegt í vetur, mæting hefur verið góð og mikið
hefur verið að gerast.
Sunnudagaskólinn hefur eingöngu verið í safnað -
ar heimili Hafnarfjarðarkirkju í vetur. Gekk það fyrir -
komulag vel og hafa allir skemmt sér vel saman.
Þáttakendur syngja, heyra sögur, fá brúður í heim -
sókn og fara í leiki. Hefðbundinn sunnu dagaskóli
verður til 17. maí en þá er síðasti dagur sunnudaga -
skól ans á starfsárinu. Þann dag verður fjölskyldu -
messu og veturinn kvaddur með því að grilla pylsur
og borða hádegismat saman.
Starf fyrir sjö til níu ára hefur verið á fimmtu -
dögum en nú er komið sumarfrí og hittast krakkarnir
hress næsta haust.
TTT (tíu til tólf ára) hittast á þriðjudögum kl.
17.15- 18.15 og verður svo út maí. Margt hefur verið
gert í vetur, t.d. var náttfatapartý og farið í keilu.
Fram undan er hin árlega vorferð og svo loka fund -
urinn þar sem eitthvað skemmtilegt og hressandi
verð ur gert en það kemur allt í ljós síðar því þetta er
óvissufundur!
Æskulýðsstarfið verður í boði út maí. Útivera
setur sitt mark á þá fundi sem eftir eru ef veður leyfir.
Hið vinsæla útileikjafjör og sullugangur verður í maí
sem og vorferðin. Á dagskrá undanfarið hefur t.d.
verið „Vaktu með Kristi“, en þá hittust æsku lýðs -
félög af Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu og nutu þess að
vera saman og taka þátt í helgihaldi í Hafnar fjarðar -
kirkju frá kvöldi skírdags fram undir morgunn á
föstudaginn langa. Gekk kvöldið og nóttin mjög vel.
Einnig hefur verið farið í Lazer tag við mjög góðar
undir tektir og verður það endurtekið næsta vetur.
Útskrifuð leiðtogaefni
22. apríl útskrifuðust í Hafnarfjarðarkirkju sjö
leiðtogaefni Æskó úr Farskóla Þjóðkirkjunnar.
Sandra Birna, Sigríður og Alma útskrif uðust af öðru
ári og eru því útskrifaðar úr leið togaskólanum. Af
fyrsta ári útskrifuðust Aldís, Björk, Sif og Sóley. Er
þeim óskað til hamingju og verður þeim tekið
fagnandi í starfinu á næsta vetri.
Nýir félagar velkomnir
Leiðtogar í barna- og æskulýðsstarfi Hafnar -
fjarðar kirkju þakka fyrir sig í vetur og hlakka til að
hitta gamla félaga aftur næsta haust og bjóða nýja
félaga velkomna.
Heyrum sögur,
syngjum og
förum í leiki
Barna- og unglingastarf Hafnarfjarðarkirkju
Alice, l.t.h. ásamt nokkrum fermingarbarnanna.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Fermingarstarf nýrra fermingarbarna
Skráning í poppmessu 17. maí