Prentarinn - 01.11.2009, Page 11
VIRK
starfsendurhæf-
ingarsjóður
Félag bókagerðarmanna hefur í sam-
starfi við VIRK starfsendurhæfing-
arsjóð ráðið til starfa ráðgjafa í starfsend-
urhæfingu. Ráðgjafi félagsins er Sigrún
Sigurðardóttir. Hún er með skrifstofu
í Borgartúni 30 á 6. hæð. Vinnutími
hennar er mánudaga, fimmtudaga og
annan hvern miðvikudag.
Hlutverk ráðgjafa er að bjóða félags-
mönnum upp á þjónustu ef starfshæfni
þeirra er skert eða henni er ógnað vegna
veikinda eða heilsubrests. Rauði þráð-
urinn er að efla virkni einstaklingsins,
auka vinnugetu og varðveita vinnusam-
band hans til að koma í veg fyrir að hann
detti út af vinnumarkaðnum.
Þjónustan er eftirfarandi:
• Ráðgjöf og hvatning sem tekur mið af
aðstæðum hvers og eins.
• Mat á starfshæfni sem tekur mið af
bæði heilsufarslegum og félagslegum
þáttum.
• Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstakling-
sbundinnar áætlunar um aukna virkni,
heilsueflingu og endurhæfingu.
• Aðstoð og leiðbeiningar til að tryggja að
viðkomandi einstaklingur fái það sem
honum ber innan kerfisins.
Sigrún Sigurð-
ardóttir, ráðgjafi
hjá VIRK endur-
hæfingarsjóði
• Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á
stöðu einstaklings hverju sinni. Hér
getur t.d. verið um að ræða aðstoð
lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkra-
þjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfs-
ráðgjafa o.s.frv.
• Aðstoð í formi stuðnings til náms sem
hefur það að markmiði að auka vinnu-
getu.
• Aðstoð í formi skipulagðrar starfsend-
urhæfingar þar sem einstaklingurinn,
atvinnurekandinn og mismunandi fag-
aðilar vinna saman við að finna leiðir til
aukinnar vinnugetu.
Atvinnustaða félagsmanna
í Félagi bókagerðarmanna
/
Iágústbyrjun 2009 voru alls 903 virkir
félagsmenn í Félagi bókagerðar-
manna samkvæmt félagaskrá og iðgjalda-
greiðslum. Þessi tala er notuð í útreikningi
hér að neðan, en hafa ber í huga að hér
eru ekki algildar tölur um atvinnuleysi
félagsmanna heldur byggir hluti upplýs-
inga á óformlegum viðtölum við félags-
menn, trúnaðarmenn og atvinnurekendur
í prentiðnaði.
Alls fá 67 félagsmenn greiddar fullar
bætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði
samkvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
stofnun sem bárust í október 2009. Alls er
vitað um 49 félagsmenn sem var sagt upp
frá 1. janúar til 24. september 2009 og eru
16 þeirra enn á uppsagnarfresti. Þannig
eru nú 83 félagsmenn atvinnulausir, eða
um 9,2% virkra félagsmanna.
Alls er vitað um 156 félagsmenn sem
var sagt upp frá 1. mars 2008 til 20.
október 2009, en það eru um 16,8% virkra
félagsmanna. Allflestir þessara félags-
manna eru búnir að vinna út uppsagn-
arfrest, en nokkrir eru enn á uppsagn-
arfresti. Allnokkrir hafa fengið ný störf og
nokkir hafa farið í nám eða samtals um
73 félagsmenn.
Félaginu er kunnugt um að 276 félags-
menn hafi tekið á sig skert starfshlutfall
samkvæmt samkomulagi í 10 fyrirtækjum
og tóku skerðingarnar gildi frá 1. des-
ember 2008 til 1. apríl 2009 — um 30%
virkra félagsmanna hafa verið í skertu
starfshlutfalli um einhvern tíma. 1 dag
eru 162 félagsmenn í skertu starfshlut-
falli, sem jafngildir 34 stöðugildum og
samsvarar 3,8% atvinnuleysi virkra félags-
manna.
Eins og sjá má hafa nærri 47% virkra
félagsmanna í Félagi bókagerðarmanna
orðið fyrir einhvers konar röskun í starfi
sínu á þessum umbrotatímum.
Hagnýtar upplýsingar fyrir þá
sem sagt er upp vinnu
Vinnumálastofnun sér um afgreiðslu
atvinnuleysisbóta. Hægt að sækja um
á netinu — www.vmst.is. Þeir sem fá
atvinnuleysisbætur þurfa að gæta þess að
greiða áfram til stéttarfélaga til að halda
réttindum sínum Vinnumálastofnun sér
um greiðslu félagsgjalda til FBM sé þess
óskað á umsókn.
Réttindi félaga í FBM sem hafa
fengið uppsögn:
• Fræðslusjóður Félags bókagerðarmanna
veitir 75% styrki til náms
• Oll námskeið hjá IÐUNNI eru ókeypis-
www.idan.is
• Prenttæknisvið Iðunnar veitir félögum
starfs- og námsráðgjöf þeim að kostn-
aðarlausu
Réttindi félaga í FBM almennt:
• FBM veitir félagsmönnum lögfræðiað-
stoð
• FBM veitir félagsmönnum styrk til lík-
amsræktar
• FBM veitir félagsmönnum styrk til
sjúkraþjálfunar og endurhæfingar
• FBM veitir félagsmönnum styrk til sál-
fræðiþjónustu
• FBM veitir félagsmönnum styrk til
kaupa á gleraugum og heyrnatækjum
• FBM veitir félagsmönnum styrk til
kembileitar hjá Krabbameinsfélagi
íslands
B
prentarinn www.fbm.is