Fjarðarpósturinn - 10.06.2010, Page 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 10. júní 2010
Sunnudagur 13. júní
Fjallgönguguðsþjónusta
Gengið á Helgafell
Ekið á einkabílum frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 11 í Kaldarsál
Leiðsöguprestur sr. Þórhallur Heimisson
Nesti í boði kirkjunnar þegar komið er á tindinn.
Öll hjartanlega velkomin.
ARABIC FOOD
Humus- Falafel-Shawerma
Macloobeh -Mskhan
Grill - Salads
Bæjarhraun 4 - 220 Hafnarfirði
Sími 555 4885 - Farsími 820 5882
Alamir-island@hotmail.com
AL-AMIR
RESTAURANT
Bæjarhrauni 4 • sími 555 4885
Sumartilboð
Taktu með eða borðaðu á staðnum!
Tilboð 1
Shawarma og gos í dós
aðeins kr. 1.190,- Tilboð 2
Kebab og gos í dós
aðeins kr. 1.290,-
Tilboð 3
Falafel og gos í dós
aðeins kr. 900,-
Fjölskyldutilboð 1
Shawarma fyrir 4, franskar og 2 lítra gos
aðeins kr. 3.990,-
Fjölskyldutilboð 2
Kebab fyrir 4, franskar og
2 lítra gos aðeins kr. 4.990,-
Fríkirkjan
Sjómannadagurinn 6. júní
Guðsþjónusta kl. 11
Fermdar verða Kristín Jóna Skúladóttir
og Sigrún Elva Reynisdóttir.
Kór kirkjunnar leiðir söng
undir stjórn Arnar Arnarsonar
Allir velkominir
í Fríkirkjuna!
Reykjavíkurvegi 66 - Hafnarfirði
Ég er
Hafnfirðingur
Svipmyndir frá Björtum dögum
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ratleikurinn
hefst á morgun
Ratleikur Hafnarfjarðar sem
standa mun í allt sumar hefst
formlega á morgun kl. 15.30 í
Þjónustuveri Hafnarfjarðar að
Strandgötu 6 þar sem fyrstu
ratleikskortin verða afhent.
Nánari upp lýs
ingar um leik inn
má fá á www.
ratleikur.blog.is
og á Facebook
síð unni Rat leikur
Hafnarfjarðar.
Fjöldi fyrirtækja
styrkja leikinn og
gefa einnig vinn
inga en að al
s t y r k t a r a ð i l i
leiks ins í ár er Rio Tinto Alcan.
Hönnunarhúsið sér um útgáfu
leiks ins og Guðni Gíslason lagði
leikinn. Þema leiksins í ár eru
hleðslur og tók Jónatan Garðars
son sam an fróðleiks punkta.
Leikurinn er tilvalinn fyrir alla
fjölskylduna.
Léttfeti:
Vandaðir Scarpa Nangpa-la gönguskór frá
Fjallakofanum að verðmæti 32.995,- kr.
Aukaverðlaun: 6 mánaða kort í líkamsrækt í
Hress að verðmæti 39.990 kr.
6 mánaða kort í sundlaugar
Hafnarfjarðar að verðmæti 8.900 kr.
Göngugarpur:
6 mánaða kort í líkamsrækt í
Hress að verðmæti 39.990 kr.
Aukaverðlaun: Polar F4 kalor íu-
úr frá Altis að verðmæti 15.900 kr.
6 mánaða kort í sundlaugar Hafnarfjarðar
að verðmæti 8.900 kr.
Þrautakóngur:
Árskort í líkamsrækt í Hress að
verðmæti 58.990 kr.
Aukaverðlaun: 6 mánaða kort í sundlaugar
Hafnarfjarðar að verðmæti 8.900 kr.
frá Músik og sport að
verðmæti kr.
Útdráttarverðlaun:
Úr öllum innsendum lausnum verða
dregin út aukaverðlaun:
2 x Súpa og aðalréttur í Fjörunni fyrir
tvo að verðmæti 3.000 kr.
