Fjarðarpósturinn - 19.08.2010, Síða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 19. ágúst 2010
Fyrsta kvennamótið á Íslandi
í skeet var haldið 26. júlí sl. og
kepptu tíu konur. Keppt var í
tveim flokkum A og B þar sem
A er ólympískt skeet en B
keppni sem SÍH hefur þróað
sem byrj endakeppni. Skotnir
voru tveir hringir í báðum
flokkum. Í A flokki sigraði
Anný Guð munds dóttir, Helena
Ericson varð í öðru sæti og
Brynja Ingólfsdóttir í því þriðja.
Í B flokki varð Bára Gunnlaugs-
dótt ir í fyrsta sæti, Guðlaug
Sigurðardóttir í öðru sæti og
Sigurjóna Björk í því þriðja.
Aðrir keppendur voru Rebekka
Stefánsdóttir, Inger Ericson,
Guðbjörg Konráðsdóttir og
Halldóra Matthíasdóttir.
Tilboð
Borgartúni 29 • Hrísateig 47 • Lækjargötu 4 • Langarima 21 • Spöng • Ögurhvarfi 3
Hjallabrekku 2 • Tjarnarvöllum 15 • Reykjavíkurvegi 62 • Fitjum, Kefl avík
10
07
–
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
.
10 morgunbrauð
á aðeins
949 kr.
Ef verslað er fyrir:
1.000 kr. færðu brauð á 299 kr.
2.000 kr. færðu köku á 299 kr.
4.000 kr. færðu tertu á 299 kr.
Á þessu hausti eru liðin 15 ár
frá því að hjónanámskeið voru
fyrst haldin á vegum Hafnar-
fjarð arkirkju, en fyrsta nám-
skeiðið var haldið haustið 1996.
Þá var ætlunin að bjóða upp á eitt
eða tvö námskeið, en vegna mik-
illrar og stöðugrar aðsóknar eru
námskeiðin enn í gangi. Nám-
skeiðin hafa reyndar ekki aðeins
verið haldin í Hafnarfjarðarkirkju
heldur einnig víða um land og
erlendis.
Vinsældir námskeiðanna má
kannski einna helst rekja til þess
að á námskeiðunum gefst þátt-
tak endum tækifæri til þess að
skoða sitt eigið samband út frá
fyrir lestrum og verkefnum sem
hvert par heimfærir upp á sinn
eigin veruleika. Þar er líka lögð
rík áhersla á sjálfsskoðun og
sjálfs rýni. En umfram allt er bent
á fjölbreyttar leiðir sem hægt er
að fara til að bæta og styrkja
hjónabandið og sambúðina í
aðstæðum lífsins. Þannig hentar
námskeiðið öllum aldurshópum
og er ekki síst gagnlegt fyrir þau
pör sem vilja styrkja það sem
gott er fyrir. Hjón þurfa þess
vegna ekki endilega að vera í
ein hverjum vanda til að geta nýtt
sér aðferðafræði námskeiðsins.
Og þó námskeiðið heiti hjóna-
námskeið er það opið öllum pör-
um, hvort sem þau eru í hjóna-
bandi eða sambúð.
Þó grunnurinn hafi alltaf verið
sá sami hafa námskeiðin og
áhersl urnar auðvitað breyst í
gegnum árin. Undanfarin tvö ár
hefur þannig sérstök áhersla
verið lögð á leiðir til að styrkja
fjölskylduna í því erfiða ástandi
sem nú ríkir hér á landi. Áfram
verður unnið út frá þeirri for-
sendu nú í vetur.
Í tengslum við námskeiðin
hafa orðið til tvær bækur, Ham-
ingjuleitin sem kom út árið 2001
og Hjónaband og sambúð árið
2006. Einnig hafa önnur almenn
námskeið þróast út frá hjóna-
námskeiðunum. Þar ber hæst
nám skeiðið 10 leiðir til lífs ham-
ingju sem er ætlað öllum en ekki
pörum sérstaklega. Einn ig það
námskeið hefur verið haldið um
allt land á undan förn um árum.
Rúmlega 12.000 manns hafa
tekið þátt í hjónanámskeiðunum
frá upphafi og mikill fjöldi hefur
einnig sótt leiðirnar 10 til lífs-
ham ingju.
Og nú er sem sagt að hefjast
15. starfsár hjónanámskeiðanna
en námskeiðin hefjast fyrstu vik-
una í september.
Hjónanámskeið í 15 ár
Sr. Þórhallur Heimisson
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Strætó bs. býður nemendum
með lögheimili á höfuð borgar-
svæðinu sem eru í fullu námi
við framhalds- og háskóla á
höfuð borgarsvæðinu upp á
nema kortin, en þetta er annað
árið sem þau eru boðin í nú ver-
andi mynd.
Tæplega fimm þúsund náms-
menn nýttu sér þennan kost á
síðasta skólaári og sk. könnun
Við skiptafræðistofnunar Há -
skóla Íslands kom fram að yfir
90% voru ánægðir með nema-
kortið og um 85% töldu það
hafa hvetjandi áhrif á notkun
þeirra á strætó.
Sala á nemakortunum hófst í
dag á www.strætó.is og geta
þeir sem eiga kost á að kaupa
nemakort pantað þau þar. Hægt
er að kaupa kort sem gilda
ýmist eina önn eða allt skólaárið
og kosta þau fyrrnefndu 8.000
krónur en kort sem gilda allt
skólaárið 15.000 krónur.
Nemakort í strætó
Fyrsta kvennamótið í skeet
Helena, Anný og Inger.