Prentarinn - 01.03.1998, Side 5
Dagana 23.-27. september
sótti hópur úr prentibnab-
inum IPEX 98 í Birmingham
á Englandi. IPEX er ein af
stærri sýningum á tækjum
og tólum úr iðnaðinum
sem haldnar eru í heimin-
um. Á sýningunni eru
kynntar helstu nýjungar og
heilmikið af hjálpartækjum
sem fundin eru upp til að
betrumbæta vinnuaðstæð-
ur og auka afköst tækja-
búnaðar. Hópferðin var
skipulögð af Samtökum
iðnaðarins og fóru u.þ.b.
40 manns, þar af þrír frá
FBM, auk þess sem hátt í
annar eins hópur íslend-
inga úr prentiðnaðinum
sótti sýninguna.
Það sem einkennir svona sýningu
er að kynntar eru mjög góðar
vélar og frábær tæki til að gera allt
sem hugurinn gimist og miklu
meira tii en að einhver vandamál
fylgi þessum búnaði heyrir maður
ekki á minnst, þannig að taka þarf
mátulegt mark á því sem sagt er og
hafa í huga að um hreina og klára
sölumennsku er að ræða. Annað
sem maður tekur eftir er að verð-
miðar em ekki hengdir á vélamar
nema þær séu þá notaðar og tiltölu-
lega lítið spennandi í samanburði
við hinar sem em í sviðsljósinu.
A sýningunni fór mikið fyrir
stafrænu verkflæði sem er frá
upphafi til enda vinnslunnar og
tekið verður sérstaklega til
umfjöllunar í þessu blaði. Allir
helstu prentvélaframleiðendur,
s.s. Heidelberg, Man Roland,
König & Bauer, Mitsubishi og
Komori, kynntu prentvélar sem
hafa þessa tækni. Kynntar voru
8 lita vélar með viðsnúningi hjá
öllum og uppí 10 eininga (lita)
vél hjá Heidelberg.
Komori kynnti einnig vél sem
er hugsuð fyrir umbúðaprentun og
er með sjálfvirku ílagi og tvöföldu
frálagi. Þannig er hægt að láta
vélina snúast frá því að verkið
hefst og til enda þess án þess að
stoppa til að setja pappír í vélina
eða taka frá henni. Allt gerist
þetta á einskonar flæðilínu.
Þessir vélaframleiðendur leggja
mikla áherslu á að tengja saman
stafrænt prentunarferli og hraða
vélanna sem búið er að byggja
upp í gegnum árin. Takmarkið er
að gera undirbúningstíma fyrir
prentun sem allra stystan og ná
biðtíma milli verkefna og þurrk-
tíma út úr ferlinu.
Heidelberg byggir sína lausn á
CIP3 kerfi sem heldur utan um allt
ferlið. I forvinnslunni er undirbún-
ingur fyrir prentun unninn og þeg-
ar verkið kemur til prentunar eru
upplýsingar um það kallaðar upp
og vélin stillt skv. því, stillingar í
bókbandi eru einnig gerðar í þessu
kerfí, allt tölvustýrt. Prentvélin er
búin sjálfvirkri innstillingu, þvotta-
búnaði fyrir plötu, gúmmídúk og
baksílindra. I þessum sjálfvirku
þvottagræjum er lágmarksnotkun á
leysiefnum og takmarkið að losna
alveg við þau. Þegar verkið fer af
stað er gott eintak komið á auga-
bragði og innstillingararkir því í
lágmarki. Vélamar em einnig
margar komnar með plast-
húðunareiningu.
König & Bauer í samstarfi
við Scitex og Planeta kynntu
vélina 74 KARAT sem er
staffæn 4 lita prentvél byggð
á offsettækninni en búið er að
ná út vatnsverkinu og farfa-
verkið er einn vals sem er
jafnstór og plötuvals. Öllu
haganlega fyrirkomið og
stærð vélarinnar er svipuð og eins
litar stórrar vélar, t.d. Speedmaster.
I forvinnslunni er útbúin fyrirmynd
til samþykkis og þegar búið er að
gera fyrirmyndina eins og ætlast er
til em stillingar fyrir vélina
forritaðar og fyrstu blöðin em eins
og þau síðustu í keyrslunni. Ekki
þarf að stilla farfa eða ná jafnvægi
milli vatns og farfa eins og þekkist
í hefðbundnum offsetvélum. Vélin
verður tilbúin til afgreiðslu á árinu
1999 en framleiðandinn ætlar sér
u.þ.b. 6 mánuði til að ná öllu heim
og saman áður hún fer á markað.