3 x Hundrað, hafnfirsk myndabrot eftir Björn
Pétursson og Steinunni Þorsteinsdóttur að
verðgildi 3.500 kr.
frá Músik og sport að
verðmæti kr.
1 Skotbyrgi á Mógrafarhæð: Mógrafarhæð nefnist öxlin
sem geng ur suðaustur frá hábungu Ásfjalls í áttina að Blá-
berjahrygg. Austarlega í hæðinni er skotbyrgi sem breskir
hermenn hlóðu sumarið 1940. Þeir stóðu vaktina með rifla
en þar var einnig gervi fallbyssa úr gildum trjálurk sem leit út
eins og fallstykki úr lofti.
2 Grjótvirki á Hádegisholti: Hlaðið grjótvirki sem stendur
nálægt efsta hluta Hádegisholts, en hæðin var einnig nefnd
Flóðahjalli. Skotbyrgið hlóðu breskir hermenn úr 1/7 herfylki
Wellingtons vorið 1940. Það er um 800 m² að stærð og víða
hefur hrunið úr veggjum þess, sem voru rúmlega 1 m háir.
3 Stekkur við Stekkjartún: Fallega hlaðnir veggir af smáhýsi
eða stekk við Stekkjartúnið. Suðvestan við klett sem tóftin
stend ur hjá er einföld kvíahleðsla kvíar sem er nánast vall-
gróin. Hraunhóllinn Einbúi er skammt frá hleðslunum og
norðaustan þeirra er allnokkur furutrjálundur í Flatahrauni.
4 Beitarhús nærri Selgjá: Veggir af fornu beitarhúsi í landi
Urriðakots sem hlaðið var til skjóls fyrir útigangsfé og senni-
lega smalann líka. Ekki er vitað um aldur hússins sem er ekki
lengur reft og standa veggirnir einir eftir, ásamt sér kennilegri
hleðslu á milli hraunkletta með einskonar glugga sem snýr í
austurátt.
5 Hleðsla við Selgjárhelli: Norðurhellar eru í Selgjá (Norður-
hellagjá) sem er beint framhald Búrfellsgjár. Hellarnir voru
nýtt ir í tengslum við selbúskap 8 kóngsjarða á Álftanesi. Talið
er að selin hafi verið 11 talsins og eru tóftir nokkurra mjög
greinilegar við gjárbarmana, en minna ber á öðrum seltóftum.
6 Vatnsendaborg: Fjárborg Vatnsendabænda stendur hátt á
Hjallabrúnum skammt frá landamerkjarvörðu á Arnarbæli
(Arnarsetri) sem skipti löndum milli Vífilsstaða og Vatnsenda.
Borgin er rétt innan við landamerki Vatnsendalands og var
helsta skjól sauðanna sem voru þar á vetrarbeit.
7 Gjáarrétt í Búrfellsgjá: Gjáarrétt var fjallskilarétt Álftnesinga
og bendir margt til að hún hafi verið stærri áður fyrr. Al menn-
ingurinn er óvenju lítill, en þessi rétt var hlaðin árið 1839 og
hætt að nota hana 1920 þegar Hraunrétt í Gráhelluhrauni varð
lögrétt. Gjáarrétt var friðlýst 1964.
8 Fallin fjárborg á Selhöfða: Selhöfði ber nafn með rentu
því nokkur sel voru norðan og vestan við hann. Ofarlega á
höfðanum er tölu verð grjóthrúga; leifar hruninnar fjárborgar.
Grjótið lætur ekki mikið yfir sér þar sem það liggur á víð og
dreif en auðvelt er að ímynda sér hversu stór fjárborgin var.
9 Húsatóft við Fremstahöfða: Rétt austan við Fremstahöfða
eru vegghleðslur fjárhúss sem byrjað var að reisa úr hraun-
grjóti rétt eftir aldamótin 1900 en var aldrei klárað að því er
næst verður komist. Húsatóftin minnir á það hversu mikið
menn voru tilbúnir að leggja á sig til að skýla sauðfé sínu fyrir
vertrarveðrum.
