Prentarinn - 01.11.2009, Side 3

Prentarinn - 01.11.2009, Side 3
Leiðari Verjum heimilin og áunnin réttindi GEORG PÁLL SKÚLASON, OKTÓBER 2009. / Aársfundi Alþýðusambands íslands í lok október voru fjölmörg mál á dagskrá og mikill einhugur var um niðurstöður í flestum málaflokkum. Nálgast má ályktanir í heild og greinargerðir á vef samtakanna. Þar bar hæst ályktun til varnar heimilunum í landinu sem ég hef gripið niður í: „Ársfundur ASÍ krefst þess að allra úrræða sé leitað til þess að verja stöðu heimilanna og lágmarka þann skaða sem þau hafa þegar orðið fyrir og sem þau verða óhjákvæmilega fyrir vegna efnahagshrunsins. Fundurinn ítrekar þá ein- dregnu afstöðu að samfélag sem byggir á öflugu og virku velferðarkerfi, góðri menntun fyrir alla, jöfnuði, jafnrétti og traustum réttindum launafólks að norrænni fyrirmynd er best til þess fallið að takast á við erfiðleika í efnahagslífinu. Öflug velferðarkerfi, menntakerfi og heilbrigðiskerfi eru aldrei mikilvægari en nú." „Ársfundur ASI skorar á stjórnvöld að efna fyrirheit sín um hækkun persónuafsláttar og setja skorður við hækkun skatta og verja þannig tekjulægstu hópana sem tekið hafa á sig auknar skattbyrðar meðan skattar hafa lækkað á fyrir- tæki og hina tekjuhærri á undanförnum árum." „Ársfundur ASI leggur áherslu á að atvinnuleitendum verði haldið virkum sem þegnum samfélagsins og krefst þess að skráning atvinnuleitenda og umsýsla atvinnuleysisbóta verði nú þegar færð til stéttarfélaganna." „Ársfundur ASI leggur mikla áherslu á að heimilunum verði gert kleift að standa við skuldbindingar sínar og viðhalda mannsæmandi lífsgæðum. ASÍ hefur lagt til almenn úrræði eins og sjálfvirka greiðslujöfnun sem taki til verð- og geng- istryggðra lána, þ.m.t. bílalána. Einnig hefur ASÍ lagt til róttæka og skjótvirka greiðsluaðlögun þannig að launafólk geti skapað sér nýja stöðu til framtíðar. Ársfundurinn skorar á stjórnvöld að taka nú þegar til endurskoðunar gildandi löggjöf um greiðsluaðlögun og tryggja þeim heimilum sem komin eru í veruleg fjárhagsleg vandræði einfalt og samræmt úrræði sem taki á öllum skuldum heimilanna. Það verði gert með skuldbreytingum og afskriftum sem sam- ræmist greiðslugetu og eignastöðu heimilanna." Jafnframt var mikið rætt um lífeyriskerfi landsmanna og eft- irfarandi ályktun samþykkt: „Ársfundur ASÍ felur miðstjórn sambandsins að standa fyrir víðtækri og almennri umræðu um málefni lífeyrissjóð- anna meðal aðildarsamtaka sinna á næstu mánuðum. Markmið slíkrar umræðu verði að leggja drög að end- urskoðaðri stefnu ASÍ í lífeyr- ismálum og skilgreina helstu samningsmarkmið samtak- anna í viðræðum við Sam- tök atvinnulífsins. Skal þeirri vinnu lokið eigi síðar en 31. mars 2010." Tillaga Verkalýðsfélags Akraness var felld. Greidd voru atkvæði um viðbótartillögu Verkalýðsfélags Akraness um lífeyrismál, en tillagan gekk út á að breyta samningum þannig að tryggt yrði að launafólk yfirtæki stjórn lífeyrissjóða innan ASI.Tillagan var felld með 79,3% atkvæða gegn 20,7% en 234 greiddu atkvæði. 12 seðlar voru auðir. Um var að ræða leynilega atkvæðagreiðslu að kröfu flutningsmanna tillögunnar. Málið verður þó skoðað áfram því ársfundurinn fól miðstjórn að standa fyrir almennri umræðu um málefni lífeyrissjóðanna á næstu mánuðum. Ársfundurinn ályktaði einnig um skattlagningu á inn- greiðslur í lífeyrissjóði: „Ársfundur Alþýðusambands íslands hafnar þeim hug- myndum sem fram hafa komið um skattlagningu á inn- greiðslur í lífeyrissjóði. Slík skattlagning hefði í för með sér tilflutning á skattgreiðslum milli kynslóða og leggur þungar skattbyrðar á komandi kynslóðir. Þessi breyting mun einnig leiða til þess að skerða þarf réttindi í lífeyrissjóðum í nútíð og framtíð. Ársfundurinn leggur ríka áherslu á að ekki verði hróflað við þeim réttindum sem launafólk hefur byggt upp í lífeyrissjóðum sínum á umliðnum áratugum." Mjög mikilvægt er að félagsmenn og verkalýðshreyfingin standi vörð um áunnin réttindi þótt sverfi að vegna þess áfalls sem dunið hefur á efnahag landsins. Það á við um samningsbundin réttindi og einnig félagsleg réttindi sem byggð hafa verið upp. Þá er einnig mikilvægt að hafa í huga að kreppan er alþjóðleg, ekki séríslensk, og því á ekki að ganga út frá því að réttindi og kjör launafólks þurfi að víkja í þeirri viðleitni stjórnvalda að koma þjóðarskútunni á réttan kjöl. Launafólk'hefur þegar tekið gríðarlegan skell á sig í gegnum hækkun verðlags, fall gengis krónunnar og sam- drátt í atvinnu og þar með tekjum. B prentarinn www.fbm.is

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.