Fjarðarpósturinn - 04.04.2013, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. apríl 2013
Fyrir rúmum fjórum árum fór
þjóðfélagið á hliðina. Við gættum
ekki að okkur og steyttum á skeri
með hörmulegum afleiðingum.
Mörg okkar sjá ekki enn fram úr
brimsköflunum. Margir hafa
misst allt sitt, vinnuna, húsnæðið
og jafnvel lífsföru naut
inn. Og órétt lætið
svíður. Öll berum við
einhverja ábyrgð. Þó
voru það bara örfáir
sem áttu beinan þátt í
að setja Ísland á haus
inn. En gleymum ekki
hverjir það voru. Glæp
ur okkar hinna var að
treysta og trúa þegar
við hefðum átt að
spyrja gagn rýn inna spurninga.
Við treyst um stjórnvöldum. Við
treyst um bönkunum, fjölmiðl
unum og fræðimönnunum. Við
trúðum lygunum.
Þegar allt hrundi ákvað ég að
gera allt sem í mínu valdi stæði til
að laga Ísland. Síðustu fjögur ár
hef ég starfað fyrir þjóðina á
Alþingi og reynt að vanda mig.
Dögun, ný stjórnmálasamtök
munu bjóða fram í komandi
Al þingiskosningum. Meðal
helstu stefnumála okkar eru
aðgerðir til handa heimilum
lands ins. Leysa verður skulda
vanda þeirra með róttækum hætti
og bæta aðstöðumun almennings
gagnvart fjármálavaldinu. Leita
skal lausna á forsendum lántak
andans frekar en lánveitandans.
Við viljum tafarlaust afnám verð
tryggingar á neytendalánum og
almenna leiðréttingu hús næðis
lána. Þá viljum við að lágmarks
framfærsluviðmið verði lögfest
og að vextir í landinu verði hóf
legir. Og það er hægt, það sem er
ekki hægt er að búa við
óbreytt ástand.
Við viljum líka lýð
ræð is umbætur. Nú gild
andi stjórnarskrá var
skrif uð fyrir 19. ald ar
Dani. Við erum 21. ald
ar Íslendingar og okk ur
skortir sam félags sátt
mála sem kveð ur á um
réttindi okk ar og skyld
ur stjórn valda.
Og viljum breytta og sann
gjarn ari skipan auðlindamála.
Orkufyrirtæki eiga að vera í eigu
hins opinbera og arðurinn af auð
lindunum á að renna í sameig
inlega sjóði okkar allra. Stokka
þarf upp skipan fiskveiða og
tryggja atvinnufrelsi í grein inni.
Dögun hefur á að skipa frábæru
fólki í öll sæti sem málefni
al mennings brenna á sem hefur
hugrekki og þor til að breyta. Við
viljum búa í réttlátu samfélagi,
lausu við spillingu og við ætlum
að byggja það saman. Nánari
upplýsingar um frambjóðendur
og stefnumálin er að finna á
www.xt.is.
Höfundur er í 1. sæti á lista
Dögunar í SV-kjördæmi
Af hverju Dögun?
Margrét
Tryggvadóttir
Kæri kjósandi.
Það sem hefur dregið mest úr
lífskjörum Íslendinga á undan
förnum fjórum árum eru hinar
miklu skattahækkanir, sem eru
orðnar á annað hundrað
á kjörtímabilinu. Eitt
aðalkosningamál Sjálf
stæðisflokksins er
lækk un skatta. En þá er
spurt hvernig ætlið þið
að lækka skatta og þar
með tapar ríkissjóður
peningum? Svarið er,
að tekjutapið er aðeins
til skamms tíma, en til
langs tíma eykst verð
mætasköpun og um leið skatt
stofninn, svo að tekjur ríkisins
hækka þrátt fyrir lækkun skatta.
Þetta hefur margsannast víða um
heim.
Fyrir tæpum fimm árum varð
hér efnahagshrun sem er eitt
mesta áfall sem þjóðfélag okkar
hefur nokkru sinni orðið fyrir.
Við sem þjóð verðum að ná sátt
og sameiningu á ný. Sjálf stæðis
flokkurinn var við völd þegar
hrunið átti sér stað og í ríkisstjórn
með Samfylkingunni. Sjálf
stæðisflokkurinn ber að
sjálfsögðu ríka ábyrgð
En meginábyrgðina
bera áhættufjárfestar,
bankastjórar, lykilmenn
í bankakerfinu, for
stjór ar fyrirtækja og
aðrir þeir sem gerðu sér
leik að því að svíkja
sam félagið okkar í
tryggðum.
Eftir slíkt áfall ríkir
reiði meðal fólks, sem meðal
ann ars kemur fram í óvæginni
umræðu og mikilli neikvæði. En
það er svo miklu fleira sem sam
einar okkur en sundrar. Það fann
ég vel þegar ég grillaði ham
borgara handa áhorfendum á leik
FH og Fram í Kaplakrika á dög
unum. Þennan gleði og keppnis
anda á þjóðin að virkja og láti
reiðina víkja.
En til þess að slíkt geti orðið
verða kjörin að batna. Það er því
miður ekki í spilunum ef ekki
verður breyting í næstu kosn
ingum. Í hagkerfinu er lítill sem
enginn vöxtur. Skattar eru alltof
háir, eins og áður segir, hér er
meiri fátækt en menn hafa séð
um árabil, kjör öryrkja og ellilíf
eyrisþega hafa verið stórlega
skert. Landspítali háskóla sjúkra
hús er kominn að fótum fram í
rekstri, og þar vantar lífnauð
synleg tæki. Íbúar í Hafnarfirði
hafa tekið höndum saman til að
verja Sólvang, þá frábæru og
mikilvægu heilbrigðisstofnun.