10 Fallin fjárborg á Borgarstandi: Vestur af Borgarstandi er
beitarhúsatóft með gerði en suðvestan Smalaskála eru nokkrir
fjárhellar með tilheyrandi hleðslum. Tvær fjárborgir stóðu á
Borgarstandi en grjótið úr eystri borginni var fjarlægt á sínum
tíma. Vestari borgin er hrunin og eru minjar hennar friðlýstar.
11 Vatnsveituhleðsla í Lambagjá: Veturinn 1917-18 voru
hlaðnar undirstöður fyrir 1.600 m opna trérennu sem lá frá
Kaldárbotnum að Sléttuhlíð, þar sem vatn var látið renna
niður í hraunið. Öll hleðslan milli Lambagjár og Kaldárhnúka
er friðuð og ekki má raska þessu mannvirki á neinn hátt.
12 Fallinn stekkur í Helgadal: Hellarnir í Helgadal voru
fyrrum notaðir sem fjárskjól og eru fornar hleðslur í nokkrum
þeirra. Skammt suður frá hellunum eru tóftir beitarhúss
sem var líkast til sel í eina tíð. Helgadalsstekkur sést á lágri
hraunklöpp rétt norðan hellanna, en hann er löngu fallinn.
13 Túngarðurinn vestan við Óttarsstaði: Heimatúnið á
Óttarsstaðabæjunum tveimur var girt tvístæðum túngarði
sem hlaðinn var úr hraungrjóti að vestan en sjávargrjóti að
austan. Þessi vandaði garður var feiknarmikið mannvirki og
þurfti talsvert viðhald. Hann stendur að hluta enn þó víða hafi
hrunið úr honum.
14 Norðurfjárhús: Á sjávarbakkanum skammt frá bæjarhól
Lónakotsins, beint niður af klapparhól sem var ýmist nefndur
Krumhóll, Vökhóll eða Sönghóll, er það sem eftir er af Norður-
fjárhúsum. Þykkhlaðnir veggirnir standa enn þó svo að þekjan
hafi fyrir löngu fokið á haf út.
15 Hausthellir vestan við Lónakot: Hausthellirinn var
skammt vestan við Lónakotstúnið og þótti ekki merkilegt skjól.
Hellirinn var notaður þegar taka þurfti lambærnar heim á bæ
alveg undir jólin. Vegna smæðar sinnar var hann lagður af um
leið og Norðurfjárhúsin höfðu risið um aldamótin 1900.
16 Fyrirhleðsla við Smalaskálaskúta: Rétt norðan Reykjanes-
brautar nærri Lónakoti er Sjónarhóll, mikill og margskiptur
hraunhryggur. Norðaustan Sjónarhóls og vestan við Jakobs-
vörðuhæð er fjárhellir með fyrirhleðslu. Þetta er fjárskjól sem
heitir Smalaskálaskúti þó svo að skútinn sé spottakorn frá
Smala skálahæð.
17 Jakobsvörðuhæðarrétt: Norðan Jakobsvörðu er forn
stekkur ásamt æva gamalli fjárrétt sem dregur nafn sitt af
hæðinni, en minjarnar vitna um búskaparhætti fyrri tíðar.
Réttin er skammt frá fornum götum, sem heita annarsvegar
Vetrarleið og hinsvegar Óttarsstaðafjárborgarstígur.
18 Jakobsvarða: Jakobsvarða líkist lágri heysátu og hefur
örlítið hrunið úr henni þar sem hún stendur á Jakobs-
vörðuhæð. Enginn kann skil á Jakobi.
19 Stekkurinn við Þorbjarnarstaði: Nokkuð stór réttagarður
liggur utan um Stekkatúnið norðan undir Stekkatúnshæðinni.
