Fjarðarpósturinn - 19.11.2009, Qupperneq 3
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 19. nóvember 2009
KYNNINGARFUNDUR
Mánudaginn 23. nóvember kl. 17.30 verður
haldinn kynningarfundur á tillögu að breyt -
ingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 9 við
Gunnarssund.
Fundurinn verður haldinn í bæjarráðs -
salnum 2. hæð, Strandgötu 6.
Frestur til að skila athugasemdum er til 7. des -
ember 2009 – hægt er að skoða tillöguna á
www.hafnarfjordur.is
Þeir sem telja sig hafa hagsmuna að gæta eru
hvattir til að mæta á fundinn.
Skipulags- og byggingarsvið
Það er engu líkara en örvænt -
ing sé hjá Samfylkunni í
Hafnarfirði. Lengst af
á valda tíma sínum
hafa þeir deilt og
drottn að en nú þegar
á bjátar reyna þeir að
gera minni hlutann
með ábyrgan fyrir
gerð um sínum og
ákvörð unum.
Lúðvík Geirsson
bæj arstjóri fór þannig
með rangt mál í
Fjarðar póstinum 12.
nóv ember 2009 þegar hann
fullyrðir að undirritaður hafi
samþykkt afsláttarreglur vegna
fasteignagjalda eldri borgara og
öryrkja í Hafnarfirði.
Hið rétta er að frá 2002 þegar
Samfylkingin varð illu heilli
ráðandi í bæjarstjórn Hafnar -
fjarð ar hafa bæjarfulltrúar Sjálf -
stæðisflokkins hvorki greitt
atkvæði með árlegri fjárhags -
áætlun meirihlutans né tillögum
meirihlutans um sveitar sjóðs -
gjöld en afsláttur af fasteigna-
og holræsagjöldum eldri borg -
ara og öryrkja er hluti af þeirri
afgreiðslu.
Hið rétta er, og það veit Lúð -
vík Geirsson vel, að ég hef flutt
tillögur í bæjarstjórn um að allir
eldri borgarar og öryrkjar í
Hafn arfirði njóti fasts afsláttar
og þeir tekjulægstu fái fulla
niðurfellingu. Lúðvík gekk
ávallt fram af fullri hörku um að
fella slíkar tillögur.
Samfylkingin í
Hafnarfirði hefur í
gegnum allt tímabil
góðæris í landinu
hald ið uppi háskatta -
stefnu í bænum og
það stenst enga skoð -
un þegar bæjar stjór -
inn segir reglur um
þetta með svipuðum
hætti og í stærri sveit -
ar félögum landsins.
Þar sem Sjálf stæð -
is flokkurinn er í meirihluta t.d í
Garðabæ, Seltjarnarnesi og í
Mosfellsbæ er bæði hærri tekju -
mörk til niðurfellingar og meiri
sveigj anleiki. Í Kópavogi er
svip að kerfi og í Hafnarfirði en
mun hærri tekjumörk.
Sem dæmi nefni ég að í
Kópavogi eru efri mörk tekna
hjóna til að fá 50% afslátt
4.430.000 kr. en í Hafnarfirði
eru mörkin tæpum sexhundruð
þúsund krónum lægri eða
3.839.000 kr. Þetta kallar Lúð -
vík Geirsson sambærilegt en
fyrir marga þeirra 543 Hafn -
firðinga sem fengu bréf á dög -
unum um niðurfellingu afsláttar
hefði þetta skipt sköpum.
Er ástæða til að treysta Sam -
fylkingunni?
Höfundur er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Hafa skal það sem sannara reynist
Almar
Grímsson
SÍMI 565 1988
WWW.N1.IS Meira í leiðinni
OPIÐ
alla daga
7–23
N1 kynnir nýja og
betri þvottastöð fyrir
bílinn þinn. Hún er
með 5 bursta sem
gerir þvottinn betri
auk þess sem hann
tekur mun styttri tíma.
Komdu og prófaðu!
Ný 5 bursta þvottastöð
við þjónustustöð N1, Lækjargötu
Foreldrar leik- og
grunnskólabarna setja fram
óskir og ábendingar um ýmis
atriði sem lúta að skólastarfi,
skipulagi og starfsháttum.
Á undanförnum misserum
hef ur óskin um samræmda
skipu lagsdaga leik- og grunn -
skóla verið mjög áberandi og
reynd ar sú ósk sem foreldrar
komu oftast á framfæri við
undir ritaða. Einnig kom fram í
niðurstöðum foreldrakönnunar
að tæplega 85% foreldra voru
ánægðir með ákvörðun fræðslu -
ráðs um að hafa sam ræmda
skipulagsdaga í öllum skólum
Hafnarfjarðar á þessu skólaári.
