Prentarinn - 01.11.2009, Page 5

Prentarinn - 01.11.2009, Page 5
EEBB Signn’egarar á Miðdalsmótinu 2009. F.v. Kristinn Friðriksson, Richard Haukur Sævarsson, Björn Fróðason, Sigurjón Þ. Sigurjónsson, Bjarney Sigurjónsdóttir, Sigurlaug Björk Guðmundsdóttir og Anna Þorkelsdóttir. Miðdalsmótið 2009 - Björn Fróðason meistari Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna, fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 8. ágúst. Þetta var í fjórtánda sinn sem við héldum golfmót í Miðdal. Að þessu sinni voru kepp- endur 36. Eftir kaffiveitingar var keppendum raðað á teiga og hófst mótið kl. 11.00 undir stjórn Sæmundar Árnasonar og Braga Hafþórssonar. Allir þátttakendur fengu afhenta teiggjöf frá FBM, golfbolta merkta Félagi bókagerðarmanna. Aðalstuðningsaðili mótsins, eins og undanfarin ár, var Hvít- list, er veitti fjölda verðlauna. Færum við Hvítlist bestu þakkir fyrir stuðninginn. Fyrstu verðlaun með forgjöf og farandbikar FBM hlaut Björn Fróðason með 70 högg. I öðru sæti varð Richard Haukur Sævarsson með 70 högg og í þriðja sæti varð Sigurjón Þ. Sig- urjónsson með 74 högg. Postillon-bikarinn, fyrstu verðlaun án forgjafar, vann Björn Fróðason með 80 högg, í öðru sæti varð Sigurjón Þ. Sigurjóns- son með 81 högg og íþriðja sæti varð Kristinn Friðriksson með 83 högg. Bjarney S. Sigurjónsdóttir sigraði í kvennaflokki með forgjöf á 77 höggum, í öðru sæti varð Sigurlaug Björk Guðmunds- dóttir á 80 höggum og í þriðja sæti varð Anna Þorkelsdóttir á 82 höggum. Púttmeistari varð Sigurjón Þ. Sigurjónsson með 24 pútt. Lengsta teighögg karla á þriðju braut átti Anton Þorsteinsson og lengsta teighögg kvenna á þriðju braut átti Valgerður Þór- isdóttir. Næst holu á 5. braut var Ragnar Þórisson og næst holu á 8. braut var Páll Erlingsson. Auk þess var dregið úr skorkortum. I mótslok var boðið upp á léttar veitingar sem þátttakendur kunnu vel að meta eftir frábæran og skemmtilegan keppnisdag. Næsta Miðdalsmót verður í ágúst 2010. Göngustígur milli neðra hverfis og miðhverfis. Afrakstur góðs dagsverks. Vinnudagurinn í Miðdal Laugardaginn 6. júní sl. var haldinn hinn árlegi vinnudagur í Miðdal á vegum Miðdalsfélagsins og FBM. Þennan dag viðraði með eindæmum vel, eins og flesta daga í Miðdalnum í sumar. Einstaklega góð samvinna er á milli FBM og Miðdalsfélags- ins, sem gera þennan dag svo vel heppnaðan ár eftir ár, og ekki spillir veðrið sem hefur oftast leikið við okkur þennan dag. Að jafnaði er góð þátttaka í vinnudeginum og hafa þátttak- endur verið allt frá 40 og upp í 100 manns, margar hendur sem vinna gott og þarft verk, allt í sjálfboðavinnu. Víða má sjá merki um framlagið á vinnudeginum. Göngustígar hafa verið lagðir, lækir hafa verið brúaðir, tröppur lagðar, tré klippt, borið á brýr og svona mætti lengi telja, allt til að gera umhverfið í Miðdal skemmtilegra fyrir alla félagsmenn FBM og til að gera það auðveldara fyrir fólk að njóta þess að ganga í þessu fagra umhverfi sem við eigum. Samvinnan og gleðin í hópnum er frábær á svona vinnudegi og það starf sem er unnið er ómetanlegt og nýtist öllum félags- mönnum FBM sem leggja leið sína í Miðdalinn. Að vinnudegi loknum gerir fólk sér smá dagamun og hefur FBM boðið til grillveislu að kvöldi vinnudagsins. Hefur það tekist með eindæmum vel. Ég vona að þessi dagur verði haldinn um ókomna framtíð, Miðdalsfélaginu og FBM til framdráttar. ÞORKELL SVARFDAL HILMARSSON Vinnufúsir fá sér hressingu. prentarinn www.fbm.is

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.