Innan garðsins var Stekkatúnið sem var slegið þegar leið
á sumar enda allt sauðféð fyrir löngu farið á fjall. Innan
Stekkatúnsins var hlaðið gerði sem skiptist í stekkinn og
lambakró.
20 Skotbyrgi við Mosastíg: Víða í Hraunum voru hlaðin
skotbyrgi snemma á 19. öld sem refaskyttur notuðu til að felast
er legið var fyrir tófu. Flest skotbyrgin hafa staðist tímans tönn
en þeim var oftast fundinn staður nálægt grenjum eða þar
sem smalar sátu yfir sauðfé sem var á útigangi árið um kring.
21 Réttargjá: Náttúrleg hraunsprunga skammt austan við
jarðvegsnámu þar sem áður stóð gjallhóllinn Þorbjarnar staða-
rauðimelur. Hlaðið er fyrir sprunguna að norðanverðu og þar
var eitt sinn réttarhlið úr timbri til að létta smölum fjárgæsluna
þegar vetrarbeit var stunduð þarna.
22 Skotbyrgi á Smalaskálahæð: Á Smalaskálahæð við Krist-
rún arfjárborg er lítið skotbyrgi þar sem skyttur dvöldu dægrin
löng í von um að góma varginn áður hann næði að drepa
búsmalann. Kjötstykki af sóttdauðu hrossi eða sauðkind sem
lyktaði vel var lagt í skotlínu til að lokka varginn út úr fylgsni
sínu.
23 Bekkjarskútinn: Bekkjarskútinn í Bekkjarhraunskeri er
nokkuð stór og framan við hann eru fyrirhleðslur sem loka
opinu sem snýr mót norðvestri. Hraunið umhverfis skútann
nefnist einu nafni Bekkjarhraun en hæðirnar kallast Bekkir.
Tvær fornar götur liggja til sitthvorrar handar við Bekkina.
24 Óttarsstaðaselsrétt: Suður af Óttarsstaðaseli er stór hraun-
bás og þar er ævagömul rétt eða nátthagi sem tilheyrði selinu.
Réttin er allrúmgóð og stendur á klöpp en réttarveggirnir eru
hlaðnir frá hvorum kersbarmi fyrir sig. Hlið hefur verið fyrir
réttaropinu en það fúnaði og varð að engu.
25 Óttarstaðaselshellar: Fjárskútar eru við flest selin í
Almenningi og fyrir bragðið þurfti ekki að byggja þar
beitarhús. Vestan Óttarsstaðasels er hraunhryggur og í
honum er ágætur fjárskúti sem rúmaði fjölda fjár. Annar skúti
er suður af selinu og átti hvor Óttarsstaðabóndi sinn fjárskúta
þegar þar var tvíbýlt.
26 Fjallgrensbalar: Nokkuð sunnan frá Fjallgrensbalavörðu
er hlaðið skotbyrgi þar sem refaskyttur gátu legið fyrir bráð
sinni. Fjallgrenið er nærri byrginu og þegar melrakkinn kom
út úr greninu til að afla matar fyrir hungraða yrðlinga sína var
skyttan í góðri aðstöðu til að vinna dýrið og hreinsa grenið.
27 Búðarvatnsstæði: Búðarvatnsstæðið virðist vera mótað
af manna höndum og þar er staðið regnvatn sem er varla
drykkjarhæft nema í hallæri. Um mitt vatnsstæðið liggur
hleðsla sauðfjárveikivarnagirðingar sem markaði landaskil
milli Óttarsstaða og Hvassahrauns, og þar með á milli
Hafnarfjarðar og Voga. Vatnsstæðið er rétt undir háum
hraunkanti.
Álverið í Straumsvík einsetur sér að vera í fremstu
röð í allri starfsemi sinni, að hafa stöðugar
umbætur að leiðarljósi og að starfa ávallt í sátt við
umhver og samfélag.
