Fjarðarpósturinn - 08.10.2009, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. október 2009
Hefðbundinn búskapur hefur
fyrir löngu lagst af á Stór-
Hafnarfjarðarsvæðinu en sk.
hoppýbændur halda uppi
heiðrinum og hafa fé á beit í
beitarhólfum í Krýsuvík. Eftir
gott sumar var fénu smalað í
nýja Krýsuvíkurrétt á laugar -
daginn og bæjarbúar fjöl -
menntu til að fylgjast með í
glampandi sólskini.
Kátt í Krýsuvíkurréttum
Fólk fjölmennti með ferfætlingunum
L
jó
sm
yn
d
ir
:
G
u
ð
n
i G
ís
la
so
n
Bólusetning gegn árlegri inflúensu
Tímapantanir í bólusetningu er
í síma 550 2600 alla virka daga frá kl. 8-16
Ráðlögð er árleg bólusetning
fyrir alla sem eru eldri en 60 ára.
Einnig öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum
hjarta-, lungna- og lifrarsjúkdómu, sykursýki, illkynja
og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið
sér að kostnaðarlausu en greiða komugjald
samkvæmt reglugerð. Aðrir greiða 950 kr. fyrir
bóluefni auk komugjalds. Munið að framvísa
afsláttar- og/eða örorkuskírteini við komu.
Ath.: Þetta er ekki gegn „svínaflensu“.
Sú bólusetning verður kynnt síðar.
Lungnabólgubólusetningar:
Öllum 60 ára og eldri og þeim sem haldnir eru langvinnum
sjúkdómum er boðið upp á lungnabólgubólusetningu.
Bólusett er á 5-10 ára fresti.
Fyrirtæki sem vilja panta bólusetningu fyrir starfsfólk sitt eru beðin
um að senda nafnalista á: lilja.g.gunnarsdottir@solvangur.hg.is
eða faxa nafnalista í 550 2601.
SÓLVANGUR
Heilsugæslan Sólvangi, Sólvangsvegi 2
Haustgleði Foreldrafélags
Engidalsskóla var haldin á lóð
skólans sl. fimmtudag þar sem
foreldrar og börn hittust og
hreins uðu rusl af skólalóð, mál -
uðu parísa á skólavöllinn og
gæddu sér á grilluðum pylsum.
Var þetta með fáum rigningar -
lausum dögum haustsins og var
ekki hægt að sjá annað en börn
og fullorðnir skemmtu sér vel.
Gaf foreldrafélagið skólanum
tvær leikjabækur, 10x10 leikir, í
tilefni dagsins.
Vel heppnuð haustgleði
Unga fólkið hafði sérstaklega gaman af að draga fé í dilka.
Hin árlega haustmessa verður
haldin í Krýsuvíkurkirkju á
sunnudaginn kl. 14. Sætaferð
verður frá Hafnarfjarðarkirkju
kl. 13. Sr. Gunnþór Þ. Ingason,
messar. Eyjólfur Eyjólfsson,
söngvari og þverflautuleikari
og Sveinn Sveinsson leika
saman á þverflautur. Þórður
Marteinsson leikur á harmón -
ikku. Eyjólfur leiðir jafnframt
sálmasöng. Við lok messu
verð ur „Upprisa“, altaristafla
Krýsu víkurkirkju eftir Svein
Björns son tekin ofan og flutt í
Hafnarfjarðarkirkju þar sem
hún hefur vetursetu. Eftir mess -
una er boðið til kirkjukaffis í
Sveinshúsi. Þar stendur yfir
málverkasýningin „Huldufólk
og talandi steinar“. Lesið verð -
ur úr dagabók listamannsins
þar sem hann lýsir tilurð eins
verks á sýningunni.
Messur í Krýsuvíkurkirkju
hafa jafnan verið fjölsóttar.
Haustmessa í Krýsuvíkurkirkju