Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 28.02.2013, Blaðsíða 11

Fjarðarpósturinn - 28.02.2013, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11 Fimmtudagur 28. febrúar 2013 Í 6 ár hef ég búið stutt frá Tjarn­ arvöllum og alltaf fundist gam an að versla þar. Þarna er Apó tek Hafnarfjarðar, með ódýr lyf og aðrar vörur á góðu verði og mjög persónulega þjónustu. Þar er líka ágætis bakarí og með ágæta þjón­ ustu og vöruúrval bak aría. Besta Servida er tiltölu lega nýflutt að Tjarnarvöllum og selur alls kyns vörur, bæði til hreingerninga og annars. Og Bón us er þarna líka, Ég er farin að kannast við fasta­ kjarnann sem vinnur þar, ágætis fólk og lipurt í afgreiðsl unni. En það sem mér finnst skemmti legast er að sjá að Grill­ höllin hefur ráðist í algerar end ur­ bætur á sínu húsnæði til að gera staðinn meira aðlaðandi fyr ir við­ skipavini. Þar ráða ríkjum indæl hjón, þau Guðbjörg og Þór ar inn sem láta sér annt um versl un sína. Í Grillhöllinni má fá fjöl breyttan matseðil af grill­inu og auk þess pylsur, ís, sælgæti, blöð in, og fleira. Þar er líka heil mikið úrval af DVD myndum til útleigu. Til að gera staðinn hlý legri og notalegri hafa hjónin kom ið upp borðum og stólum á björtum, þægilegum stað í Grill höllinni. Þar er hægt að sitja og spjalla yfir mat og öðru góðgæti sem hægt er að versla hjá þeim. Eða bara fá sér kaffi og velja úr dvd diskum og tala saman. Einnig er hægt að kaupa t.d. kaffi og aðrar vörur sem fólk vantar eftir að Bónus lokar. Mér finnst breytingin á Grillhöllinni gera það að verkum að staðurinn er enn meira að laðandi fyrir vikið. Það er hlý­ legt og rólegt innan dyra, þjón­ ustan góð og per sónuleg. Ég óska þeim Guðbjörgu og Þór arni til hamingju með árang­ urinn. Og vona að ég sjái mynd frá breytingunni í Grillhöllinni í næsta blaði Fjarðarpóstsins. Það er alltaf gaman að sjá myndir úr sínu hverfi. Myndir af upp­ byggingu og jákvæðu bjartsýnu fólki. Það er ekki á hverjum degi sem hjón leggja á sig kostnað við að gera góðan stað enn betri fyrir viðskipavini sína, eins og tím arn ir eru núna, en það er auð sjáanlegt að allir sem versla þar kunna að meta framlagið. Og það að hjónin vilja að öðrum líði vel í verslun þeirra sýnir bara hve vænt þeim sjálfum þykir um stað inn sinn. Væntumþykja, hlýja og persónu­ leg þjónusta laðar að, og síðast en ekki síst brosin. Það sem ég sé æ oftar á Tjarn ar­ völlum eru brosandi viðskipa vinir og vingjanlegt afgreiðslu fólk, og ég sé líka oftar að fólk fer af slapp­ að að versla og heilsar öðrum brosandi. Eru það ekki með mæli? Íbúi á Bjarkarvöllum. Íþróttir Handbolti: 28. feb. kl. 19.30, Kaplakriki FH - Afturelding úrvalsdeild karla 28. feb. kl. 19.30, Ásvellir Haukar - HK úrvalsdeild karla 2. mars kl. 13.30, Varmá Haukar ­ Afturelding úrvalsdeild kvenna 2. mars kl. 13.30, Seltj.nes Grótta ­ FH úrvalsdeild kvenna Körfubolti: 1. mars kl. 19.15, Ásvellir Haukar - Augnablik 1. deild karla 2. mars kl. 16.30, Ásvellir Haukar - Snæfell úrvalsdeild kvenna 6. mars kl. 19.15, Hlíðarendi Valur ­ Haukar úrvalsdeild kvenna handbolti úrslit: Konur: FH ­ Valur: 23­32 Haukar ­ ÍBV: 23­28 Karlar: Afturelding ­ Haukar: 13­16 Akureyri ­ FH: 29­24 Haukar ­ Akureyri: 24­20 FH ­ ÍR: 29­24 körfubolti úrslit: Konur: Njarðvík ­ Haukar: (miðv.d.) Haukar ­ Keflavík: 67­58 Karlar: Valur ­ Haukar: 59­89 Frá 2008 hefur sorpgjald í Hafnarfirði hækkað um 85,8%, lóðarleiga og fráveitugjald um 59,2%, fasteignaskattur um 38,8% og vatnsgjald um 1,4%. Samtals hafa fasteignagjöld af 212 m² einbýlishúsi í Setbergi hækkað á þessum tíma um 40,6% en á sama tíma hefur fasteignamat þess aðeins hækkað um 11%. Hilmar Ragnarsson, íbúi við Lyngberg segist ekki geta lengur orða bundist. Á þessum fimm árum hafa fasteignagjöldin hækkað um 105 þúsund krónur! Segir hann skattpíningu þessa ágæta bæjarfélags okkar líklega í sögulegu hámarki með útsvars prósentuna í hámarki og segir þetta vekja áhuga sinn á að flytja sig um set, norður fyrir Setbergið þar sem gjöldn eru lægri. Hækkun umfram hækkun fasteignamats Sorpgjald +74,8% Lóðarleiga +48,2% Fráveitugjald +48,2% Fasteignaskattur +27,8% Vatnsskattur ­9,6% Samtals gjöld +29,6% Gjaldskrá Fasteignaskattur: 0,30% Lóðarleiga: 0,40% Fráveitugjald: 0,195% Vatnsgjald: 0,105% Sorphirðugjald: 24.158 kr. 0,0% 20,0% 40,0% 60,0% 80,0% 100,0% 120,0% 140,0% 160,0% 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Fasteignamat Fasteignaskattur Fasteignagjöld samtals Heimilislegt að versla á Tjarnarvöllum 80% 90% 100% 110% 120% 130% 140% 150% 160% 170% 180% 190% 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Fasteignamat Fasteignaskattur Lóðarleiga Fráveitugjald Vatnsgjald Sorpgjald Samtals gjöld: Á meðan fasteignamat hefur hækkað um 11% hefur fasteignaskattur hækkað um 38,8% Á fimm árum hafa fasteignagjöld hækkað um allt að 86% Hér sést vel munurinn á breytingu gjaldanna, því brattari sem línan er því meiri hlutfallsleg hækkun. 1983-2013 ..bæjarblaðið í Hafnarfirði Hafnfirska fréttablaðið

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.