Prentarinn - 01.03.1998, Blaðsíða 3

Prentarinn - 01.03.1998, Blaðsíða 3
Félag bókagerðarmanna og Blaðamannafélag Islands gerðu samstarfssamning sín á milli á árinu 1987, en þar sagði m.a: Meginmarkmið þessa samnings er að efla samheldni og samstarf félaganna í hagsmunabaráttu þeirra og samningagerð og auka skilning og þekkingu félagsmanna á þeim verkþáttum sem snerta félagsmenn beggja félaganna. Einnig að tryggja sem best starfsréttindi og starfsaðstöðu félagsmanna og fjalla um það hvort ekki sé tímabært að hefja undirbúning að stofnun fjölmiðla- sambands. Á þeim tíma sagði formaður FBM: Hér er á ferðinni tilraunasamningur sem gefur fyrirheit um markvisst samstarf starfshópa sem vinna að sömu framleiðslu og eiga líkra hags- muna að gæta. Næstu árin var þó nokkurt samstarf í gangi, m.a. fóru fulltrúar beggja félaga á ráðstefnur er vörðuðu hagsmuni félaganna. Síðar varð samstarfið í lágmarki og lá síðan að mestu niðri. Hinn 21. febrúar 1996 var gerður nýr samstarfssamningur og voru þá grafískir teiknarar komnir til samstarfs. I samningi milli FBM, BÍ og FGT sagði m.a.: Félögin eru sammála um að auka sem kostur er samstarf og sam- vinnu félaganna í almennri hags- munagæslu, samningagerð og þjónustu við félagsmenn, og í síð- ustu málsgrein, að skoða mögu- leika á formlegu samstarfi með stofnun fjölmiðlasambands. í árs- byrjun 1998 ákváðu þessi félög að óska eftir viðræðum við Verslun- armannafélag Reykjavíkur, Raf- iðnaðarsambandið og Starfs- mannafélag Ríkisútvarpsins um það hvort þau hefðu áhuga á stofnun fjölmiðlasambands. í framhaldi var síðan gerður samn- ingur hinn 3. apríl 1998 þar sem þessi félög lýstu yfir vilja til að stofna fjölmiðlasamband. Og í þeim samningi sagði: Blaðamannafélag Islands, Félag bókagerðarmanna, Félag grafískra teiknara, Rafiðnaðarsamband ís- lands, Starfsmannasamtök Ríkis- útvarpsins og Verslunarmannafé- lag Reykjavíkur hafa ákveðið að stofna til formlegs samstarfs og samvinnu þessara félaga. Hlut- verk sambandsins er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra sem starfa með einum eða öðrum hætti við fjölmiðla eða fjölmiðlun. Sérstök áhersla verður lögð á samstarf og samráð um kjaramál, fagleg málefni, réttinda- mál, vinnuumhverfi, starfsmanna- stefnu, tæknimál, orlofsmál, heil- brigðismál, endurmenntun og áhrif starfsmanna á stjóm fjöl- miðla. Fjölmiðlasambandið mun leitast við að efla og glæða félags- enn hraðari í allri upplýsinga- tækni, er nauðsynlegt að hafa samstarf við önnur félög. Til að forðast átök á milli félaga og starfsgreina eigum við að vinna saman, margmiðlunarheimurinn er víðfeðmur og stór, þar eru rnörg störf og starfssvið sem skar- ast og ein höfum við takmarkað afl, en ef öll félögin bera gæfu til að standa saman er framtíðin björt. Við höfum séð það á síðustu árum að eigendur fjölmiðla (útvarp, sjónvarp, dagblöð) hafa verið að sameinast í stærri eining- 1! ,h\í i wm * BUIIMIIIIHfÉLM í S L A N D S anda og samheldni starfsmanna á fjölmiðlum. Þá mun sambandið koma fram á opinberum vettvangi sem sameiginlegur málsvari íjöl- miðlastarfsmanna. Einnig mun fjölmiðlasambandið sameina eins og kostur er þátttöku fulltrúa starfsmanna í norrænu og alþjóð- legu samstarfi. Stefnt er að form- legri stofnun fjölmiðlasambands á Fjölmiðlaþingi sem haldið verður á komandi hausti. Þar til munu of- angreind félög tilnefna fulltrúa í undirbúningsstjóm sem mun vinna að samstarfssamningi félag- anna og frekari undirbúningi að stofnun fjölmiðlasambands. I dag er staðan sú að vinnuhóp- ur félaganna hefur unnið að stofn- un fjölmiðlasambands af fullum krafti og hafa fjölmargir úr stjóm félaganna komið að því starfi. Stofnfundur íjölmiðlasambands verður 24. október 1998. Margir félagsmenn spyrja sig eflaust þeirrar spumingar hvers vegna verið sé að stofna fjölmiðlasam- band. Svarið er einfalt, í þeirri öm þróun sem orðið hefur og verður ar og ef við eigum að standast þeim snúning og geta eflt hag og kjör félagsmanna eigum við meiri möguleika í samstarfi. Komum fram sameinuð til viðræðna við atvinnurekendur. Nú er það undir okkur sjálfum komið hvemig til tekst og ekki síður þeim er veljast til forystu. prentarinn ■ MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA Ritnefnd Prentarans: Georg Páll Skúlason, ritstjóri og ábyrgðarmaður. Bjargey G. Gísladóttir Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Stefán Ólafsson Sævar Hólm Pétursson Fréttaskot og annað efni er vel þegið og eins óskir og ábend- ingar lesenda til ritnefndar. Leturgerðir í Prentaranum eru: Stone Sans, Times o.fl. Blaðið er prentað á mattan 135 g Ikonofix. Útlit og prentvinnsla: Prentþjónustan ehf • Gústa Prentun og frágangur: Grafík ehf. Forsíða Prentarans Alda Rögnvaldsdóttir, er hönnuður forsíðunnar. Hún starfarsem grafískur hönnuður í Plastprenti. Forsíðan varframlag hennar og Plastprents í forsíðu- samkeppni Prentarans 1998. PRENTARINN ■ 3

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.