Prentarinn - 01.11.2009, Page 12
y
Neyðin kennir...
HRAFNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR
Tinna Ósk Grímarsdóttir
Tinna Ósk Grímarsdóttir er 22 ára prentsmiður og er búsett á Akranesi. Hún missti
vinnuna á haustmánuðum 2008 og hefur frá þeim tíma verið atvinnulaus. Henni,
eins og svo mörgum öðrum í hennar sporum, gekk erfiðlega að finna vinnu, en hún
nýtti tímann vel og fékk viðskiptahugmynd sem hún hrintn framkvæmd, og með
styrkfrá Vinnumálastofnun hefur hún sett á fót lítið fyrirtæki.
Hver er bakgrunnur þinn og
menntun?
Snemma byrjaði ég að fikra mig áfram í ýmiss
konar tölvuvinnslu og ég fiktaði svolítið við
þetta í seinni hluta grunnskólanámsins. Eg
útskrifaðist úr grunnskóla vorið 2003 og þaðan
lá leið mín beint í Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi. I þeim skóla var „aðaltrendið" að fara
í viðskiptafræði og fylgdi ég þeirri hjörð eins
og margir aðrir. Vegna lesblindu átti ég í tölu-
verðum erfiðleikum með það nám. Það stopp-
aði mig ekki og komst ég inn í tölvufræðinám
í Iðnskólanum í Reykjavík. Þar leið mér vel og
ég komst að því að hönnun heimasíðna var mitt
fag, það var mjög skemmtilegt og krefjandi. Þá
fór ég á stúfana að leita að hönnunaráfanga og
fann hann. Áramótin 2006/2007 útskrifaðist
ég sem grafískur miðlari.
Þegar þessum áfanga var náð þurfti ég að
komast á samning hjá prentsmiðju. Ég sótti
um á mörgum stöðum og komst inn hjá Morg-
unblaðinu. Þar gegndi ég nokkrum stöðum, ég
byrjaði í umbrotinu og undir lokin var ég komin
í auglýsingahönnun og líkaði það virkilega vel.
Þegar dálítið var liðið af samningstímanum
varð ég ólétt og ég rétt gat klárað hann. Arið
2008 var viðburðaríkt ár, ég eignaðist mitt
fyrsta barn með unnusta mínum til þriggja ára
og tók sveinsprófið í grafískri miðlun.
Þetta er ekki það eina sem gerðist því þegar
fæðingarorlofinu lauk mætti ég til vinnu eins
og áður hafði verið rætt um. Töluverður sam-
dráttur hafði verið og hræringar hjá prent-
miðlum þann tíma sem ég var í orlofi. Fyrsta
daginn eftir fæðingarorlof mætti ég á fund
með yfirmanni mínum sem bauð mig vel-
komna til starfa og spjallaði við mig um fram-
tíð fyrirtækisins og verkefnastöðuna. Þetta leit
allt virkilega vel út og ég fór heim full sjálfs-
trausts og ánægð með fyrsta vinnudaginn sem
gekk ótrúlega vel. Daginn eftir var andrúms-
loftið svolítið spennuþrungið og vissi ég ekki
af hverju fyrr en ég var kölluð á fund með
starfsmannastjóranum. Hann tilkynnti mér
uppsögn mína og var ég í sjokki vegna þess að
daginn áður hafði allt verið í himnalagi.
Núna er ég heimavinnandi móðir, prent-
smiður og vefstjóri mömmur.is og erum við
alltaf að bæta og breyta vefnum til hins
betra. Ég er að koma á legg nýrri línu
íslenskra afmælisboðskorta, skírnar- og
fermingarboðskorta, jólakorta og allskonar
tækifæriskorta.
Hvernig var upplifunin við að vera
sagt upp vinnu?
Upplifunin við atvinnumissinn var ekki góð.
Það fór allt úr skorðum hjá mér, tekjurnar
duttu mikið niður miðað við það sem ég hafði
gert ráð fyrir og þetta breytti öllum framtíð-
aráformum mínum. Ég var í þann mund að fara
með litlu fjölskyldunni minni, unnustanum
sem þá var í skóla og litlu stelpunni minni, út á
leigumarkaðinn, en sem betur fer á ég frábæra
foreldra sem hafa stutt við bakið á mér og
hjálpað mér og fjölskyldu minni mjög mikið. Ef
mér hefði ekki verið sagt upp á Morgunblaðinu
væri ég ekki að fást við það sem ég geri í dag og
heimasíðan mömmur.is væri ekki til.
Hvernig kviknaði hugmyndin að
síðunni mömmur.is?
Drög að vefsíðunni átti systir mín og opnaði
hún síðu á Barnalandi, þegar sá vefur var
sem vinsælastur. Hún hélt svakalega flotta
afmælisveislu fyrir elsta son sinn. Þetta var
stærsta eins árs afmæli sem ég hef séð,
kökurnar flæddu af borðunum og var þetta
myndað í bak og fyrir. Hún opnaði síðu sem
vakti mikla lukku meðal margra notenda og
var töluverð umferð um hana. Fyrsta afmælið
var þematengt og þar voru notaðar margar
skemmtilegar og frumlegar uppskriftir. Systir
mín hélt áfram að taka myndir af kökum sem
mv> e 1. tbl. NÓVEMBER 2009