Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.08.2009, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 27.08.2009, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 27. ágúst 2009 Nú eru skólar byrjaðir og áhugasamir krakkar halda glaðir í bragði í skólann sinn á morgnana. Einhvern veginn hefur tekist svo óhönduglega til við staðsetningu sumra skól - anna að þeir eru staðsettir við safngötu hverf - isins. Auðvitað þýðir þetta aukna hættu og er óþarfi. Mun betur hefur tekist til við stað setn - ingu á nýjasta skólanum, Hraun valla skóla, þó svo gatan framhjá honum hafi verið í upphafi mikið ekin og þar hratt ekið. Við Setbergsskóla er eins og ekki hafi verið gert ráð fyrir bílum. Þar er skólalóðin ógirt og börn að leik alveg út við götu og hlaupa oft út á götuna eftir bolta. Foreldrar og jafnvel starfsmenn skólans leggja bílum sínum upp á gangstéttar og á hverjum morgni er bílum lagt í skemmri eða lengri tíma beint á gönguleið barnanna við skólann. Ekkert virðist vera gert til að bæta ástandið. Gangstéttarkantar eru lágir, tekið úr köntum svo jafnvel má ætla að þar megi leggja en undarlegasta við þetta er að það eru foreldrar sem skapa mestu hættuna, foreldr ar sem standa fremstir í flokki og heimta öryggi fyrir börnin sín. En enginn virðist gera kröfur um úrbætur á öryggismálum á lóðinni. Loksins, loksins, loksins er allt skolp frá bænum nú grófsíað og sent 2 km á haf út. Þetta er stórmerkilegur áfangi þó erfitt sé að hrósa einhverjum fyrir þetta af þeirri einföldu ástæðu að löngu átti að vera búið að þessu. Fjarðarpósturinn var meðal þeirra sem vöktu athygli á að ekki væri farið af stað tímanlega og birti fjölmargar myndir sem sýndi öldurnar grípa skolpið og dreifa því svo yfir næstu hús. En góðum hlut ber að fagna enda er drykkjarvatn og frárennsli forsenda fyrir byggð og því ekki skrýtið að þetta var eitt af fyrstu málum sem nýstofnaður Hafnarfjarðar - kaupstaður tók á dagskrá sína. Guðni Gíslason. Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is Sunnudagur 30. ágúst Messa kl. 11 Prestur: Sr. Þórhallur Heimisson Ræðuefni: „Af ávöxtunum þekkist tréð“ Barbörukór Hafnarfjarðar leiðir söng. Organisti: Bjarni Þór Jónatansson Barn borið til skírnar. Miðvikudagur 2. september Gregorsk messa kl. 08 Prestur: Sr. Þórhallur Heimisson Eyjólfur Eyjólfsson leiðir söng. Morgunverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNARFJARÐAR SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS Frímann Andrésson útfararstjóri hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON útfararstjóri Fríkirkjan Sunnudagur 30. ágúst Guðsþjónusta kl. 17 Upphaf fermingarstarfsins. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra boðin velkomin til starfa. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. Einar Eyjólfsson og Sigríður Kristín Helgadóttir. Allir velkominir í Fríkirkjuna! www.frikirkja.is LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA Viðgerðir og uppsetningar á loftnetum, diskum, heimabíóum, flatskjám. Síma- og tölvulagnir Loftnetstaekni.is sími 894 2460 Sendibílaþjónusta í 25 ár! Benni Ben. • 893 2190 Lífróður í Hafnarborg Á morgun, föstudag kl. 20 verður opnuð ný sýning í Hafnarborg. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina „Lífróður – Föðurland vort hálft er hafið“, eru verk eftir tæplega þrjátíu listamenn sem endurspegla hafið á ýmsan hátt. Verkin á sýningunni birta mynd af hafinu sem náttúrufyrirbæri en túlka einnig mikilvægi þess fyrir sjálfs - mynd þjóðarinnar og afkomu Íslend - inga, verk sem fást við tengsl manns ins við náttúruna og hug leið - ingar listamannanna um félags leg og pólitísk viðfangsefni sem tengjast hafinu. Mörg verkanna eru ný, sum hafa ekki áður verið sýnd hérlendis en flest eru þau frá síðustu tíu árum. Sýningin nýtur stuðnings Hafnar - fjarðarhafnar sem nú fagnar 100 ára afmæli sínu en auk þess standa Þjóð fræðistofa og Kvik mynda safn Íslands að málþingi og kvik mynda - sýningum sem tengjast efni sýnign - ar innar. Sýnendur eru: Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ásmundur Ásmunds - son, Birgir Andrésson, Elías Hjör - leifsson og Ólafur Elíasson, Erla S. Haraldsdóttir, Finnur Arnar Arnarson, Gjörningaklúbburinn, Guðjón Ketils - son, Gylfi Ægisson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Hulda Hákon, Hlynur Hallsson, Ívar Valgarðsson, Kristinn E. Hrafnsson, Kristján Guð - munds son, Margrét H. Blöndal, Magnús Sigurðarson, Libia Castro & Ólafur Ólafsson, Ólafur Sveinn Gíslason, Ósk Vilhjálmsdóttir, Ragnar Kjartansson, Ragna Róbertsdóttir, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson og Unnar Örn Auðarson. Bæjarbíó Þriðjudaginn 1. september kl. 20 sýnir Kvikmyndasafn Íslands ítölsku kvikmyndina Strategia del ragno eða Herkænska köngulóarinnar sem er tilbrigði við smásögu argentíska rith öfundarins Jorge Luis Borges. Þar segir frá eftirgrennslan ungs manns um afdrif föður síns í valdatíð fasista á Ítalíu. Árangur með Herbalife Aukin orka - Betri líðan Gerður Hannesdóttir gsm 865-4052 ghmg@internet.is Pantaðu frían prufupakka! Hvert er tré mánaðarins? Kallað er eftir tilnefningu á tré ágústmánaðar í Hafnarfirði. Sendu ábendingu á almadrofn@hafnarfjordur.is TÖLVUHJÁLPIN Viðgerðir, vírushreinsanir, uppfærslur og uppsetningar á PC tölvum. Kem í heimahús. Sanngjarnt verð Sími 849-6827

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.