Dagfari - 01.10.1966, Blaðsíða 2
I
SJON-
VARPS-
MÁLID-
NÝ
VIÐHORF
t Keflavíkurgöngunni hefur jafnan verið lögð áherzla á
baráttuna gegn ameríska dátasjónvarpinu.
2 DAGFARI
A miðnefndarfundi 13. september 1966, var
samþykkt svofelld ályktun um þau tíðindi, sem
fram hafa komið í sjónvarpsmálinu:
Samtök hernámsandstæðinga fagna því að
ákveðið hefur verið að takmarka útsendingai
bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar á Keflavík-
urflugvelli. Þessi ákvörðun er mikilsverður sig-
ur í baráttu samtakanna gegn áhrifum her-
stöðvastefnunnar, þótt harma beri hina lágkúru-
legu frammistöðu íslenzkra stjórnarvalda í sjón-
varpsmálinu.
Samtökin vekja athygli á því, að «ekki er
allur vandi sjónvarpsmálsins leystur með þess-
ari ákvörðun. Enn er ekki fullljóst, hversu hald-
bær hin fyrirhugaða takmörkun Keflavíkur-
sjónvarpsins verður vegna loðins orðalags í yf-
irlýsingum herstjórnarinnar um „næsta ná-
grenni" Keflavíkurflugvallar.
Það er krafa samtakanna, að sjónvarp Banda-
ríkjamanna verði takmarkað við herstöðvai
þeirra og þeim gert að nota lokað kerfi fyrh
herstöðina á Keflavíkurflugvelli á sama hátt
og nú er unnið að fyrir herstöðina í Hvalfirði.
Jafnframt er það krafa þeirra, að takmörkun
hersjónvarpsins gangi í gildi strax og íslenzka
sjónvarpið tekur reglulega til starfa.
I því sambandi leggja samtökin sérstaka á-
herzlu á, að sem bezt verði vandað til dag-
skrárefnis íslenzka sjónvarpsins og unnið verði
eins hratt að útfærslu þess um landið og auðið
er.
Samtökin minna á, að eftir sem áður er
Bandaríkjaher látið haldast uppi að starfrækja
útvarpsstöð í íslenzkri menningarhelgi í tráss.i
við landslög.
í því sambandi vilja samtökin vekja athygli
allra landsmanna á því, að rekstur hins banda-
ríska sjónvarps og útvarps er aðeiris afsprengi
höfuðmeinsins: hinnar erlendu hersetu. Fyrir-,
sjáanleg takmörkun hins erlenda sjónvarps
mætti verða öllum þjóðhollum íslendingum
hvatning til að efla baráttuna ge’gn bandarísk-
um herstöðvum á landi voiu.