Dagfari - 01.10.2005, Blaðsíða 2
Tímamót í starfi Samtaka herstöðvaandstæðinga
Tíu ár eru um þessar mundir liðin frá
því að SHA sagði upp leiguhúsnæði sínu
að Óðinsgötu og hættu þar með rekstri
almennrar skrifstofu. Þessi ráðstöfun
var til komin vegna mikilla skulda
og erfiðleika í rekstri samtakanna, en
friðarhreyfingar víða um lönd áttu erfitt
uppdráttar á tíunda áratug síðustu aldar.
Ljóst er að lifandi hreyfingu er mikilvægt
að eiga sér samastað, þar sem félagar geta
komið saman og áhugasamt fólk kynnt
sér starfið og stefnuna. A sama hátt
valda stöðugir flutningar því að gögn og
gripir geta farið forgörðum og mikil orka
fer í snúninga sem lítt tengjast hinum
eiginlegu markmiðum félagsins.
Það var framfaraspor þegar SHA tók á Ieigu
herbergi í Hamraborg í Kópavogi fyrir
nokkrum misserum. Það húsnæði hefur
nýst ágætlega til stjórnarfunda og sem
geymsla fyrir helstu eigur félagsins. Ljóst
mátti þó vera að starfsemi samtakanna
er alltof mikil til að slíkt húsnæði gæti
dugað til lengdar. Af þeim sökum var
samþykkt, fyrst á landsráðstefnu 2002 og
svo ítrekað ári síðar að kanna möguleika
á því að eignast húsnæði sem nýst gæti til
langframa.
Það var loks hinn 30. mars 2004 að
eignarhaldsfélagið Friðarhús SHA ehf. var
stofnað til að standa að kaupum á húsnæði.
Þá þegar hófst söfnun hlutafjár, en hver
hlutur er að andvirði 10.000 kr. Síðan
þá hafa tæplega hundrað manns skráð
sig fyrir hlut, en markmiðið er að fjölga
hluthöfum verulega. Styrkur samtakanna
hefur ætíð falist í fjölda félagsmanna og
virkri þátttöku sem flestra.
Síðsumars 2005 náði stjórn Friðarhúss
SHA ehf. samningum um kaup á húsnæði
við Snorrabraut. Undanfarnar vikur hafa
staðið yfir breytingar á húsnæðinu og
uppsetning aðstöðu sem hentað getur
starfsemi frjálsra félagasamtaka eins
og SHA. Nú er sú vinna langt komin
og ætlunin að vígja húsið formlega á
landsráðstefnu samtakanna þann 5.
nóvember.
www.fridur.is
2