Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 28.02.2013, Blaðsíða 6

Fjarðarpósturinn - 28.02.2013, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 28. febrúar 2013 Kökubasar. Kvennakór Hafnarfjarðar verður með kökubasar í Samkaupum við Miðvang föstudaginn 01. mars, frá kl. 13.00 Tertur, brauðtertur, heitir réttir, pönnukökur og margt fleira. Komið og gerið góð kaup. Kvennakór Hafnarfjarðar Hafnsögumaður Hafnarfjarðarhöfn óskar að ráða hafnsögu- mann frá og með 1. maí eða fyrr ef um semst. Starfið felst í leiðsögu skipa á hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar, skipstjórn hafnarbáta ásamt öðrum almennum störfum við Hafnar- fjarðarhöfn svo sem móttöku skipa, vigtun, siglingavernd og öðrum tilfallandi störfum. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði: • Hafa skipstjórnarréttindi – CB (2. stigs skipstjórnarnám) • Hafa reynslu af stjórnun farmskipa • Hafa sótt slysavarnarskóla sjómanna • Hafi góða kunnáttu í íslensku og ensku • Hafi góða tölvukunnáttu Hafnarfjarðarhöfn er með starfsemi í Hafnarfirði og Straumsvík Unnið er á hefðbundnum dagvinnutíma ásamt því að vera á bakvöktum og þá að svara viðskiptavinum hafnarinnar í síma á nóttu sem og á helgidögum. Umsóknir skal senda: Hafnarfjarðarhöfn Óseyrarbraut 4, 220 Hafnarfirði, eða með tölvupósti á netfangið hofnin@hafnarfjordur. is merkt HAFNSÖGUMAÐUR fyrir 16. mars nk. Þar sem í gildi eru ákvæði laga um siglingavernd skal sakavottorð fylgja umsókn. Nánari upplýsingar gefur yfirhafnsögumaður í síma 414 2300. Hafnarvörður Hafnarfjarðarhöfn óskar að ráða hafnarvörð frá og með 1. maí eða fyrr ef um semst. Starfið felst í almennri hafnarvinnu, móttöku skipa, afgreiðslu vatns og rafmagns til skipa, vigtun, skráningum í Gaflinn, siglingavernd, og öðrum tilfallandi störfum. • Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði: • Hafi góða kunnáttu í íslensku og ensku • Hafi góða tölvukunnáttu Hafnarfjarðarhöfn er með starfsemi í Hafnarfirði og Straumsvík Unnið er á hefðbundnum dagvinnutíma ásamt því að vera á vöktum eða bakvöktum og þar með talin útköll á nóttu sem og á helgidögum. Umsóknir skal senda: Hafnarfjarðarhöfn Óseyrarbraut 4, 220 Hafnarfirði, eða með tölvupósti á netfangið hofnin@hafnarfjordur. is merkt HAFNARVÖRÐUR fyrir 16. mars nk. Þar sem í gildi eru ákvæði laga um siglingavernd skal sakavottorð fylgja umsókn. Nánari upplýsingar gefur yfirhafnsögumaður í síma 414 2300. CrossFit Hafnarfjörður hefur flutt starfsemi sína af Mela­ brautinni í glæsilegt húsnæði að Hvaleyrarbraut 41. Þar er tölu­ vert meira rými og frábær aðstaða að sögn Helgu Guð­ mundsdóttur framkvæmda­ stjóra. Iðkendur CFH mættu á flutningsdegi og lögðu fram aðstoð sína við flutningana. Nýja húsnæðið er ekki nema um 700 metrum frá því gamla og því voru farnar nokkrar ferðir fótgangandi með ketil­ bjöllur, lóð, sleða og ýmislegt annað sem tilheyrir CrossFit. Góð stemmning var og allir glaðir að hjálpast að. Eftir flutn­ ingana gat fólk slakað á í heita pottinum á staðnum og hvílt lúin bein. „Þarna ríkir líka mikil liðsheild, mjög góður andi og er nýju fólki tekið með opnum örmum í þetta skemmtilega samfélag“, segir Helga. Í nýja húsnæðinu er allt glænýtt, gúmmígólfefni í saln­ um, nýjar upphífingar grindur, nýjar stangir og allt til alls. Þar verður svo boðið uppá barna­ gæslu í náinni framtíð. CrossFit Hafnarfjörður býður uppá topp þjálfun þar sem iðkendur á öllum getustigum fá leiðsögn frá frábærum þjálf­ urum eftir sinni getu. Fólk er mjög mismunandi en CrossFit hentar flestum því það er auð­ velt að finna lausnir og skala­ æfingarnar á getustig hvers og eins. Á laugardaginn næsta mun CrossFit Hafnarfjörður vera með opið hús kl. 12­16 þar sem allir eru velkomnir að koma og skoða aðstæður eða jafnvel prófa að taka í lóðin. Ný grunn­ námskeið hefjast þar svo mánu­ daginn 4. mars og opn unar­ tilboð eru á öllum nám skeiðum hjá þeim. Allar frekari upplýsingar eru á heimasíðu þeirra www.cfh.is og á Facebook. Með ketilbjöllur og lóð á gangi CrossFit Hafnarfjörður í nýtt glæsilegt húsnæði Íþróttafólkið lét rigningu ekki hamla för með ketilbjöllurnar. Ánægður vinnuhópur á nýja staðnum. Á 82 km hraða á Strand götu Ökmenn óku að jafnaði á 25% yfir hámarkshraða Brot 26 ökumanna voru mynd­ uð á Strandgötu sl. fimmtudag. Fylgst var með öku tækjum sem var ekið Strand götu í norðurátt, undir Vesturhamrinum. Á einni klukk ustund, eftir hádegi, fóru 530 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir af skipta­ hraða. Meðalhraði hinna brot­ legu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82. Styrkur til vinabæja­ samstarfs Bæjarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að veita 250 þús. kr. styrk til Norræna félagsins í Hafnarfirði vegna þátttöku á vinabæjarmóti í Hämmeenlinna í Finnlandi í sumar. 16 millj. kr. afskrifaðar Bæjarráð samþykkti 21. febr­ úar sl. að afskrifa óinn heimt an­ legar kröfur ársins 2012, sam­ tals að upphæð 15.936.732 kr. Vanskil inn­ heimt af Motus Fjármálastjóri hefur kynnt samstarf við Motus ehf um van­ skilainnheimtu fyrir Hafn­ arfjarð ar bæ. Ekki eru gerðar breyt ingar á núverandi inn­ heimtuferli að skv. fundargerð. Í mál við ríkið Þann 4. mars verður aðal­ meðferð í héraðsdómi Reykja­ víkur í máli Hafnar fjarð ar bæjar gegn íslenska ríkinu þar sem krafist er ógildingar á stjórn­ valds ákvörðun um álagningu fjármagnstekjuskatts sem kom til vegna sölu á hlut Hafnar­ fjarð ar í HS til OR.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.