Prentarinn - 01.11.2009, Síða 23
Nú í október tókum við upp þá nýjung að
blása til Októberfestar að hætti vina okkar í
Þýskalandi. Vettvangurinn var mötuneytið
okkar þar sem jóðl, gleði og einfaldleiki réð
ríkjum.
Undanfarin ár hafa deildir innan fyr-
irtækisins tekið sig saman og starfsmenn
og makar farið saman á jólahlaðborð. Þykir
þetta þétta hópinn mikið, alltaf er gaman að
hitta vinnufélagana við aðrar aðstæður en á
vinnustaðnum og makar fá þar líka tækifæri
til að kynnast samstarfsmönnum.
Einhverjar deildir hafa í vikunni fyrir
jólahlaðborðið verið með „vinaviku“ þar sem
hver starfsmaður dregur sér sinn leynivin og
kemur honum á óvart alla vikuna. Það upp-
lýsist síðan á jólahlaðborðinu hver átti hvaða
vin, og myndast skemmtileg stemming í
kringum þetta.
I desember ár hvert stendur starfsmanna-
hver starfsmaður sinn mann til að gefa
pakka, og skrifar jafnvel Ijóð til hans, en það
upplýsist aldrei hver gefur hverjum pakka.
Fyrirtækið hefur líka verið duglegt að
sinna starfsmönnum sínum. A vorin er haldin
mikil vorhátíð þar sem fólk hittist eftir vinnu
og gæðir sér á veitingum og skemmtir sér
saman. I vor var blásið til mikils hreyf-
ingarátaks, þar sem starfsmönnum var skipt
upp í lið sem síðan kepptu innbyrðis um
hverjir væru duglegastir að hreyfa sig í fjórar
vikur. Var allt vandlega skráð niður og fengu
liðin stig fyrir hreyfitíma. Þetta hafði mjög
skemmtileg áhrif á vinnuandann og mikil
keppni var í mönnum. Á vorhátíðinni voru
síðan stigahæsta liðið, stigahæsti karlinn og
stigahæsta konan verðlaunuð. Nokkuð Ijóst
er að starfsmenn bíða spenntir eftir að blásið
verði til slíkrar keppni aftur næsta vor.
Kvos bauð starfsfólki og mökum í bfó nú
félagið fyrir jólaballi fyrir starfsmenn og
fjölskyldur þeirra, stóra sem smáa. Vel hefur
verið mætt á ballið og er mætingin alltaf
að aukast. Boðið er upp á veitingar og jóla-
sveinar mæta og dansa í kringum jólatréð og
skemmta ungum sem öldnum. Öll börn fá
nammipoka frá þeim.
Ymislegt er gert utan vinnutíma starfs-
fólksins og eru deildir misduglegar að hnna
sér tíma til að gera eitthvað skemmtilegt
saman, m.a. til að þétta hópana. Til dæmis
hafa hópar farið í keilu, sjóstangveiði og
óvissuferðir. Haldnar hafa verið púttkeppnir,
pílukastkeppnir og skutlukeppni og ekki er
langt síðan fólk fór í „Sing star“. Líklegt er að
þar sé komið ágætis atriði á næstu árshátíð!
Starfsfólk á skrifstofu og í tæknideildum hélt
sína Kvosarleika, þar sem keppt var í skrif-
stofustólakappakstri, bréfaklemmufærni og
fleiri skemmtilegum greinum. Fyrirtækið
býður starfsmönnum í hátíðlegt jólaboð á
Þorláksmessu ár hvert og hafa sumar deildir
haft þann sið um árabil að setjast niður
klukkutíma fyrir jólaboðið og skiptast á jóla-
pökkum. Þá, eins og í vinaleiknum, dregur
á haustdögum, og varð myndin „Karlar sem
hata konur“ fyrir valinu. Boðið var upp á
popp og kók. Mæting var góð og allir ánægðir
með þetta framtak, enda er hún frábær þessi
sænska mynd.
Oddi hefur boðið starfsmönnum og við-
skiptavinum sínum á hausttónleika nú í
haust og á síðasta ári. I fyrra spiluðu Bubbi
Morthens og Egóið í Kassagerðinni við mik-
inn fögnuð áhorfenda og nú f ár var það Hinn
íslenski Þursaflokkur sem sýndi snilli sína á
sama stað. Frábært framtak hjá Oddanum.
Starfsmannafélagið rekur tvo sumarbú-
staði, sem félagar hafa aðgang að allt árið um
kring. Hafa bústaðirnir verið vel nýttir allt
sumarið og flestar helgar yfir vetrartímann.
Annar bústaðurinn er í Uthlíð og hinn er í
Skorradal. Báðir eru þeir með heitum potti
og er aðstaða öll til fyrirmyndar.
Sjá má að okkur í Kvosinni leiðist ekki, hvorki
í vinnunni né utan vinnutíma með góðum og
skemmtilegum samstarfsfélögum.
MAÐUR ER MANNS GAMAN.
prentarinn www.fbm.is