Verktækni - 15.10.1996, Síða 8
VERKTÆKNI
Dagbókin
Samlokufundur fimmtudaginn 7. nóvember 1996.
Hvað þarf til að kjörin batni?
Á samlokufundi í liádeginu fimmtudaginn 7. nóvember n.k. mun Þórarinn V. Þórarinsson
frá Vinnuveitendasambandi Islands fjalla um launamál og launaþróun. Hvað er það sem
veldur því að laun eru lægri hér á landi en í mörgum nágrannalöndum okkar? Eru afköst
lakari hér á landi? Ef svo er, hver er ástæðan fyrir því? Hvaða áhrif mun reglugerð ESB
um takmörkun vinnutíma hafa á launamál í landinu? Eru aðstæður til verulegra kjarabóta á
næstu misserum? Félagsmenn eru hvattir til að koma á fundinn, hlýða á erindi Þórarins og
skiptast á skoðunum um málefni sem snertir okkur öll. Fundurinn hefst kl. 12.00 og er hald-
inn í Verkfræðingahúsinu við Engjateig.
Kynningarnefnd TFl og VFI.
Námskeið í samskiptum við fjölmiðla
Endurmenntunar- og símenntunarnefnd VFÍ, TFI og SV (ENSIM nefndin)
stendur fyrir námskeiði um ofangreint efni.
Leiðbeinandi: Dr. Sigrún Stefánsdóttir, lektor og fjölmiðlafræðingur.
Staður og tími: Verkfræðingahús, 11 og 12 nóvember kl. 16-19.
Þátttökugjald er 6.000.- kr. á mann. Lágmarksþátttaka er 8 manns og þarf að
tilkynna þátttöku fyrir 1. nóv. '96 á skrifstofuna, s: 568 8511.
Tæknifræðingar
Tæknifræðingafélag Islands hefur samkvæmt tillögu endurmenntunarnefndar félagsins
ákveðið að bjóða tæknifræðingum til kynningarfunda um upplýsingaleit og notkun Inter-
netsins. Fyrstu tveir fundirnir hafa þegar verið haldnir en næstu fundir verða haldnir eft-
irfarandi daga:
5. nóv. kl. 16.00 - 18.00 fyrir byggingatæknifræðinga
19. nóv. kl. 16.00 - 18.00 fyrir stjórnun og rekstur
Þátttökugjald er kr. 500,- Staður: Tæknifræðingafélag íslands, Engjateig 9, Reykjavík.
Þátttakendur eru beðnir að skrá sig á skrifstofu félagsins. Fjöldi þátttakenda er takmarkað-
ur við 20 á hvern fund.
Opið hús
Stjóm Verkfræðingafélags íslands verður með „opið hús“ fyrir félagsmenn og velunnara
á III. hæð í Verkfræðingahúsi, fimmtudaginn 14. nóvember nk. milli kl. 17 og 19. Jón Böðvars-
son cand. mag. flytur stutt erindi unt „Norræna menn á Grænlandi“. Veitingar verða veittar
á vægu verði.
Stjórn VFÍ.
Framkvæmdir á Bessastöðum
Arkitektaféla íslands stendur fyrir hádegisverðarfundi fimmtudaginn 7. nóventber í
Kornhlöðunni í Bankastræti kl. 12:00. Þar munu Garðar Halldórsson, húsameistari ríkisins
og Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt ræða um framkvæmdir á Bessastöðum.
Bókaverslun - engar hillur!
Stærsta bókaverslun í heimi heitir amazon.com. Bókamenn verða fyrir sérstakri
tilfinningu er þeir koma inn í stóra bókabúð. Peir eru umkringdir tugum þúsunda
bóka sem hægt er að blaða í. Svona tilfinning er ekki fyrir hendi ef stærsta
bókabúð heimsins er heimsótt. Hún heitir amazon.com (http://www.amazon.com),
er á Internetinu og hefur á boðstólum meira en 1,1 milljón bókatitla, sem er sex
sinnum meira en stærsta “venjulega” bókabúð heims.