Nýlega gaf fyrirtækið út sjálfbærniskýrslu sem er
greinargerð um frammistöðu fyrirtækisins á sviði
umhvers-, samfélags- og efnahagsmála á liðnu ári.
Í sátt við uhver
og samfélag
Við hvetjum alla til að kynna sér efni
skýrslunnar. Í henni kemur meðal
annars fram að álverið í Straumsvík
greiddi fyrirtækjum í Hafnarrði 1,4milljarðar
1,4 milljarða króna fyrir kaup á vörum og þjónustu.
Skýrsluna er að nna á heimasíðu okkar,
www.riotintoalcan.is.
Rio Tinto Alcan
Straumsvík | Pósthólf 244 | 222 Hafnarfjörður | Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
Stórhöfðastígur
Stórhöfðastígur liggur frá Ástjörn um Hádegisskarð og
Ásflatir, sniðhallt yfir Bleikisteinsháls að Hamraness-
flugvelli og út á Selhraun. Gengið er suður með Stórhöfða
þar til Kaldársel blasir við, en þá hlykkjast leiðin á
hraun hrygg að Bruna og í áttina að Snókalöndum.
Þegar þang að er komið er farið yfir Krýsuvíkurveg í
áttina að Brund torfum og þrísteinavörðum fylgt að
Fjallgjá. Gengið er með misgenginu að Fjallinu eina og
austanverðum fjallsrótum fylgt að Hrútagjárdyngju. Þar
mætast Stór höfðastígur og Undirhlíðavegur sem fylgja
norðanverðum Sveifluhálsi að Ketilstíg.
Hrauntungustígur
Hrauntungustígur liggur frá Áslandi um Hádegisskarð
með Hamranesi og suður yfir Háabruna að Hrauntung-
um í Almenningi. Þaðan liggur
leiðin milli Gjásels og Forna sels, hjá
Hafur bjarnarholti upp í hæsta hluta
Almennings að Sauðabrekkum. Farið
er yfir Sauðabrekkugjá um Mosa
vestur fyrir Fjallið eina að Hrúta-
gjárdyngju. Stefnt er á Hrúthólma og
farið um helluhraun að Hrútafelli og
þá er stutt í Ketilstíginn, sem liggur
yfir hálsinn til Krýsuvíkur.
Undirhlíðaleið
Undirhlíðaleið hefst við Kaldársel og liggur norðan
Undir hlíða yfir Bláfjallaveg að Vatnsskarði. Þar er farið
yfir Krýsuvíkurveg og gengið með Sveifluhálsi um Norð-
ligasand og Sandfellsklofa upp að Hrútagjárhrauni,
yfir Norðlingaháls um Stórusteina brekku, framhjá
Köldu námum, um Hofmannaflöt í
áttina að Katl inum. Þar tekur Ketil-
stíg ur við og liggur yfir Sveifluháls
fram hjá Arnar vatni, að Seltúni þar
sem heimalönd Krýsuvíkur taka
við.
Gerðisstígur
Stígurinn liggur frá Gerði í
Hraunum, með vesturbrún
Brunans eða Kapelluhrauns
í áttina að Gjáseli. Slóðin er
vörðuð að litlum hluta og fyrir nokkrum árum var hún
stikuð, af starfsmönnum Byggðasafns Hafnarfjarðar.
Leiðin liggur að malar námum þar sem áður var Þor-
bjarnarstaðarauðimelur í áttina að Efri-Hellum sem
þekkjast á áberandi hraunkletti. Þar verður slóðin óljós
þar sem hún liggur um Kolbeinshæð og Laufhöfðahraun
að Gjáseli. Þegar þangað er komið er hægt að halda
áfram yfir skógræktargirðingu að Fornaseli og þaðan
liggur Hrauntungustígur í áttina að Krýsuvík.
Straumsselsstígur
Straumsselsstígur liggur frá Straumi um hlað Þorbjarnar-
staða, norðan Draughólshrauns um Flárnar ofan Katla í
áttina að Straumsseli. Þaðan liggur leiðin um Straums-
selshellnastíg framhjá Gömluþúfu í áttina að Sauða-
brekkugjá þar sem stígurinn sameinast Hrauntungustíg.
