Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 12

Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 12
■ ■ ■ FÉLAGSMÁL Könnun á viðhorfum félagsmanna Markaðs- fyrirtœkið Lausnir ehf. gerði nýlega könnun nteðal félaga FBM að beiðni stjórnar félagsins. Verkið var unnið seinni hluta desember 1995 og í byrjun janúar 1996. Hringt var í félagsmenn og tekin við þá stutt viðtöl, sem byggðust einkuni á opnum spurningum. Könnunin beindist að ímynd FBM, þjónust- unni á skrifstof- unni, félags- starfinu, upplýsingum, samningamálum, menntamálum og félagsaðild. METHÚSALEM ÞÓRISSON VERKEFNISSTJ. Markmið könnunarinnar var að draga fram það sem betur má fara til að hægt sé að lagfæra það, en jafnframt að greina jákvæða þætti sem hægt er að byggja á í því starfi sem er framundan. Tekið var slembiúrtak úr félaga- skrá og talað við eitt hundrað manns. Gerð var ýtarleg skýrsla um nið- urstöður könnunarinnar þar sem fram komu ýmis ummæli.Hér á eftir eru settar fram helstu niður- stöður með súlu- og skífuritum og nokkrar ályktanir og ábendingar um þætti sem þarfnast úrbóta. Viðhorfskönnunin veitir upplýs- ingar sem nýta má sem grundvöll að umbótum í starfi félagsins og stefnumörkun. ímynd Flestir telja að samstaðan sé helsti styrkur félagsins. Um það bil sjötti hluti þeirra sem tjá sig um styrkleik- ann telja félagið engan styrk hafa. Veiku hliðarnar eru einkum taldar vera kjarabaráttan svo og gagn- kvæmt áhuga- og tengslaleysi for- ystumanna og félagsmanna. Margir þeirra sem bentu á veika stöðu og tengslaleysi innan félagsins tóku jafnframt fram að þetta ætti við um verkalýðshreyfinguna alla. Þjónustan Yfirleitt létu félagsmenn í ljós ánægju með þjónustuna á skrifstof- unni og samskiptin við starfsmenn. Þó er vert að gefa ábendingum og athugasemdum gaum sem fram koma um þessa þætti, því í þeim kann að liggja lykillinn að bættum tengslum við félagsmenn. Félagsstarfið Mjög fáir leita til trúnaðarmanna og þau viðhorf koma fram að staða trúnaðarmanna sé veik gagnvart vinnuveitendum. Um þriðjungur þeirra sem tjáðu sig sagðist hafa mætt á fundi á ein- hverjum tíma. Útskýringar á lélegri fundarsókn voru einkum að fundim- ir væru ekki áhugaverðir m.a. vegna I ímynd félagsins flverfinnst þér vera Uelsti styrkur Félags Bókagerðarmanna? þjónustan, 17% sanrstaftan, 40% cnginn styrkur, 17% 46% gáfu svör 54% gátu ekki svaraö 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 Hver finnst þér vera helsti styrkur Félags bókagerðartnanna? staða fagnianna, 8% stjórnin, 12% tengslaleysi, 26% 61% gáfu svör annað, 13% kjaraharáttan, 26% 39% gátu ekki svaraö II Þjónustan Hver er reynsla þín af þjónustu FBM? Hvernig líkarþér viðmót starfsmanna? III Félagsstarfið Veist þú hver er trúnaðarmaður eða öryggistrúnaðarmaður á þínum vinnustað? 69% Leitarðu til hans með úrlausn þinna mála? 77% Mœtir þú á félagsfundi? 65% Hvers vegna ekki? tímaleysi. 13% leiðinlcRÍr - ihugalcysi. 62% upplýMngaskonur. Ks. Hefurþú nýtt þcr orlofsaðstöðu félagsins í Miðdal? 61% 1 2 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.