Dagfari - 01.02.1992, Side 1

Dagfari - 01.02.1992, Side 1
1. tbl. 18. árgangur, febrúar 1992. Fréttaútgáfa. Úlgefandi: Samtök herstöövaandstæOinga, ÓOinsgölu 1. Póslhólf 5487 • 125 Reykjavík. Sími 17966. Ábm. Jón Torfason. Skrifslofan er opin á mánudögum, þruOjudögum og fimmtudögum frá kl 16:30 til 18:30 Þess utan hafiö samband viö Guörúnu í síma 91-25549 cöa Ingibjörgu í síma 91-28653. SHA flutti í nýtt húsnæði að Óðinsgötu 1. í nóvember síðastliðinn, er það mjög hentugt þar sem það er á jarðhæð gengið inn af götunni, þannig að núna er auðveldara að nálgast okkur. Frá landsráðsstefnu Úr skýrslu forinanns: Hér á eftir fer stutt samantekt um starfsemi samtakanna ú starfsárinu. Starfið hefur einkennst af þröngri fjárhagsstöðu, en eins og fram kemur í reikningum síðasta árs hafa alltof fáir stuðningsmenn okkar borgað gíróseðilinn sinn og við því haft úr minna að spila en ella. Þetta hefur gert okkur erfitt fyrir því starfið kostar peninga og of mikil orka hefur farið í það að láta endana ná saman. Vegna mikils samdráttar í vopnabirgðum stórveldanna. telja margir að baráttan sé ekki eins nauðsynleg og áður en gleyma því að mjög lítið hefur verið dregið úr umsvifum hersins og þau jafnvel verið aukin á sumum sviðum (t.d. hvað varðar heræfingar) á sama tíma og verið er að fækka í herjum og leggja niður herstöðvtu- í öðrum löndum. AÐGERÐIR SAMTAKANNA: Stærsta aðgerð ársins var Keflavíkurgangan lO.ágúst. Gífurleg vinna var lögð í undirbúning hennar og miklu til kostað en þó reynt að halda öllum kostnaði í lágmarki. Um miðjan júní var undirbúningur kominn á fullan skrið. Við vorum í nokkuð erfiðri stöðu varðandi tímasetningu göngunnar þvi reynslan hefur sýnt að erfitt er að safna peningum rétt eftir kosningar. Besti tíminn til aðgerða er hins vegar á vorin þ.e í lok maí eða byrjun júní.

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.