Leiðin liggur um Mosa, síðan norður með Hrútagjá og
sunnan Mávahlíðar, framhjá Hrúthólma og Hrútafelli
yfir hraunhellurnar að Ketilstíg.
Alfaraleið
Það er víða auðvelt að fylgja Alfaraleiðinni, en svo
nefnist elsta leiðin á milli Innnesja og Suðurnesja. Gatan
er víða vel mörkuð í hraunhelluna eftir aldalanga
notkun, en hún lagðist af þegar vélknúin farartæki tóku
við hlutverki hestanna.
Þegar komið er vestur fyrir tóftina í Kapelluhrauni liggur
leiðin spölkorn suðaustan Þorbjarnastaðatúngarðs
nærri Tókletti. Hún hlykkjast í áttina að Suðurnesjum
um hraunlægðir sem nefnast Draugadalir. Á þessum
slóðum er gatan vel vörðuð og auðvelt að fylgja henni
að Gvend ar brunni og meðfram Löngu brekkum. Þegar
komið er framhjá þeim fækkar vörðunum en slóð in sést
ágæt lega þar sem hún liggur hjá Taglhæð um
Sprengi lendi í áttina að Hvassa hrauni. Þar
skiptir leiðin um nafn og nefnist eftir það
Al menn ings vegur þar sem hann ligg ur
um Kúa gerði og Vatnsleysu strönd að
Vogum. Við Vogastapa tekur Stapa-
gatan við, en svo nefnist gamla leiðin
sem liggur frá Vogum til Njarðvíkur.
Gamlar þjóðleiðir, frh.
Hressandi útivist
í allt sumar!
Vinningar
Ratleikur Hafnarfjarðar 2010
Fróðleiksmolar
Bæjarhrauni 8 • sími 565 1533 • www.altis.is
Ratleikur
Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær býður upp á ratleik fyrir alla, unga sem
aldna, í fjórtánda sinn. Leikurinn skiptist í þrjá styrkleika-
flokka: Léttfeta, Göngugarp og Þrautakóng en að sjálf-
sögðu er hverjum í sjálfs vald sett að nýta sér leikinn á hvern
þann hátt sem hentar best. Markmiðið með leikn um er að
hvetja til útivistar og náttúru skoðunar í fjöl breyttu landi
nágrennis Hafnarfjarðar og um leið að vekja athygli á þeim
fjölmörgu perlum sem leynast í okkar næsta nágrenni.
Fróðleiksmolar
Fróðleiksmolum er ætlað að auðvelda væntanlega leit og
veita nánari upplýsingar um viðkomandi stað en skyn -
samlegt er að treysta einnig á hyggjuvitið og glöggskyggni
til að finna ratleiksmerkin. Jónatan Garðarsson hefur lagt til
fróðleiksmola og tillögur að stöðum en þema leiksins í ár
eru hleðslur. Það er skátinn og ritstjórinn Guðni Gíslason
sem leggur leikinn í þriðja sinn og hefur notið krafta góðra
manna en auk Jónatan hefur Ómar Smári Ármannsson veitt
drjúga aðstoð sem fyrr. Ábendingar og viðbótarfróðleik ef
við á má finna á www.ratleikur.blog.is
Vandað útivistarkort
Loftmyndakort frá Samsýn er notað nú í annað sinn og á
að auðvelda útivistarfólki að rata um svæðið og sjá betur
breyting ar á landi, mismunandi hraun o.s.frv. Kortið má
að sjálfsögðu nota í öllum gönguferðum enda eru merktir
inn á það fjölmargir áhugaverðir staðir. Á kortinu eru
nokkr ar númeraðar göngu leiðir og gömlum þjóðleiðum
eru gerð skil í leiðarlýsingum.
