Prentarinn - 01.11.2009, Blaðsíða 8

Prentarinn - 01.11.2009, Blaðsíða 8
Ársfundur Nordisk Grafisk Union Ársfundurinn var haldinn 28.-29. apríl 2009 í Hyvinge í Finn- landi. Þátttakendur voru 24 og tveir áheyrnarfulltrúar frá Norð- urlöndunum aukjuha Ojala, formanns samninganefndar FAM, verslunarmanna í Finnlandi, Daniel Valtakari frá Samtökum járniðnaðarmanna á Norðurlöndum, Nordic IN, og Magnus Breitenstein frá WS Bookwell OY í Finnlandi. Fulltrúar FBM voru Georg Páll Skúlason og Bragi Guðmundsson. Túlkur var Magnús Einar Sigurðsson. Hefðbundin störf ársfundar fóru fram þar sem m.a. var kjörin uppstillingarnefnd, skýrsla stjórnar flutt, ársreikningur lagður fram o.fl. Fram kom í skýrslu formanns að stjórnin hefði fundað fjórum sinnum á kjörtímabilinu en í henni sitja Pertti Raitoh- arju formaður, Bjarne Nielsen varaformaður, Tommy Andersen og Anders Skattkjær. Sambandið er með starfsmann, ritara í hálfu starfi sem heitir Christian Backlund, en hann túlkar jafn- framt á stjórnarfundum. Hann starfar hjá finnska félaginu. • Kosinn var einn fulltrúi frá hverju landi í uppstillingarnefnd og var Bragi fulltrúi FBM í henni. • Ársskýrsla stjórnar fyrir árið 2008 var samþykkt. • Félagsmenn eru 54.789 talsins, 18.854 konur og 35.934 menn, og fækkaði þeim um 8.125 milli ára, en þeim hefur fækkað á hverju ári undanfarin ár og skýrist það m.a. af því að stór hópur hefur farið á eftirlaun á sama tíma, endurnýjun er mun minni og prentiðnaðurinn er ekki jafnmannfrekur og áður. • Reikningar voru samþykktir, en hagnaður í rekstrinum var 128.253 SEK og eigið fé er nú 6.331.748 SEK. • NGU hefur áfram stutt við verkefni í Austur-Evrópulönd- unum. • Fjárhagsáætlun fyrir árin 2009-2011 er upp á 1.000.000 SEK F.v. Bragi Guðmundsson og Georg Páll Skúlason, fulltrúar FBM. Bjarne Nielsenfrá Danmörku (t.v.), nýrformaður NGU, en hann tók við afPerrti Baitoharju frá Finnlandi. í tekjur og 1.025.000 SEK í útgjöld fyrir árið 2009, 965.000 SEKí tekjur og 745.000 SEK í gjöld árið 2010 og 945.000 SEK í tekjur og 1.035.000 SEK í gjöld árið 2011. • Fulltrúar NGU á alþjóðavettvangi innan UNI eru: Pertti Raitoharju í stjórn UNI Europa graphical, til vara er Irene Hamalanien. Tommy Andersen í stjórn UNI graphical, til vara er Anders Skattkjær. Bjarne Nielsen og Tommy Andersen í heimsstjórn UNI, til vara eru Anders Skattkjær og Pertti Raitoharju. Til viðbótar þessu hefur NGU átt fulltrúa í starfsnefndum UNI: Pertti Raitoharju situr í vinnuhóp um samningamál innan UNI Europa graphical. Christian Backlund og Jan Strandberg eru í vinnuhóp UNI EG um alþjóðleg fyrirtæki innan Evrópu, EWC. Anders Skattkjær er formaður vinnunefndar UNI EG um iðnnám. Irene Hamalainen er í kvennanefnd UNI. • Á fundinum var kosinn formaður, varaformaður og tveir stjórnarmenn. Bjarne Nielsen var valinn formaður, Tommy Andersen frá Svíþjóð er varaformaður, og Anders Skattkjær frá Noregi og Heikki Helkavuori frá Finnlandi eru meðstjórn- endur tímabilið 2009-2011. Hvert hinna stærri landa á rétt á að tilnefna sinn fulltrúa og varamann. I ljósi þess að Danir eiga formanninn flyst skrifstofa NGU til HK í Danmörku. • Félagsgjaldið fyrir árið 2009-2010 var ákveðið 16 sænskar krónur á hvern starfandi félagsmann. • Ræddar voru hugmyndir að ráðstefnum fyrir NGU sem stjórn sambandsins mun vinna úr, en fram komu hugmyndir um menntaráðstefnu, ráðstefnur um umhverfismál og vinnuvernd í prentiðnaði. • Nordisk Grafisk Union var stofnað árið 1976 í Noregi. Þrítug- asta afmælisárið sýnir að það var góð ákvörðun að stofna sambandið og samvinna milli Norðurlandanna þarf að vera til staðar áfram og í sama góða andanum. Anders rakti helstu málaflokka sem NGU hefur beitt sér í á undanförnum árum. • Norrænir samningar eru enn fyrirmynd evrópskra samninga og einnig á alþjóðavísu. • Framvegis verða aðalfundir NGU á tveggja ára fresti og verður sá næsti í Svíþjóð árið 2011. 1. tbl. NÓVEMBER 2009

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.