Fjarðarpósturinn - 19.08.2010, Page 16
16 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 19. ágúst 2010
Áfram Haukar!
www.ratleikur.blog.is
http://facebook.com/ratleikur
Ert þú
með?
Ratleikur
Hafnarfjarðar
Þann 1. júlí sl. voru lands-
menn 318.006 en voru 319.246
fyrir ári síðan. Þetta jafngildir
því að íbúum á landinu hafi
fækkað um 1.240 á einu ári eða
um 0,4%.
Í Hafnarfirði fækkar um 172
en gríðarleg fjólksfjölgun hefur
verið í Hafnarfirði undanfarið. Í
Reykjavík fækkar um 533 en í
Kópavogi fjölgaði um 151 á
sama tíma.
Mikil fjölgun á 10 árum
Fjölgun í Hafnarfirði síðustu
10 ár er rúm 35% en skv. upp-
lýsingum frá Hafnarfjarðarbæ
eru íbúarnir nú 25.968 og hefur
fjölgað um 31 frá 1. júlí sl.
Mest hlutfallsleg fjölgun á
höfuðborgarsvæðinu var þó á
Álftanesi eða um 75% en 1. jan
sl. voru íbúar þar 2.523. Í Kópa-
vogi fjölgaði um tæp 34%, 13%
fjölgun var í Garðabæ og 7,6%
í Reykjavík. Fjölgun í Vogum
varð tæp 65% á síðustu 10
árum. Flestir urðu Hafnfirðingar
7. september 2009 en þá voru
þeir skv. upplýsingur frá
Hafnarfjarðarbæ 26.132.
Fækkar í Hafnarfirði eftir
35% fjölgun á 10 árum
Erum með hagstætt verð á lyfjum og öðrum vörum
Bjóðum upp á góða, persónulega þjónustu Tjarnarvöllum 11 (sama hús og Europris)
Ekki festa þig í keðjunni!!
Komdu frekar í Apótek Hafnarfjarðar
sem er eina
sjálfstæða apótekið
í Hafnarfirði
Sími 555 6650 • Læknasími 555 6651 • Fax 555 6652
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n
—
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
Hafnfirðingar og gestir fjölmenntu á 100 ára afmælishátíð
Hafnarfjarðarkaupstaðar 1. júní 2008.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Veggjakrot virðist færast í
aukana og lítið virðist vera gert
í að hreinsa veggjakrot við
undirgöng og víðar þar sem
fólk hefur í leyfisleysi krotað á
veggi öðrum til ama.
List eða skemmdarverk?
Ætlar Hafnarfjarðarbær að
líða þennan sóðaskap?