Meginstef leiksins
Leikurinn nær yfir bæjarlandið vítt og breytt og jafnvel
út fyrir það. Þátttak endur eru leiddir á staði með því
markmiði að fólk kynnist bæjarland inu um leið og menn
njóta hressi legrar útivistar. Þema leiksins í ár eru hleðslur.
Íbúar fyrri alda hafa nýtt landið mun betur en við gerum í
dag og víða sjást um merki eftir þá, sum áberandi og önnur
sem næst um eru horfin. Ekki er alltaf langt á milli merkja
og er þá verið að vekja athygli á því hversu mikið fólk fyrri
tíma lagði á sig í lífsbaráttunni.
Einfaldar reglur
Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á kortið
og er vísbendingar að finna á lausnarblaðinu til hliðar við
kortið. Á hverju spjaldi eru þrír bókstafir og þrír tölustafir.
Þátt takendur sýna fram á að þeir hafi fundið viðkomandi
spjald með því að skrifa þessa stafi inn á lausnablaðið.
Mikilvægt er að hreyfa ekki við sjálfum ratleiksspjöldunum.
Ert þú Léttfeti, Göngugarpur eða
Þrautakóngur?
Til þess að verða Léttfeti þarftu að finna fyrstu 9 spjöldin,
eða einhver 9 spjöld. Til þess að verða Göngugarpur þarftu
að finna 18 spjöld en til þess að verða Þrauta kóng ur þarftu
að finna öll spjöldin 27.
Þegar þátttakandi hefur fundið 9 ratleiksspjöld getur hann
skilað inn lausnum í Léttfeta flokki og eftir 18 spjöld er
hann gjald gengur í flokk Göngugarpa. Þátttakendur velja
reynd ar sjálfir hvaða spjöldum þeir leita að, en mælt er með
því að byrja á fyrstu 9 spjöldunum til að átta sig á leiknum.
Síðan er hægt að feta sig áfram og bæta við ratleiksstöðum
eftir getu og vilja til að halda leiknum áfram. Sá sem afrekar
að finna öll 27 spjöldin fyllir sjálfkrafa flokk Þrautakóngs
Ratleiks Hafnar fjarðar 2010.
Í haust verður dreginn út sigurvegari í hverjum styrkleika-
flokki og fær sigurvegari í Léttfeta Polar vandaða gönguskó
frá Fjallakofanum, sigurvegari í Göngugarpi fær púls-
mælir og vega lengda mælir og sigurvegari í Þrauta kóngi
fær árskort í líkams ræktarstöðinni Hress. Auk þess verða
nokkrir heppnir kepp endur dregnir út í hverjum flokki og
fá þeir aukavinninga.
Munið að skila lausnum í Þjónustuver Hafnarfjarðar
í síðasta lagi 21. september.
... við Helluhraun í HafnarfirðiReykjavíkurvegi 64 • sími 510 9505 • Finndu okkur á Facebook
Allt fyrir göngugarpana ... og líka miklu meira!
símar 565 6455, 893 2855
við Kaldárselsveg
Velkomin
í Höfðaskóg Harðgerðar trjáplöntur og runnar
www.fjardarposturinn.is
með fólkinu í bænum
Þjónustuver
fyrir íbúa og gesti
hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Upplýsingamiðstöð • www.hafnarfjordur.is
sími 585 5500 • Strandgötu 6, 220 Hafnarfjörður
Opið mán. - fim. kl. 8-16 • Um helgar er upplýsingagjöf
fyrir ferðamenn í Byggðasafni Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8
Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. fyrir Hafnarfjarðarbæ
Hönnun og umsjón með útgáfu: Hönnunarhúsið ehf.
Lagning ratleiks og umsjón: Guðni Gíslason
Fróðleikur með punktum og leiðarlýsingar:
Jónatan Garðarsson
Góð aðstoð: Jónatan Garðarsson
og Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir
Kortagerð: Samsýn ehf.
Teikningar: Brian Pilkington
Ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason
Prentun: Steinmark ehf.