Verktækni - 15.10.1996, Blaðsíða 6
VERKTÆKNI
Ferð byggingardeildar VFÍ í Kvíslaveitu
BVFÍ stóð í lok september
fyrir skoðunarferð í Kvísla-
veitu. Tilgangur ferðarinnar
var að skoða þær framkvæmdir
sem þar eru í gangi við fimmta
áfanga Kvíslaveitu í fylgd
starfsmanna verktakanna og
eftirlitsaðila Landsvirkjunar.
Þegar hópurinn hittist við
Verkfræðingahúsið kom í ljós
að með í för voru félagsmenn
sem þekktu vel til staðhátta á
leiðinni og fyrri virkjunarfram-
kæmda og nutum við leiðsagn-
ar og frásagna þeirra á leiðinni
Vinna við byggingu Þjórsárstíflu í 5. áfanga Kvíslaveitu. Horfl vestur yfir farveg Þjórsár frá botnrás. I miðju
stíflunnar sést þéttikjarninn úr jökulruðningi. Þar fyrir utan er sía og stoðfylling úr sendinni möl. Yst til
hægri er ölduvörn úr stórgrýti. Mynd tekin 28. sept. 1996. (Ljósm. Helga Þórhallsdóttir)
Djúpþjöppun í stíflugrunni Þjórsárstíflu. Þjappað var 4-5 metra breitt belti undir þéttikjarna jarðstíflunnar yfir
Þjórsáifaiyeginn. Um 5 metra langur stautur, svonefndur „titgandur", var rekinn allt að 4,5 m niður í
áreyrarnar, með 1,25 m millibili. Laus sendin mölin þjappaðist saman við þetta allt upp í 10% og yfirborð
lœkkaði um 30-40 cm. Tilgangur þjöppunarinnar var bœði að minnka lekt undir stífluna, en ekki síður að styrkja
stíflugrunninn og þar með minnka líkur á ysjumyndun í jarðskálfta, en ármölin er alveg vatnsmettuð. Ef
djúpþjöppun hefði ekki verið beitt, Iwfði þurft að grafa kjarnaskurð 3 m niður í grunnvatn með tilheyrandi
dœlingum og þjappa botn hans með þungum tilvaltara og byggja svo stíflukjarna upp þaðan. Þetta var dýrari
lausn. Undirverktaki við djúpþjöppunina var Valfell hf. Myndin er tekin 4. sept. 1996. (Ljósm. Birgir Jónsson.)
Unnið við veituskurð 5. áfanga Kvíslaveitu.frá Þjórsá að Hreysiskvísl. Skurðurinn er alls 2,2 km að lengd
og mesta dýpi um 16 metrar. Heildarrúmmálið er um 680 þúsund m', þar afer sprengd klöpp 45-50 þúsund
m'. Myndin er tekin til suðurs, 4. september 1996. Verktaki er Suðurverk. (Ljósm. Birgir Jónsson).
upp í Kvíslaveitu. Einar B.
Pálsson fyrrum prófessor
fræddi okkur um örnefni og
jarðfræði. Björn Jóhann
Björnsson jarðverkfræðingur
sagði frá fyrri áföngum Kvísla-
veitu. Ingvar Björnsson frá
Landsvirkjun sagði frá fram-
kvæmdum við Þórisósstífu, en
hún var heimsótt í leiðinni, þar
sem með í för var Páll Hannes-
son, fyrrum framkvæmdastjóri
Hlaðbæjar, en hann hafði
stjórnað byggingu hennar.
I Kvíslaveitu var vel tekið á
móti hópnum. Verktakarnir,
Suðurverk hf. og BV-tæki ehf.
buðu hópnum í mat og kaffi og
kunnum við þeim bestu þakkir
fyrir. Omar Ingólfsson, verk-
fæðingur hjá Hönnun hf., út-
skýrði þær framkvæmdir sem
nú eru í gangi áður en haldið
var í skoðunarferð í fylgd hans,
Dofra Eysteinssonar frá Suður-
verki og Gísla R. Rafnssonar
hjá BV-tækjum. Fram kom að
á þessu ári verður grafinn
skurður um 2200 m langur (um
680.000 m3) frá inntaki við
Þjórsárfarveg og niður í
Hreysiskvísl, þangað sem
Kvíslaveita nær nú. Þetta verk
er mjög langt komið. Ráðgert
er að hleypa vatni í skurðinn
nú í haust og verður þá veitan
að hluta komin í gagnið.
Unnið er við uppsteypu á
botnrás við Þjórsárstíflu og
byggingu brúar yfir skurðinn-
takið og er áætlað að þeim fram-
kvæmdum ljúki að mestu leyti
nú í haust. Alls er ráðgert að
steypa rúmlega 3000 m3. í haust
hófst vinna við stíilugerð í Þjórs-
árfarvegi og er ráðgert að koma
hluta hennar upp í kóta 611 m.
Stíflan mun í haust ekki loka
fyrir Þjórsárkvíslamar, því þeim
verður í vetur veitt í farveg vest-
an hennar. Stíflugerðinni mun
svo ljúka á næsta ári og verður
þá króna hennar í 617 m hæð
þegar byggingu líkur. Aður en
stíflugerðin hófst var unnið við
að þétta þann hluta stíflugrunns-
ins, sem verður undir þéttikjam-
anum, með djúpþjöppun og
bergþéttingu. Flóð í Þjórsárkvísl-
unum munu geta farið um botn-
rásina, sem lítið mun verða not-
uð eftir að framkvæmdum líkur.
I sumar hefur verið unnið á
vöktum allan sólarhringinn við
skurðgröft og stíflugerð.
Frh. á bls. 4
„Titgandurinn “ í návígi. Uggarnir út úr gandinum stœkka svœðið
sem þjappast. Tœknilegar upplýsingar gáfu Pálmi Ragnar Pálmason
VST, sem var jarðtæknilegur hönnuður stíflunnar og Eyjóljur Arni
Rafnsson Hönnun, sem var staðarverkfrœðingur afhálfu verkkaupa.
(Ljósm. Birgir Jónsson.)
Félagar í BVFI gœða sér á léttum veitingum í Búrfelli í boði
Landsvirkjunar. (Ljósm. Helga Þórhallsdóttir)
6