Heidelberg hefur einnig þróað
Quickmaster sem er fjögurra lita
og tekur lítið pláss og verkin em
tilbúin á fyrsta blaði. Tími milli
verka er örfáar mínútur og plötur
em úr polyesterefni og renna eins
og filmur í gegn. 35 verk rúmast á
hverju hylki.
Xerox kynnti vinnslustöð sem
þeir kalla „Docuworld“. Þar var
sýnd vinnsla á ótal mismunandi
bæklingum og bókum, veggspjöld-
um og fleira sem þeir framleiddu á
mettíma. Þeir leggja mikla áherslu
á að hvert og eitt verk henti ein-
staklingnum sem fær það í hendur.
T.d. bæklingur eða bók yfir bíl
sem maður kaupir sé sérstaklega
búinn til með tilliti til hvaða bfil
var keyptur og aukahluta sem í
honum em. Þeir leggja mikla
áherslu á að fjölritað efni sé með
fallegri kápu og liturinn er nauð-
synlegur til að ná augum fólks.
A sýningunni vom kynntar
plötur sem engin efni þarf til að
framkalla. Kodak kynnti Thermal
plötuna sem verður tilbúin á
næsta ári og á að leysa af hólmi
öll millistig sem auka hættuna á
að verkið skili sér ekki hreint og
nákvæmlega á plötu.
Á sýningunni fór miklb
fyrir stafrænu verkflæbi sem
er frá upphafi til enda
vinnslunnar og tekib
verbur sérstaklega til
umfjöllunar í þessu blabi.
Apple hefur þróað kerfi sem
gengur út á að pmfur prentaðar
út á mismunandi prentara eða
útkeyrsluvélar komi eins út,
svokallaðir skjálitir. Takmarkið er
að fyrirmyndir séu eins og endan-
legt ferli á að líta út.
Það sem einkenndi nýjungar í
bókbandi sneri helst að auknum
hraða og sjálfvirkni auk þess sem
kynnt vom ný efni til notkunar
við frágang verka.
Gamlar tmkk-vélar sem hafa
verið endurhannaðar sem gylling-
arvélar vom kynntar á sýning-
unni. Mjög færist í vöxt að gylla
verkefni, eftirspum er mikil og
ýmsir möguleikar em fyrir hendi.
Vélarnar gefa möguleika á að
gylla með mörgum mismunandi
borðum í einni keyrslu.
Þá vakti athygli okkar aukabún-
aður á GTO vél sem var flexóein-
ing sem prentar vatnsmerki í
pappírinn.
Einnig vakti áhuga okkar papp-
írssnúningstæki sem tekur papp-
írsstæður, hleypir lofti í þær og
snýr þeim við til að auðvelda
stokkun. Tæki sem kæmi að góð-
um notum til að létta starf við
pappírsmeðhöndlun.
Þá var kynntur nýr möguleiki
fyrir þvottatæki. Hólkur er settur
ofaní þvottatæki og blaðka fest
við gúmmísköfuna. Þegar bakkinn
fyllist er hólkurinn losaður á ein-
faldan hátt og settur í kassa og nýr
hólkur í bakkann í staðinn. Þetta
leysir af hólmi allan þvott á
þvottatækjum.
Heilmikið af bæklingum og
sýnishomum af sýningunni er
hægt að nálgast til skoðunar hjá
FBM, verið velkomin.
IPEX-punktar
A sýningunni var gefið út dag-
blað með ýmsum fróð-
leiksmolum og einnig er þar að
finna nokkur minningabrot frá
síðustu sýningu:
Á IPEX 93 seldu König
& Bauer allar vélar sínar á
básnum og þar af eina til
dularfulls Irana sem borgaði
120.000 pund (14 milljónir
og 400 þúsund íslenskar) í
seðlum sem hann kom með
í ferðatösku.
Man Roland seldu sex nýjar
vélar að andvirði 40 milljóna
punda (4.800 milljónir ís-
lenskra) til Thairanth Daily,
stærsta dagblaðs í Tælandi, á
sýningunni 1993.
Fyrir þá sem fengu yfir sig
nóg af hávaða á IPEX 93 var
Hljóðdempunarathvarfið gott
til að ná sér niður. Þar var ver-
ið að kynna nýjar útgáfur á
vörum til hljóðeinangrunar
fyrir bókbandslínur.
Mitsubishi seldi þrjár vélar
með sjálfvirkum plötuskipta-
búnaði að verðmæti 3,6 m.
punda (432 milljónir
íslenskra).
PRENTARINN ■ 5