Prentarinn - 01.11.2009, Page 4
KNATTSPYRNAl
Iðnnemar fá
vinnustaðanámsstyrki
IÐAN fræðslusetur hefur tekið að sér í umboði menntamála-
ráðuneytisins að annast undirbúning, framkvæmd og úthlutun
styrkja frá norrænu ráðherranefndinni. Styrkirnir eru ætlaðir
nemendum í iðn- og starfsnámi.
IÐAN hefur einnig um árabil úthlutað Leonardo da Vinci-
starfsnámsstyrkjum.
Gaman er að segja frá því að undanfarið ár hafa 15 nem-
endur stundað hluta af vinnustaðanámi sínu í Danmörku,
Noregi, Færeyjum, Finnlandi, Irlandi eða Bretlandi, og má
þar nefna nemendur í gull- og silfursmíði, húsgagnabólstrun,
húsasmíði, matreiðslu og kjólasaumi.
Nánari upplýsingar eru á http://www.idan.is/styrkir/.
Á myndinni eru Halldór Haukur
Haraldsson húsastníðanemi og Helen
Gray, ÍÐUNNI fræðslnsetri, þar sem
hann skilar inn umsókn um vinnu-
staðanámsstyrk á Norðurlöndum.
Sautján nýsveinar fá
sveinsbréf í bókiðngreinum
Sautján nýsveinar í bókiðngreinum fengu sveinsbréf afhent
við hátíðlega athöfn þann 19. júní sl. Að þessu sinni luku níu
sveinar prófi í grafískri miðlun, sjö í prentun og einn í bók-
bandi. Asta María Sigmarsdóttir og Helgi O. Víkingsson hlutu
viðurkenningar fyrir afburðaárangur á sveinsprófi. Athöfnin
var hin hátíðlegasta að vanda og fór fram í blíðskaparveðri
við góðar undirtektir. Tónlist var leikin, gestir nutu veitinga
og gerður var góður rómur að athöfninni í hvívetna. Björn M.
Sigurjónsson, sviðsstjóri prenttæknisviðs, afhenti nýsveinum
blóm og gjafabréf á námskeið frá IÐUNNI fræðslusetri. For-
menn sveinsprófsnefnda, þeir Tryggvi Þór Agnarsson, Hjörtur
Guðnason og Theodór Guðmundsson, afhentu sveinsbréf og
Georg Páll Skúlason og Haraldur Dean Nelson veittu verðlaun
fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi.
Litlaprent sigraði á Knatt-
spyrnumóti FBM 2009
Knattspyrnumót FBM var haldið laugardaginn 18. apríl sl. í Fíf-
unni í Kópavogi.
Atta lið mættu til leiks og var spilað í tveimur riðlum.
Liðin voru skipuð sex leikmönnum ásamt varamönnum.
Leiknir voru 10 mínútna leikir og léku allir við alla í riðlakeppn-
inni. Þá fóru fram átta liða úrslit, undanúrslit og að lokum var
leikið til úrslita um 1. og 2. sætið og 3. og 4. sætið.
Litlaprent sigraði Morgunblaðið í æsispennandi leik sem
endaði með vítaspyrnukeppni eftir framlengdan úrslitaleik, 2:0.
Lið Gunnars Eggertssonar lagði lið Hvíta hússins, 2:0, í leik um
þriðja sætið. Aðaldómari mótsins var Omar Bruno Olafsson og
mótsnefnd skipuðu Georg Páll Skúlason og Oskar Jakobsson.
Norski hópurinn ásamt stjórnarmönnum FBM.
Stjórn deildar
Fellesforbundet 855
- Sor-0st Grafiske Fagforening í Kristiansand í Noregi heimsótti
Island dagana 22. október til 25. október. Hópurinn hafði óskað
eftir að fá að heimsækja íslenskar prentsmiðjur og var honum
boðið í prentsmiðju Odda og Landsprents. Stjórn FBM tók
síðan á móti þeim í húsi félagsins og fræddi þau um sögu FBM
og helstu staðreyndir um íslenska prentiðnaðinn. Hópurinn sem
taldi 12 manns var mjög ánægður með móttökurnar og þess má
geta að í honum voru íslensk hjón sem bæði starfa í prentiðnaði í
Kristiansand, Ingólfur Sigurðsson og Þuríður Osk Valtýsdóttir.
ö 1. tbl. NÓVEM8ER 2009