Fjarðarpósturinn - 19.11.2009, Blaðsíða 4
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 19. nóvember 2009
Þegar þú vilt ná til Hafnfirðinga! Auglýsingasíminn er 565 3066
WWW.N1.IS
Frábært úrval af dekkjum, dekkjahótel og betri þjónusta
Þú færð skjóta og góða hjólbarðaþjónustu hjá N1. Við bjóðum upp á eitt mesta úrval
landsins af hjólbörðum og geymum sumardekkin á dekkjahóteli fyrir þá sem vilja.
Renndu við hjá okkur þegar þér hentar, við tökum vel á móti þér!
Láttu ekki veturinn koma þér á óvart!
-15%
Hjólbarða-
þjónusta
Þeir sem skrá sig
í Sparitilboð N1 á
n1.is fá veglegan
afslátt
Hjólbarðaþjónusta N1, Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði, sími 440 1374
NÁGRANNAVARSLA
Það hefur sýnt sig að virk nágrannavarsla
fækkar innbrotum, skemmdarverkum og
veggjakroti. Íbúar fylgjast betur með nær -
umhverfi sínu og sjá sér allir hag í þeirri
samvinnu sem nágrannavarsla felur í sér.
Hægt er að kynna sér nágrannavörslu í Hafnar -
firði á www.hafnarfjordur.is þar sem íbúar geta
sótt um uppsetningu nágranna vörsluskiltis.
Í síðustu viku boðuðu
hafnfirskir unglingar til mótmæla
fyrir framan Ráðhús Hafnar -
fjarðar. Mótmælin voru þau kröft -
ugustu í bæjarfélaginu í langan
tíma og hugmynda auðgi og
kraftur ungl ing anna
birtist skýrt í litríkum
mót mæla spjöld um,
öflugum ræð um og
fantagóðri mætingu.
Börn vilja að á þau
sé hlustað
Í mótmælunum
sýndi hafnfirsk æska að
hún er verðugur og
nauð synlegir þátt tak -
andi í umræðu um þró -
un og fram tíð samfélagsins okkar.
Hafn firsk ir unglingar vilja að á þá
sé hlustað, ekki síst þegar mál -
efnin varða þá sjálfa. Mótmælin
voru þannig áminning fyrir bæjar -
full trúa að hlusta eftir afstöðu
ungra Hafnfirðinga. Að hlusta er
hins vegar ekki það sama og
ganga ský laust að kröfum ein -
stakra hagsmunahópa. Í þá gryfju
gekk bæjarstjórinn Lúðvík þegar
hann lofaði unglingunum okkar
að bæjarstjórn Hafnarfjarðar
myndi ekki taka ákvörðun sem
væri í andstöðu við vilja þeirra.
Um leið kviknaði á myndavélum
sjón varpsstöðvanna brast kjark -
urinn og á einu augabragði urðu
tillögur um hagræðingu að engu.
Bæjarstjórinn klikkti svo út með
því að tengja mótmæli ungling -
anna við „íbúalýðræði af bestu
gerð.“
Börn geta og vilja taka þátt í
ákvarðanatöku
Mótmælin hittu vissulega í
mark en þau eiga
ekkert skylt við
íbúalýðræði. Það veit
Lúðvík og það þurfa
bæjarbúar líka að vita.
Íbúalýðræði vísar til
þess að íbúum sé
gefinn kostur á að eiga
skilgreinda aðkomu að
ákvarðanatöku. Skil -
greind aðkoma þýðir
ekki að kunningjar eða
kjarkaðir taki upp símann og
hringi í bæj ar stjórann eða ungl -
ingar hóp ist saman og mótmæli,
heldur felur þátttaka almennings
það í sér að í tengslum við tiltekna
ákvörð un leita bæjaryfirvöld eftir
aðkomu þeirra sem ákvörðunin
hefur áhrif á.
Fyrir nokkrum árum var Ung -
mennaráð sett á fót í Hafnarfirði.
Einhverra hluta vegna hefur
bæjar stjóranum ekki hugnast að
kalla það til þátttöku og virkja
þan nig fulltrúa unglinganna sjálfa
í að móta tillögur að breytingum.
Sannleikurinn er nefnilega sá að
þótt við vildum engu breyta og
litlu hagræða er staða fjármála
bæjarins þannig að bæjaryfirvöld
eiga engra kosta völ. Þetta þurfa
ungir Hafnfirðingar líka að skilja.
Samráð er málið
Ég trúi á gagnsemi þess fyrir
bæjarstjórn sem er að endurskoða
þjónustu við börn og unglinga að
hún heyri frá börnunum sjálfum
um þeirra hugmyndir, þannig að
það séu ekki bara kjörnir fulltrúar
og embættismenn sem sitja við
ákvarðanatökuborðið. Frum kvæð -
ið að hlustun og samræðu þarf að
koma frá bæjaryfirvöldum en hér
hafa hafnfirsk yfirvöld brugðist.
Minnisblað um breyt ingar á
skipulagi félagsmiðstöðva hefur
legið fyrir frá því byrjun sept em -
ber en þrátt fyrir það hefur hags -
munaaðilum ekki enn verið boðið
að hafa beina að komu að ákvarð -
anatöku. Þetta er svo þrátt fyrir að
fulltrúar minnihlutans í Fjöl -
skyldu ráði, sem fer með málefni
íþrótta- og æskulýðsmála, hafi
snemma í haust óskað eftir því að
hagsmunaaðilar í íþrótta- og æsku -
lýðsmálum yrðu kallaðir til fund ar
við ráðið og í framhaldinu virkjaðir
til þátttöku í þeirri hag ræðing ar -
vinnu sem nú stendur yfir.
Ungir Hafnfirðingar hafa núna
komið því skýrt á framfæri að þeir
vilja að á þá sé hlustað. Því fyrr
sem hafnfirsk yfirvöld svara því
ákalli, því farsælla.
Höfundur er varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í
Fjölskylduráði.
Íbúalýðræði af bestu gerð?
María Kristín
Gylfadóttir