Nú eru skipulagsdagar leik-
og grunnskóla á starfstíma
grunnskólanna orðnir jafn
marg ir eða fimm að tölu og því
ósk að eftir að skipulagsdagar
séu á sömu fimm dögunum í
stað þess að dreifast hugsanlega
á tíu daga.
Í janúar sl. lagði formaður
fræðsluráðs fram tillögu um að
skólaárið 2009-2010 yrðu
skipulagsdagar skólanna sam -
ræmdir. Fræðslusvið leitaði eft -
ir upplýsingum frá öllum
grunn- og leikskólum um
hvaða dagar hentuðu best og
eftir að hafa yfirfarið og sam -
ræmt óskir skólanna
varð nið urstaðan sú
að eftir taldir dagar
yrðu sam ræmdir
skipu lags dagar leik-
og grunnskóla; 29.
sept ember og 18.
nóv em ber 2009, 4.
janúar, 26. febrúar og
25. maí 2010.
Þegar komast þarf
að samkomulagi fyrir
jafn stórt og fjöl breytt
skólasamfélag og er hér í
Hafnarfirði er ljóst að allir fá
ekki óskir sínar uppfylltar en
valdir voru þeir dagar sem
flestir skólanna voru sammála
um.
Það var helst að skipulags -
dagur 4. janúar hentaði ekki
þeim skólum sem eru með svo -
kallað tveggja anna kerfi, en
með góðum vilja og skipulagi
tekst að ráða fram úr því.
Í einhverjum tilfellum hafa
einstaka leikskólar sótt um
flutning á starfsdögum vegna
náms- og kynnisferða starfs -
fólks og að fengnu
samþykki for eldra -
ráðs viðkomandi
skóla er slíkt heim -
ilað.
Sjálfstæði skól -
anna er mikilvægt,
en einnig er mikil -
vægt að láta á það
reyna hvort fyrir -
komulag sem þetta
getur gengið, það
verð ur reynslan að leiða í ljós.
Eru samræmdir skipulagsdagar
allra leik- og grunnskóla á
starfstíma grunnskólanna
komn ir til að vera eða er nægj -
anlegt að samræma skipu -
lagsdaga leik- og grunnskóla í
sama hverfi?
Höfundur er formaður
fræðsluráðs og forseti
bæjarstjórnar.
Samræmdir skipulagsdagar leik- og grunnskóla?
Ellý
Erlingsdóttir
Sl. föstudaginn afhenti Alcan
á Íslandi hf. styrki til góð -
gerðarmála í tengslum við
þátttöku starfsmanna álversins í
Straumsvík í Reykjavíkur -
maraþoni 2009.
Veittur var 100 þúsund kr.
styrkur fyrir hvern hlaupahóp
sem í voru 10 hlauparar hið
minnsta, en hlauparar ákváðu
sjálfir hvaða aðili skyldi styrkt -
ur. Alls tóku 120 starfs menn
álversins í 11 hlaupa hópum þátt
í Reykja víkur mara þoni. Styrk -
fjár hæðin nam því alls 1,1
milljón krónum. Afhendingin
fór fram í mötu neyti ISAL í
Straumsvík og mættu þangað
fulltrúar þeirra sem hlutu styrki
til að veita þeim viðtöku frá full -
trúum hlaupahópanna.
Þessir hlutu styrk: ADHD
samtökin, Á rás fyrir Grensás,
Bætum brjóst (tveir styrkir),
Einstök börn, Félag áhugafólks
um Downs heil kenni, Hring ur -
inn, Ljósið, Mæðra styrksnefnd
Reykjavíkur, Neist inn - styrkt -
ar félag hjartveikra barna og
Umhyggja - félag til stuðnings
langveikum börnum.
Maraþonhlaup til góðs
Alcan á Íslandi veitti 11 styrki til góðgerðarmála
starfsmenn ISAL afhenda styrkina fulltrúum ADHD samtakanna,
Neistans og Hringsins.
Um helgina verður haldið
Hafnar fjarð armót Actavis og
Hauka í 5. flokki kvenna í
handbolta. Mótið fer fram á
Ásvöllum og í íþróttahúsinu
Strandgötu. Mótið hefst kl.
15.40 á föstudag og lýkur kl. 19
á laugardag.
Áætlað er að í kringum 200
stúlkur taka þátt í mótinu en
samtals eru skráð 25 lið til leiks
frá 15 félögum og eflaust leyn -
ast einhverjar landsliðskonur
fram tíðarinnar í hópi þátt -
takenda.
200 stúlkur í handbolta