Prentarinn - 01.11.2009, Síða 10

Prentarinn - 01.11.2009, Síða 10
Hve langur er afgreiðslutími sjóðsins eftir að samþykki skiptastjóra liggur fyrir? Eftir að Ábyrgðasjóði launa berst umsögn og kröfuskrá skiptastjóra tekur sjóðurinn að öllu jöfnu afstöðu til krafnanna innan fjögurra vikna. Hversu langan tíma tekur að fá greitt úr sjóðnum? Ábyrgð Ábyrgðasjóðs launa á greiðslu krafna er háð því skilyrði að kröfurnar hafi verið viðurkenndar sem forgangskröfur samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti. Við gjaldþrotaúrskurð er skipaður skiptastjóri í þrotabú vinnuveitanda og fer hann með öll mál sem lúta að meðferð þrotabúsins. Kröfulýsingarfrestur er sá tími sem kröfuhafar hafa til að lýsa kröfum í þrotabúið. Að öllu jöfnu er sá frestur um tveir mánuðir, en standi sérstaklega á má skiptastjóri samkvæmt lögum ákveða að ingi eða í uppsagnarfresti. Greiðslan er háð því að sýnt sé fram á að launamaður hafi verið á vinnumarkaði og í virkri atvinnuleit á umræddum tíma, svo sem með skráningu hjá opinberri vinnumiðlun. Miðað er við að atvinnuleit hefjist innan tveggja vikna frá starfslokum og standi markvisst yfir f þann tíma sem ábyrgðar sjóðsins nýtur við. Innan hvaða frests er hægt að sækja um greiðslu? Krafa á hendur Ábyrgðasjóði launa er aðeins tekin gild berist hún sjóðnum innan sex mánaða frá birtingu innköllunar í Lög- birtingablaðinu þar sem skiptastjóri hefur ákvarðað kröfulýsingarfrest. Heimilt er þó að taka til greina kröfu sem berst innan 12 mánaða ef sýnt er að ekki hafi verið hægt að gera hana fyrr. Hver er hámarksábyrgð vegna launa? Hámarksábyrgð Ábyrgðasjóðs launa vegna Helstu spurningar og svör frá Ábyrgðasjóði launa fresturinn verði tiltekinn mánaðafjöldi, frá þremur mánuðum til sex mánaða. Eftir lok kröfulýsingarfrests gerir skiptastjóri kröfuskrá þar sem hann lætur í ljós afstöðu sína til viðurkenningar eða höfnunar hverrar kröfu fyrir sig. Eftir að Ábyrgðasjóði launa berst umsögn og kröfuskrá skiptastjóra tekur sjóðurinn alla- jafna afstöðu til krafnanna innan fjögurra vikna. Hver er ábyrgð sjóðsins á launum? Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu van- goldinna vinnulauna þrjá síðustu starfs- mánuði fyrir gjaldþrotaúrskurð vinnuveit- enda sem falla innan ábyrgðartímabils. Til vinnulauna teljast greiðslur vegna umsam- ins vinnuframlags launamanns, þ. á m. launauppbætur, í hlutfalli við þann tíma sem krafa nýtur ábyrgðar sjóðsins. Sjóðurinn ábyrgist einnig kröfur launa- manna um bætur vegna launamissis í alit að þrjá mánuði vegna slita á ráðningarsamn- vangoldinna launa eða bóta vegna slita á ráðningarsamningi, sem falla í gjalddaga eftir l.janúar 2009, er 374.000 kr. fyrir hvern mánuð. Hámarksábyrgð fyrir hvern mánuð á árinu 2008 er kr. 345.000,- Hafi vinnuveitandi greitt upp í launa- kröfurnar fyrir gjaldþrotaúrskurð koma þær greiðslur til frádráttar. Á sama hátt koma greiddar atvinnuleysisbætur og atvinnu- tekjur í uppsagnarfresti til frádráttar kröfum um bætur vegna launamissis í uppsagnarfresti. Er hægt að sækja um greiðslu launa og orlofs hjá Ábyrgða- sjóði launa vegna vinnuveit- anda sem ekki er orðinn gjald- þrota? Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu orlofslauna samkvæmt lögum nr. 30/1987 í þeim tilvikum sem vinnuveitandi hefur ekki staðið skil á greiðslu þeirra, þótt bú hans hafi ekki verið tekið til gjaldþrota- skipta. Ábyrgð sjóðsins nær til greiðslu B 1. tbl. NÓVEMBER 2009 orlofs sem unnið hefur verið til á síðustu 18 mánuðum. Ábyrgð sjóðsins nær ekki til greiðslu vangoldinna vinnulauna frá vinnuveitanda sem ekki er orðinn gjaldþrota. Fyrir hversu langt tímabil eru lífeyrisréttindi tryggð? Ábyrgðasjóður launa ábyrgist kröfu lífeyr- issjóðs um lífeyrissjóðsiðgjöld sem fallið hafa í gjalddaga á síðustu 18 mánuðum fyrir úrskurðardag. Heimilt er að miða við frestdag ef sú niðurstaða er hagstæðari fyrir kröfuhafa. Ábyrgðin takmarkast við 10% lágmarks- iðgjald og allt að 4% viðbótarlífeyrissparnað samkvæmt samningi um viðbótartrygging- arvernd, eða kjarasamninga. Ákvæði laga um greiðslur viðbótarlífeyrissparnaðar tóku gildi 1. janúar 2004 og miðast þau við að bú vinnuveitanda hafi verið úrskurðað gjald- þrota eftir þann tíma. Nær þá ábyrgð sjóðs- ins til vangoldinna viðbótarlífeyrisiðgjalda sem fallið hafa í gjalddaga frá og með 10. apríl 2003. Eiga stjórnendur fyrirtækja rétt á greiðslu? Kröfur framkvæmdastjóra og stjórn- armanna hins gjaldþrota fyrirtækis njóta ekki ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa og gildir hið sama um eigendur að verulegum hlut í fyrirtækinu. Á þetta hvort tveggja við greiðslu launa og lífeyrissjóðsiðgjalda vegna gjaldþrots og greiðslu orlofs vegna greiðslu- erfiðleika vinnuveitanda. Er ábyrgð á lögfræðikostnaði vegna krafnanna? Njóti krafa ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa á kröfuhafi rétt á greiðslu eðlilegs kostnaðar vegna innheimtu hennar, þ.m.t. dæmds málskostnaðar. Auk kostnaðar ber sjóð- urinn ábyrgð á greiðslu skiptatryggingar sem launamaður eða lífeyrissjóður hefur greitt. Ábyrgð sjóðsins á kröfum vegna innheimtu- kostnaðar nær eingöngu til krafna vegna lögfræðiþjónustu og nauðsynlegs útlagðs kostnaðar og miðast ávallt við gerða kröfu. Stjórn Ábyrgðasjóðs launa setur reglur sem ráðherra staðfestir um hámark á greiðslu kostnaðar og önnur skilyrði fyrir ábyrgð sjóðsins á kröfum.

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.