Aðrar bókabúðir á Internetinu eru t.d. “Bookserver” (http://www.bookserve.com)
en þar eykst salan um 20% á mánuði. Einnig finnast þar “Pandora’s Books
(http://portal.mbnet.mb.ca/pandora) auk bókabúðarinnar sem finnur ófinnanlegar
bækur: Hard-fo-find Needlework Books (http://www.needleworkbooks.com/).
Afhendingartími bókanna (þ.e. bókin send til kaupandans) er um 3 dagar innan
Bandaríkjanna, en lengri til fjarlægari lands.
(Úr Ingenören).
Námskeið á vegum EHÍ
Haldið á Akureyri 2. nóv. kl. 9-17 og 8. nóv.
kl. 12:30-17:30.
Gæðakerfi - ISO 9000
Kennarar: Pétur K. Maack prófessor og Kjartan J.
Kárason framkvæmdastjóri hjá Vottun hf.
5. og 7. nóvember kl: 8:30 - 12:00.
Betri gluggakerfi
Kennari: Marta Kristín Lárusdóttir, M. Sc. tölvunar-
fræðingur hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Haldið á Akureyri 9. og 10. nóv. kl. 12:30-17:30.
Innri gæðaúttektir fyrir stofnanir og fyrirtæki
Kennarar: Kjartan J. Kárason framkvæmdastj. hjá
Vottun hf og Einar Ragnar Sigurðsson rekstrarráðgjafi
hjá Ráðgarði hf. .
11. og 14. nóv. kl. 17-20.
Flutningur máls og framkoma í ræðustóli
Margrét Pálsdóttir málfræðingur.
11. -12. nóv. kl. 8:15-16:00.
Að ná árangri í samningum
Samningatækni fyrir þá sem eru að kaupa eða selja
Kennari: Alistair MacLennan er iðnaðarfélagsfræð-
ingur að mennt. Hann hefur stundað kennslu m.a. í
háskólum og ráðgjöf í Bretlandi og víðar í Evrópu.
M.a. fyrir A.P. Möller í Danmörku, Mars í Bretlandi,
Eimskip hér á landi o.fl.
11., 14. og 18. nóv. kl. 9-12.
Vefsmíðar 1 - Hönnun og notendaviðmót
Kennari: Gunnar Grímsson vefmeistari hjá this.is og
IO - InterOrgan
Netfang: gunnar@this.is - http://this.is -
http://this.is/io
12., 13., 19. og 20. nóv. kl. 13-16.
Tölfræðileg gæðastjórnun II - stýririt og
sýnatökur
Kennari: Guðmundur R. Jónsson dósent í véla- og
iðnaðarverkfræðiskor.
12. -14. nóv. kl. 16-19.
Umhverfismál frá sjónarhóli refsi- og skaðabóta-
réttar
Kennarar: Lögfræðingarnir Guðný Björnsdóttir hdl.,
Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri umhverfisráðu-
neyti, og Ragnheiður Bragadóttir dósent HI.
14. nóv. kl. 13:00-18:00.
Hópvinnukerfi - “Groupware”
Ný aðferð til að auðvelda samstarf innan fyrirtækja
og yfirsýn stjórnenda
Kennarar: Ólafur Daðason framkvæmdastjóri hjá
Hugviti hf og Jóhann P. Malmquist prófessor í tölvun-
arfræði við Háskóla Islands ásamt gestafyrirlesurum
sem hafa reynslu af notkun hópvinnukerfa.
18. - 20. nóv. kl. 9-17.
AutoCAD - grunnnámskeið
Kennari: Magnús Þór Jónsson prófessor HI.
19. -20. nóv. kl. 8:30-12:30.
Notkun tölvu við gæðastjórnun
Kennarar: Hörður Olavson framkv.stj. Hópvinnukerf-
um ehf., Páll E. Halldórsson verkfr. gæðastjóri Kassa-
gerðar Reykjavíkur og Guðjón Reynir Jóhannesson
gæðastj. Mjólkursamsölunnar í Rvk.