Dagfari - 01.02.1992, Page 1
1. tbl. 18. árgangur, febrúar 1992. Fréttaútgáfa.
Úlgefandi: Samtök herstöövaandstæOinga, ÓOinsgölu 1. Póslhólf 5487 • 125 Reykjavík. Sími 17966. Ábm.
Jón Torfason. Skrifslofan er opin á mánudögum, þruOjudögum og fimmtudögum frá kl 16:30 til 18:30 Þess utan
hafiö samband viö Guörúnu í síma 91-25549 cöa Ingibjörgu í síma 91-28653.
SHA flutti í nýtt húsnæði að Óðinsgötu 1. í nóvember síðastliðinn, er það mjög
hentugt þar sem það er á jarðhæð gengið inn af götunni, þannig að núna er
auðveldara að nálgast okkur.
Frá landsráðsstefnu
Úr skýrslu forinanns:
Hér á eftir fer stutt samantekt um starfsemi samtakanna ú starfsárinu. Starfið hefur einkennst af
þröngri fjárhagsstöðu, en eins og fram kemur í reikningum síðasta árs hafa alltof fáir
stuðningsmenn okkar borgað gíróseðilinn sinn og við því haft úr minna að spila en ella. Þetta hefur
gert okkur erfitt fyrir því starfið kostar peninga og of mikil orka hefur farið í það að láta endana
ná saman. Vegna mikils samdráttar í vopnabirgðum stórveldanna. telja margir að baráttan sé ekki
eins nauðsynleg og áður en gleyma því að mjög lítið hefur verið dregið úr umsvifum hersins og þau
jafnvel verið aukin á sumum sviðum (t.d. hvað varðar heræfingar) á sama tíma og verið er að fækka
í herjum og leggja niður herstöðvtu- í öðrum löndum.
AÐGERÐIR SAMTAKANNA:
Stærsta aðgerð ársins var Keflavíkurgangan lO.ágúst. Gífurleg vinna var lögð
í undirbúning hennar og miklu til kostað en þó reynt að halda öllum kostnaði í
lágmarki. Um miðjan júní var undirbúningur kominn á fullan skrið. Við vorum í
nokkuð erfiðri stöðu varðandi tímasetningu göngunnar þvi reynslan hefur sýnt að
erfitt er að safna peningum rétt eftir kosningar. Besti tíminn til aðgerða er hins
vegar á vorin þ.e í lok maí eða byrjun júní.