Prentarinn - 01.11.2009, Side 10
Hve langur er afgreiðslutími
sjóðsins eftir að samþykki
skiptastjóra liggur fyrir?
Eftir að Ábyrgðasjóði launa berst umsögn
og kröfuskrá skiptastjóra tekur sjóðurinn
að öllu jöfnu afstöðu til krafnanna innan
fjögurra vikna.
Hversu langan tíma tekur að fá
greitt úr sjóðnum?
Ábyrgð Ábyrgðasjóðs launa á greiðslu
krafna er háð því skilyrði að kröfurnar
hafi verið viðurkenndar sem forgangskröfur
samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti.
Við gjaldþrotaúrskurð er skipaður
skiptastjóri í þrotabú vinnuveitanda og fer
hann með öll mál sem lúta að meðferð
þrotabúsins. Kröfulýsingarfrestur er sá tími
sem kröfuhafar hafa til að lýsa kröfum í
þrotabúið. Að öllu jöfnu er sá frestur um
tveir mánuðir, en standi sérstaklega á má
skiptastjóri samkvæmt lögum ákveða að
ingi eða í uppsagnarfresti. Greiðslan er háð
því að sýnt sé fram á að launamaður hafi
verið á vinnumarkaði og í virkri atvinnuleit
á umræddum tíma, svo sem með skráningu
hjá opinberri vinnumiðlun. Miðað er við að
atvinnuleit hefjist innan tveggja vikna frá
starfslokum og standi markvisst yfir f þann
tíma sem ábyrgðar sjóðsins nýtur við.
Innan hvaða frests er hægt að
sækja um greiðslu?
Krafa á hendur Ábyrgðasjóði launa er
aðeins tekin gild berist hún sjóðnum innan
sex mánaða frá birtingu innköllunar í Lög-
birtingablaðinu þar sem skiptastjóri hefur
ákvarðað kröfulýsingarfrest. Heimilt er þó
að taka til greina kröfu sem berst innan 12
mánaða ef sýnt er að ekki hafi verið hægt
að gera hana fyrr.
Hver er hámarksábyrgð vegna
launa?
Hámarksábyrgð Ábyrgðasjóðs launa vegna
Helstu spurningar og svör
frá Ábyrgðasjóði launa
fresturinn verði tiltekinn mánaðafjöldi, frá
þremur mánuðum til sex mánaða.
Eftir lok kröfulýsingarfrests gerir
skiptastjóri kröfuskrá þar sem hann lætur
í ljós afstöðu sína til viðurkenningar eða
höfnunar hverrar kröfu fyrir sig. Eftir
að Ábyrgðasjóði launa berst umsögn og
kröfuskrá skiptastjóra tekur sjóðurinn alla-
jafna afstöðu til krafnanna innan fjögurra
vikna.
Hver er ábyrgð sjóðsins á
launum?
Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu van-
goldinna vinnulauna þrjá síðustu starfs-
mánuði fyrir gjaldþrotaúrskurð vinnuveit-
enda sem falla innan ábyrgðartímabils. Til
vinnulauna teljast greiðslur vegna umsam-
ins vinnuframlags launamanns, þ. á m.
launauppbætur, í hlutfalli við þann tíma
sem krafa nýtur ábyrgðar sjóðsins.
Sjóðurinn ábyrgist einnig kröfur launa-
manna um bætur vegna launamissis í alit
að þrjá mánuði vegna slita á ráðningarsamn-
vangoldinna launa eða bóta vegna slita á
ráðningarsamningi, sem falla í gjalddaga
eftir l.janúar 2009, er 374.000 kr. fyrir
hvern mánuð. Hámarksábyrgð fyrir hvern
mánuð á árinu 2008 er kr. 345.000,-
Hafi vinnuveitandi greitt upp í launa-
kröfurnar fyrir gjaldþrotaúrskurð koma þær
greiðslur til frádráttar. Á sama hátt koma
greiddar atvinnuleysisbætur og atvinnu-
tekjur í uppsagnarfresti til frádráttar
kröfum um bætur vegna launamissis í
uppsagnarfresti.
Er hægt að sækja um greiðslu
launa og orlofs hjá Ábyrgða-
sjóði launa vegna vinnuveit-
anda sem ekki er orðinn gjald-
þrota?
Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu
orlofslauna samkvæmt lögum nr. 30/1987
í þeim tilvikum sem vinnuveitandi hefur
ekki staðið skil á greiðslu þeirra, þótt bú
hans hafi ekki verið tekið til gjaldþrota-
skipta. Ábyrgð sjóðsins nær til greiðslu
B
1. tbl. NÓVEMBER 2009
orlofs sem unnið hefur verið til á síðustu
18 mánuðum.
Ábyrgð sjóðsins nær ekki til greiðslu
vangoldinna vinnulauna frá vinnuveitanda
sem ekki er orðinn gjaldþrota.
Fyrir hversu langt tímabil eru
lífeyrisréttindi tryggð?
Ábyrgðasjóður launa ábyrgist kröfu lífeyr-
issjóðs um lífeyrissjóðsiðgjöld sem fallið
hafa í gjalddaga á síðustu 18 mánuðum
fyrir úrskurðardag. Heimilt er að miða við
frestdag ef sú niðurstaða er hagstæðari
fyrir kröfuhafa.
Ábyrgðin takmarkast við 10% lágmarks-
iðgjald og allt að 4% viðbótarlífeyrissparnað
samkvæmt samningi um viðbótartrygging-
arvernd, eða kjarasamninga. Ákvæði laga
um greiðslur viðbótarlífeyrissparnaðar tóku
gildi 1. janúar 2004 og miðast þau við að bú
vinnuveitanda hafi verið úrskurðað gjald-
þrota eftir þann tíma. Nær þá ábyrgð sjóðs-
ins til vangoldinna viðbótarlífeyrisiðgjalda
sem fallið hafa í gjalddaga frá og með 10.
apríl 2003.
Eiga stjórnendur fyrirtækja rétt
á greiðslu?
Kröfur framkvæmdastjóra og stjórn-
armanna hins gjaldþrota fyrirtækis njóta
ekki ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa og gildir
hið sama um eigendur að verulegum hlut
í fyrirtækinu. Á þetta hvort tveggja við
greiðslu launa og lífeyrissjóðsiðgjalda vegna
gjaldþrots og greiðslu orlofs vegna greiðslu-
erfiðleika vinnuveitanda.
Er ábyrgð á lögfræðikostnaði
vegna krafnanna?
Njóti krafa ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa á
kröfuhafi rétt á greiðslu eðlilegs kostnaðar
vegna innheimtu hennar, þ.m.t. dæmds
málskostnaðar. Auk kostnaðar ber sjóð-
urinn ábyrgð á greiðslu skiptatryggingar
sem launamaður eða lífeyrissjóður hefur
greitt.
Ábyrgð sjóðsins á kröfum vegna innheimtu-
kostnaðar nær eingöngu til krafna vegna
lögfræðiþjónustu og nauðsynlegs útlagðs
kostnaðar og miðast ávallt við gerða kröfu.
Stjórn Ábyrgðasjóðs launa setur reglur sem
ráðherra staðfestir um hámark á greiðslu
kostnaðar og önnur skilyrði fyrir ábyrgð
sjóðsins á kröfum.