Prentarinn - 01.03.1998, Síða 14

Prentarinn - 01.03.1998, Síða 14
Georg Páll Skúlason brids- og skákmót eru haldin ár- lega, svo og golfmót og skóg- ræktarferð í Miðdal. Auk þess er kaffisamsæti fyrir félagsmenn 1. maí og jólakaffi fyrir eldri félagsmenn. Eldri félagar fara dagsferð í boði félagsins á hverju sumri. Kvennamál Kvennahópur er starfræktur hjá FBM. Hópurinn heldur fundi einu sinni í mánuði yfir veturinn, ým- ist með eða án fyrirlesara, og hef- ur það að markmiði að stuðla að auknu jafnrétti innan prent- iðnaðarins. Allar konur eru velkomnar í hópinn. Orlofshús FBM á átta orlofshús og eina íbúð, sem er í Furulundi 8t á Akureyri. Sex orlofshús eru í \ Félagsmönnum sem veríta fyrir atvinnumissi er bent á ab hafa samband vib / FBM og fá upplýsingar um 'hvernig bregbast skuli vib. Atvinnulausir félagar geta sótt námskeib hjá Prenttæknistofnun sér ab kostnabarlausu. Miðdal, orlofslandi félagsins rétt við Laugarvatn. Eitt hús er í Ölfusborgum og annað að Illuga- stöðum í Fnjóskadal. í Miðdal er einnig mjög gott tjaldsvæði einungis ætlað félagsmönnum og gestum þeirra. Orlofshúsunum er úthlutað í lok aprílmánaðar fyrir sumarið og skilafrestur umsókna um orlofs- hús er auglýstur sérstaklega. Að vetri til er hægt að leigja þau um helgar eða viku í senn með stuttum fyrirvara. Sumarhúsalóbir I Miðdal er faliegt hverfi sumar- bústaða í eigu félagsmanna, og sú uppbygging hefur staðið allt frá árinu 1942. Þar hefur fjöldi félagsmanna reist sér sumarhús. Lóðir til úthlutunar eru skipu- lagðar á góðum stað í landinu. Bókasafn FBM hefur eignast gagnlegt og merkilegt safn bóka í gegnum tíðina. í seinni tíð hefur áherslan verið lögð á fagbækur og fagleg myndbönd sem lánuð eru félagsmönnum án endurgjalds. Safnið hefur ekki ákveðinn afgreiðslutíma, en starfsmenn eru fúsir til að svala forvitni félaga um safnið. Skyndilán FBM hefur í samstarfi við Islandsbanka milligöngu um skyndilán til félagsmanna. Upphæð slíkra lána er allt að 300.000 kr. til 36 mánaða. Stjórnskipulag Stjóm félagsins, sem jafnframt er stjóm sjúkrasjóðs, heldur fundi hálfsmánaðarlega. Stjómin er skipuð formanni, sex aðal- mönnum og sex varamönnum. Þrír stjómar- og varastjómar- menn em kosnir á hverju ári til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn í sérkosningu einnig til tveggja ára. I trúnaðarráði em 18 aðalmenn auk stjómar og fimm varamenn. Trúnaðarráð er kosið annað hvert ár. I stjóm Fræðslusjóðs á FBM tvo fulltrúa og Samtök iðn- aðarins (SI) einn. Stjóm Prent- tæknistofnunar er skipuð tveimur fulltrúum frá FBM, kosnum á aðalfundi félagsins, og SI á tvo fulltrúa. FBM hefur fjögur sæti í fulltrúaráði Sameinaða lífeyris- sjóðsins. Kosið er um tvö sæti til tveggja ára á aðalfundi ár hvert. Auk þess em ýmsar nefndir starfandi s.s. ritnefnd, bókasafns- nefnd, fræðslunefnd og öryggis- nefnd prentiðnaðarins. Réttindi Réttindi félagsmanna em annars vegar bundin í kjarasamningum og hins vegar í lögum félagsins. Þau tengjast þó þannig að sum réttindi samkv. lögunum verða til í kjarasamningi. T.d. sjúkra-, orlofs-, prenttækni- og fræðslu- sjóður. Mörg lög, er varða verka- lýðsbaráttu, hafa verið staðfest á Lífeyrissjóbur bókagerbar- manna sameinabist Samein- aba lífeyrissjóbnum árib 1995. Allir félagsmenn FBM eru abilar ab sjóbnum. Alþingi vegna kröfu heildar- samtaka verkalýðsins. Rétt er að nefna fáein lög og ár: Vökulögin 1921, Verkamannabústaðir 1929, Alþýðutryggingar 1936, Stéttar- félög og vinnudeilur 1938, Orlof 1943,.Atvinnuleysistryggingar 1956 (hluti af kjarasamningi eftir verkfall), uppsagnarfrestur og réttur fastra starfsmanna til launa í sjúkdóma- og slysatilfellum 1958, stytting vinnutímans úr ca. 60 í 48 klst. á viku 1942, í 44 klst. 1965 og í 40 klst. 1972. Sameinub stöndum vib Mörg ofantalin atriði hafa náðst í samningum hjá einhverju verka- lýðsfélagi og sfðar verið staðfest fyrir heildina. Það má eflaust alltaf gera betur í baráttunni fyrir bættum kjörum. Þó er eitt víst að samtakamáttur launþega er lykil- atriði í þessari baráttu, um þetta hefði ekki verið samið inni á teppi hjá forstjóranum í persónu- legum samningi hvers og eins launþega. Lokaorb Það er von mín að greinin hafi verið upplýsandi fyrir þig, lesandi góður, og að spumingunum sem settar voru fram í upphafi hafi verið svarað að einhverju leyti. Jafnframt má spyrja: Hvað get ég gert fyrir félagið mitt? Svarið við þeirri spumingu er í raun hið sama, því það eruð þið ágætu félagsmenn sem hafið náð þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin og eigið heiðurinn af því sem félagið er í dag. félag bókageröar- manna

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.