Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 28.02.2013, Qupperneq 4

Fjarðarpósturinn - 28.02.2013, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 28. febrúar 2013 Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum, merkt „Straumur – Leiga á húsnæði - rekstrar- hugmyndir“. Hafnarfjarðarbær óskar eftir hugmyndum frá áhugasömum aðilum um að taka á leigu Straum og reka þar starfsemi. Um er að ræða 133,2 fermetra hús og smiðjur alls 392,5 fermetrar að stærð. Við val á samningsaðilum verður sérstaklega horft til áætlana um að glæða þessi hús lífi og hvernig fyrirhuguð starfsemi fellur að umhverfi og aðstæðum á svæðinu. Mikilvægt er að hugmyndunum fylgi upplýsingar um aðila, reynslu þeirra af rekstri og annað sem skipt getur máli. Hafnarfjarðarbær áskilur sér á síðari stigum að kalla eftir ítarlegum upplýsingum um fjárhag, tæknilega getu og reynslu frá rekstraraðilum. Bjóðendur skulu leggja inn tilboð um leigu frá 15. apríl og til allt að fjögurra ára. Ef leigusali og leigu­ taki verða sammála um áframhaldandi leigu að leigutíma loknum er heimilt að framlengja leigu­ tíma um eitt ár í senn allt að þrisvar sinnum. Leiguverð mun fylgja vísitölu neysluverðs frá apríl 2013. Áhugasömum aðilum verður boðið til viðræðna hjá Hafnarfjarðarbæ um það hvernig leigutaki ætlar að útfæra hugmyndir sínar um rekstur eignanna. Leigu sali áskilur sér rétt til að hafna tilboðum sem ekki þykja ásættanleg. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Húsnæðið er til sýnis í samráði við Sigurð Haraldsson í síma 585 5631 og Bergmund Ella Sigurðsson í síma 664 5633. Áhugasamir skulu skila inn tilboðum sínum í tveimur umslögum, annars vegar með hug­ myndum sínum að útfærslu og upplýsingum um tilboðsgjafa og hins vegar með leiguverði í af greiðslu Umhverfi og framkvæmda að Norður­ hellu 2 fyrir klukkan 14.00 þriðjudaginn 26. mars 2013, merkt „Straumur – Leiga á húsnæði ­ rekstrar hugmyndir“. útboð Straumur – Leiga á HúSnæði – rekStrarHugmyndir ELIN.IS námskeið hefjast 4. og 5. mars styrkir – liðkar eykur jafnvægi og þol Bæjarhrauni 2 • sími 696 4419 • elin@elin.is Magnús Waage, viðurkenndur bókari Reykjavíkurvegi 60, s. 565 2189, 863 2275 Fyrirtæki og einstaklingar Færsla á bókhaldi, launaútrreikningur, vsk-uppgjör, ársuppgjör, skattframtöl, húsfélagaþjónusta, fjármálaráðgjöf. www.bokhaldsstofan.is Vorið 2012 keypti Pitstop Sóningu af Landsbankanum. Sólning er rótgróið fyrirtæki sem stofnað var árið 2009 og var eins og nafnið gefur með sér öflugt í sólningu á hjól­ börðum. Slík vinna hefur lagst af hér á landi og Sólning hefur verið öflugt fyrirtæki í inn­ flutningi og þjónustu á hjól­ börðum fyrir allar gerðir öku­ tækja. Pitstop hefur hins vegar sérhæft sig í meiri þjónustu við bifreiðar; hjólbarðaþjónustu og smáviðgerðum og rekið öflug verkstæði á Hjallahrauni og Rauðhellu hér í bæ. Þjónustufyrirtækin hafa nú öll fengið nafn Sólningar og eru þau í Hafnarfirði, Kópavogi, á Selfossi og í Njarðvík. Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sólningar segir samlegðar­ áhrifin mikil, mikil þekking og góð dekkjaumboð bætast við frá Sólningu og mikil þekking og reynsla á þjónustuviðgerðum koma frá Pitstop en sú þjónusta verður nú í boði í öllum þjón­ ustu stöðvum Sólningar. Sam­ einað fyrirtæki er mjög öflugt í innflutningi hvers konar dekkja og er með umboð fyrir m.a. Continental, Hankook, Master­ Craft, Nankang og BKT land­ búnaðar­ og vinnuvéladekk. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú um 45, þar af 4 á þjónustu­ verkstæðinu við Helluhraun þar sem Beggi, Guðbergur Björns­ son er þjónustustjóri og 6 á Rauð hellu þar sem Sigurður Ævarsson er þjónustustjóri en þar er öflug þjónusta við stærri bíla og vinnuvélar. Pitstop verður Sólning Aukin þjónusta eftir að Pitstop keypti Sólningu Siggi Ævars, Beggi og Gunnar framkvæmdastjóri fyrir utan þjónustustöð Sólningar við Helluhraun, við hlið Aðalskoðunar. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Fékk ekki svar Hermundur Sigurðsson, sem kærði ákvörðun Hafnar fjarðar­ bæjar að afhenda honum ekki samning við slitastjórn DEFHA banka óskaði á ný eftir í tölvupósti til bæjarstjóra að fá afhent gögnin á grundvelli úrskurðar Úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Jafnframt vísaði hann til loforða VG, flokks bæjarstjóra um gagnsærri og opnari stjórnsýslu en Her­ mundur segist ekki hafa fengið nein svör. Hafnarfjarðarbær hefur krafist frestunar á réttaráhrifum úrskurðar nefndarinnar og telur að samræmi hafi vantað. Laufblöðin Margrét vildi minna fólk á að halda gangstéttum hreinun fyrir utan hjá sér. Segist hún hafa þurft að vaða gömul laufblöð og greinar á gangstétt við stórt einbýlishús við Mávahraun. Engin hemja væri að fólk skildi eftir afklippur á gangstígum.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.