Við erum að verða annars flokks
ríki. Látum það ekki henda og
kjósum Sjálfstæðisflokkinn 27.
apríl.
Höfundur skipar 5. sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í
SV-kjördæmi.
Látum reiðina víkja fyrir gleðinni
Elín
Hirst
Sörlafélagar bjóða heim í
tilefni Hestadaga í Reykjavík á
morgun, föstudag.
Reiðhöll Sörla verður opin kl.
1719 og þau hesthús Sörla
félaga sem verða opin verða
merkt með blöðrum.
Boðið verður upp á kjötsúpu,
kaffi og svala í Reiðhöll Sörla
og teymt verður undir krökkum
kl. 1718.
Hafnfirðingar og aðrir eru
hvattir til að mæta og kynna sér
starfsemi sem fram fer í Hesta
mannafélaginu Sörla, fá sér
kjötsúpu og leyfa börnunum að
fara á hestbak.
Blöðrum merkt hesthús
Sörlafélagar bjóða heim á morgun
Fyrirtækjum í Hafnarfirði og Stykkishólmi
býðst að taka þátt í endurvakningu á Hansa
viðskipta bandalaginu í Herford í Þýskalandi
daganna 12. til 13. júní næstkomandi.
Áhugasamir geta haft samband við Ásbjörgu Unu
Björnsdóttur á skrifstofu menningar- og ferðamála
á netfangið asbjorguna@hafnarfjordur.is eða í
síma 585 5776 . Einnig er hægt að fara á vefinn
www.hansabusiness.com og haft beint samband
við skipuleggjendur.
Viltu taka Þátt í HanSa
ViðSkiptabandalaginu?
Viðgerðir fyrir öll tryggingafélög
Suðurhrauni 2 Garðabæ • sími 554 4060 • versus@simnet.is
Undanfarnar vikur hafa farið
fram tökur á stuttmynd hér í bæ
um uppvakninga en það eru
krakkar úr félagsmiðstöðinni
Mús ík og Mótor í samstarfi við
leik listaráfanga í Flensborgar
skólanum sem gera myndina.
,,Þetta eru búinn að vera æðis
legur tími og það hefur verið
frá bært að vera hluti af þessari
skemmtilegu mynd, þrátt fyrir
langa töku daga og hversu kalt
það var stundum að standa úti í
miklu frosti og leika“ segir Krist
björg Víðisdóttir, en hún leikur
eitt af aðal hlutverkunum. Mynd
in fjallar um fimm krakka sem
vakna upp við þann hrylling að
skoll inn er á zombí heimsendir
en í stað þess að láta deigan síga
ákveða þau að láta drauma sína
rætast áður en þau verða étin eða
breytast í uppvakninga. „Boð
skapur myndarinnar er að maður
verður að halda áfram að berjast
og vinna að draumum sínum
þang að til yfir líkur, en myndin
heitir einmitt Allt til enda,“ segir
Kristbjörg.
Bæjarbúar ráku sumir upp stór
augu er þeir sáu ófrýnilega upp
vakninga arka um göturnar í
vet ur en tökur á myndinni fóru
fram víðsvegar um Hafnarfjörð,
m.a á St. Jósefsspítala, í kirkju
garð inum, Hellisgerði og niðri
við höfn. Ýmis fyrirtæki og félög
hafa stutt við bakið á verkefninu
en þar má meðal annars nefna
Tæki.is, Elko og Fimleikafélagið
Björk.
„Evrópa unga fólksins“ styrkti
kvikmyndaverkefni Músík og
Mótor og hafa krakkarnir í
félags miðstöðinni unnið hörðum
höndum síðustu mánuðina að
læra allt sem tengist kvikmynda
gerð, s.s að búa til gervi, kvik
mynda, nota ýmsan tækjabúnað,
klippa, gera alls konar tækni
brellur og fleira. Allt til enda er
síðan lokahnykkurinn á verk
efninu.
,,Við lærðum mjög mikið af
því að gera þessa mynd, heldur
Kristbjörg áfram. Nú veit ég t.d
hvernig maður býr til gerviblóð
og svo lærði ég ýmsa tækni við
að slást í bardaga atriði án þess
að skaða neinn. Í einu atriðinu
þurfti ég til dæmis að berja mann
í hausinn með glerflösku. Flask
an var búin til úr sykri og leit
alveg eins út og alvöru flaska og
það kom alvöru brothljóð frá
henni og allt en munurinn er að
það er ekkert vont að fá hana í
haus inn ef maður lemur á réttan
stað. Þetta er heilmikil spennu
mynd og við notum m.a mótor
cross hjól og hjólum á uppvakn
ing svo hann kastast aftur á bak,
við keyrum líka yfir haus á upp
vakningi svo hann springur og
svo er hellingur af slags málum,
en líka ást og vinátta.“
Ljóst þykir að myndin er ekki
fyrir viðkvæma og að von er á
spennu og hryllingi frá ungum
áköfum kvikmyndagerðar mönn
um á hvíta tjaldið nú í vor.
Stuttmynd um uppvakninga
Tekin upp á ýmsum stöðum í Hafnarfirði
Kristbjörg Víðisdóttir