Fjarðarpósturinn - 20.06.2013, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. júní 2013
Tómstundaklúbburinn í Setbergi er ætlaður
börnum með sérþarfir á aldrinum 9 - 12 ára
(f. 2000 - 2003).
Boðið er uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá
þar sem hver vika hefur sitt þema.
Nánari upplýsingar er að finna inná sumarvef ÍTH;
www.tomstund.is undir flipanum sumarvefur.
Upplýsingar veitir starfsfólk Tómstundaklúbbsins í
síma 664 5522.
TómSTundaklúbburinn
í SeTbergi
Hafnarfjarðarmeistari í
DORGVEIÐI
Þriðjudaginn 25. júní
stendur íþrótta- og tómstundanefnd
Hafnarfjarðar fyrir dorgveiðikeppni
við Flensborgarbryggju
Keppnin er ætluð börnum á aldrinum 6-12 ára og eru allir á þeim aldri
velkomnir og hvattir til að taka þátt.
Hægt verður að fá beitu og veiðarfæri á keppnisstað.
Verðlaun verða veitt fyrir flestu fiskana, stærsta fiskinn og furðufisk.
Veiðibúðin við lækinn gefur glæsileg verðlaun.
Siglingaklúbburinn Þytur sér um öryggisgæslu á sjónum.
Keppnin fer fram á milli kl. 13.30 og 15.
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
. L
jó
sm
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Hafnfirska sundfólkið stór
hluti af liði Íslands á nýliðnum
Smáþjóðaleikum, en SH átti sjö
af sextán keppendum. Þetta
voru þeir Hrafn Traustason,
Kolbeinn Hrafnkelsson, Aron
Örn Stefánsson, Arnór Stefáns
son, Hrafnhildur Lúthersdóttir,
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir og
Karen Sif Vilhjálmsdóttir.
Leikarnir voru haldnir að þessu
sinni í Luxembourg dagana 27.
maí til 1. júní en næst verða þeir
á Íslandi. Hafnfirska sundfólkið
var sigursælt og fékk samtals 6
gull, 6 silfur og 4 brons, að
meðtöldu boð sundi. Að auki
sigraði Hrafnhildur fjórðu
leikana í röð í 100 m og 200 m
bringusundi og setti mótsmet í
200 m bringusundi og 200 m
fjórsundi. Stelpurnar þrjár settu
mótsmet í þeim boðsundum
sem þær syntu.
Liðið var hlutfallslega ungt
og má því segja að framtíðin sé
björt hjá sundfólki bæjarins og
stefnir allt í það að á næstu
leikum verði enn stærri hópur
úr SH.
SH-ingar áberandi á Smáþjóða leikunum
Sjö af sextán keppendum Íslands í sundi
SH-ingarnir Arnór, Ingibjörg Kristín, Hrafn, Karen Sif, Kolbeinn, Hrafnhildur og Aron Örn. Á aðalfundi Skólameistara
félags Íslands sem haldinn var á
Akureyri 4. júní sl. var Ársæll
Guð mundsson, skólameistari
Iðnskólans í Hafnarfirði kjörinn
nýr formaður. Hann tekur við af
Valgerði Gunnarsdóttur fráfar
andi skólameistara Framhalds
skólans á Laugum í Þingeyjar
sýslu, sem verið hefur formaður
Skólameistarafélagsins frá
ár inu 2009, en hún hefur verið í
stjórn félagsins alls í ein þrettán
ár. Valgerður var kjörin á
Alþingi fyrir Sjálfstæðis flokk
inn í Norðausturkjördæmi í síð
ustu Alþingiskosningum og
hef ur því látið af störfum sem
skólameistari.
Minna fé til framhaldsskóla
og laun kennara dragast
aftur úr
Á aðalfundinum komu fram
miklar áhyggjur skólameistara
af stöðu mála í framhaldsskólum
landsins. Frá árinu 2007 hafa
fjárframlög til reksturs fram
haldsskólanna dregist saman
sem nemur 12 milljörðum
króna. Nú er svo komið að
fæst ir framhaldsskólar ná end
um saman, lítið er endurnýjað
af tækjabúnaði, námshópar
mjög fjölmennir og yfirvinnu er
haldið í lágmarki. Einnig hafa
skólameistarar verulegar
áhyggj ur af launaþróun kennara
en vegna þess hversu mjög þeir
hafa dregist aftur úr viðmiðunar
stéttum verður æ erfiðara að
manna kennarastöður. Einnig er
kennarastéttin að eldast og
stefnir í mikið óefni innan tíu
ára ef ekki verður veruleg
breyt ing á kjörum kennara
almennt. „Í því samhengi er
einnig nauðsynlegt að skoða
vinnutímaramma kennara sem
og starfstíma skóla“, segir
Ársæll Guðmundsson, nýkjör
inn formaður Skólameistara
félags Íslands.
Ársæll formaður
Skólameistarafélagsins
Ársæll Guðmundsson,
skólameistari Iðnskólans.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Þrengingar á Strandgötu
Unnið er að gerð húsagötu til að leysa bílastæðavandamál íbúa við Strand-
götu sunnan Drafnar og á meðan er ekkert rými fyrir gangandi vegfarendur.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n