Prentarinn - 01.11.2009, Page 14

Prentarinn - 01.11.2009, Page 14
Norrænt bókband 2009 Svanur Jóhannesson frá JAM-klúhbnum Sýningin Norrænt bókband var opnuð í Þjóðmenningarhúsinu síðastliðið sumar og stóð frá 5. júní til 7. ágúst. Á sýningunni voru 89 verk eftir 91 norrænan bókbindara, þar eð tvö verkanna voru gerð í samvinnu tveggja bókbindara. Þátttakendur bundu Ijóðabókina Norðanvind hver á sinn hátt. í bókinni eru Ijóð eftir 18 norræn skáld og grafískar teikningar eftir íslenska listamenn. Norrænt bókband 2009 sýnir afrakstur samnefndrar sam- keppni í handbókbandi. Keppnin var nú haldin í 14. sinn en fyrst var efnt til hennar 1956. Islend- ingar sáu í fyrsta sinn um skipulagn- ingu þessa norræna samstarfsverkefnis og var það handbókbandsklúbburinn JAM-hópurinn sem hafði umsjón með því fyrir Islands hönd. Þátttakan hefur aldrei verið meiri og skiptist þannig eftir löndum: Svíþjóð 26 verk, Danmörk 23, ísland 20, Finnland 10 og Noregur 10. Verkin voru dæmd eftir reglum keppninnar og var fjórðungur þeirra settur í heiðursflokk eða 23 verk. Dóm- ararnir voru allir íslenskir en þeir voru Guðmundur Oddur Magnússon, próf- essor í grafískri hönnun, Torfi Jónsson, myndlistarmaður og kalligraf, Hilmar Einarsson, bókbandsmeistari og forvörður í Morkinskinnu, og Theodór Guðmunds- son, bókbandsmeistari og meðlimur í sveinsprófsnefnd í bókbandi. Sýningin var að þessu sinni fyrst opnuð á Islandi en hún ferðast svo um öll Norðurlöndin. Síðast verður hún í Sví- þjóð og lýkur henni þar 15. ágúst 2010. G 1. tbl. NÓVEMBER 2009

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.