Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 14

Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 14
■ ■■ RITHOFUNDURINN Þrjú minningarbrot um jafnmarga prentara 1. I fyrsta sinn er ég kom með eigið bókverk í prentsmiðju var Oddi staðsettur vestur á Bræðraborgarstíg og þangað hélt ég haustið 1979 ásamt félaga mínum Sigfúsi Bjart- marssyni. Við vorum hvor með sitt handritið að ljóðabók, og vildum fá um þær virðulegri umgjörð en þá tíðkaðist frá íjölritunarstofunum, en kontaktmaður okkar í Odda var Þórleifur V (fimmti) Friðriksson, bróðir Friðriks Þórs, en eðalbornu handverki hinna göfugu prentmeist- ara Oddans höfðum við kynnst í gegnum samstarf um útgáfu tímarits- ins Svart á hvítu, sem gefið var út af galleríi sem var til húsa í gömlu ætt- aróðali þeirra Þórleifs og Friðriks við EIN A R Suðurgötu 7. Við ljóðskáldin ungu KARASON þurftum að arka á fund einhvers aðal- séffans í prentsmiðjunni til að ræða um verð og greiðsluskilmála. Við gengum inn bónaða ganga prent- smiðjunnar, en það var reyndar lítið líf í tuskunum hússins vegna þess að þá stóð yfir verkfall Grafíska sveina- félagsins. Við vorum lalhræddir um að við kynnum ekki að tala við svo virðulegan mann sem prentsmiðju- eiganda, en fundum þó strax að við vorum á heimavelli þegar ungur snaggaralegur maður tók á móti okk- ur á forstjóraskrifstofunni og sagði: - Það er ekkert mál að prenta þetta fyrir ykkur strákar, það er að segja ef þessir pomógrafísku sveinar hætta einhvemtíma í verkfallinu. 2. Fjómm ámm seinna átti að prenta aðra skáldsögu mína, en hún hét „Þar sem djöflaeyjan rfs“ og hef- ur spákellinguna Karolínu í.miðju söguheimsins. Það var og er enn hálfopinbert leyndarmál að umrædd skáldsagnapersóna átti sér fyrirmynd í Jósefínu heitinni frá Nauthól sem mikinn hluta aldarinnar var þekkt hér í bænum fyrir spádóma auk þess sem fór af henni orð fyrir galdra og kukl. Bókin var send í litlu prentsmiðju sem hét Prentrún, og kom á daginn að stjórinn þar kannaðist við áður- nefnda galdrakonu og hafði á orði að það gæti verið varasamt að taka svona rit til prentunar. Enda var það einsog við manninn mælt að upp- hófst hinn hrikalegasti hrakfallabálk- ur; margoft eyðilagðist allt prentupp- lagið, kápan fór aftur og aftur í fisk, vélar biluðu, og þrautreyndir fag- menn fóru að gera sig seka um fárán- legustu byrjendamistök, einsog einu sinni þegar einhver áætlaði þykkt bókarinnar útfrá rétt reiknuðum arka- fjölda, en gekk út frá því að það væm 64 síður í örkinni, og útkoman varð sú að letrið á kilinum flæddi langt út á bæði forsíðu og baksíðu. Bæði und- irritaður höfundur og sömuleiðis út- gefendur vom orðnir órólegir yfir því hvað prentunin ætlaði að tefjast, en loks tilkynnti prentsmiðjustjórinn að nú væri búið að leiðrétta öll mistök og koma í veg fyrir hugsanlegar bil- anir, bókin yrði tilbúin eftir tvo daga. Sem að sjálfsögðu ekki stóðst, því að lykilmaðurinn í prentferlinu lagðist í rúmið af skæðum sjúkdómi þegar átti að hefjast handa, og á endanum báð- ust þeir góðu Prentrúnarmenn undan því að þurfa að prenta meira af svona svartagaldursskræðum. 3. Veturinn eftir þetta djöflaeyj- arævintýri var ég kominn í vinnu við jámabindingar ásamt nokkrum harð- snúnurn aðilum, þar voru fremstir í flokki Þormar nokkur Þorkelsson einn helsti stofnandi bifhjólaflokks- ins Sniglanna, og Ijóðskáldið Sigfús Bjartmarsson sem áður er nefndur. Þetta var um hávetur og uppgangur í samfélaginu, byggingaframkvæmdir um allar jarðir. Járnaflokkurinn sem ég tilheyrði var jafnan með nokkur verk í takinu og var farið á milli ný- bygginga og unnið í akkorði, og reið á að hafa gott samband við smiði og aðra iðnaðarmenn á svæðinu og sömuleiðis verktakana og húsbyggj- endurna sjálfa. Samstarfið var ekki alltaf fullt af eindrægni eða ástríki, menn kýttu og sendu tóninn, en oftast ríkti þó vopnaður friður. Þó var einn húsbyggjandi alveg að gera okkur gráhærða með samningshörku, frýj- unarorðum og hreinum útásetningum. Okkur fannst ekkert standast af því sem um var samið. meðal annars átt- um við að leggja í plötur og veggi uppá þriðju hæð, en þegar við kom- um á staðinn lá allur jámabingurinn niðrá plani tíu metrum neðar. Við urðum sáróánægðir og sögðumst ekki nenna að standa í því að handlanga mörg tonn þama upp. Húsbyggjand- inn pantaði þá risavaxinn krana sem kom og hífði upp allt jámið, en reikn- inginn fyrir kranann dró hann af þóknun okkar jámamanna, en það töldum við skýlaust brot á munn- legum samningum. Þessi samnings- harði húsbyggjandi var enginn annar en sjálfur G. Ben, og nýbyggingin var væntanlegt húsnæði prentsmiðj- unnar við Nýbýlaveg. Og hann var alveg konunglegur kallinn; vildi að við kæmum æðandi hvenær sem 1 4 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.