Dagfari - 01.10.2005, Qupperneq 3

Dagfari - 01.10.2005, Qupperneq 3
Margt á prjónunum Hið nýja húsnæði SHA á horni Snorrabrautar og Njálsgötu tengist sögu verslunar í Reykjavík með órjúfanlegum hætti. Þar var um árabil starfrækt Prjónabúðin Erla, sem er áhugafólki urn hannyrðir að góðu kunn. Prjónabúðin er nú flutt á næsta götuhorn, á mótum Snorrabrautar og Grettisgötu. I grein í Dagfarahaustið 2002, voru reifaðir þeir kostir sem framtíðarhúsnæði þyrfti að búa yfir. Var þar meðal annars rætt um að gamalt skrifstofu- eða verslunarhúsnæði í Þingholtunum kæmi vel til greina. Þetta húsnæði er á næstu slóðum í Tungunni svokölluðu, milli Spítalahlíðar og Skuggahverfis. Staðsetningin er því eins og best verður á kosið, 100 metra frá Laugaveginum og áberandi gluggar snúa að fjölfarinni umferðargötu. Húsnæðið uppfyllir fyllilega væntingar okkar. Þar má hæglega halda sextíu manna samkomur og 100 manns geta setið á fyrirlestri. Gott veggpláss nýtist tii hverskonar sýningarhalds og góð aðstaða er fyrir skrifstofurekstur og geymslur fyrir eigur SHA. Eignin er að hluta til á fyrstu hæð með sérinngangi og síðan gengið niður hálfa hæð í hinn hlutann. Skráð stærð Friðarhússins er 125 fermetrar, þar af er stærsta opna pláss um 70 fermetrar. Kaupverð er 9,5 milljónir. Aðstandendur Friðarhúss eru fullvissir um að þetta húsnæði verði öflug lyftistöng fyrir friðarbaráttuna á Islandi. Ekki er vanþörf á því eins og staða mála er í heiminum í dag. Hvernig gerist maður hluthafi? Það gefur auga leið að friðarsinnar munu nú sem áður leggja allt sem þeir geta að mörkum til að liðsinna Samtökum herstöðvaandstæðinga í baráttu sinni fyrir afvopnun og friði í heiminum. Ein leið til þess er að gerast hluthafi í eignarhaldsfélaginu Friðarhúsi SHA ehf. Leiðin til þess er sáraeinföld. Þeir sem gerast vilja hluthafar geta lagt beint inn á reikning nr. 0130-26-2530, en kennitala Friðarhúss SHA ehf. er 600404-2530. Hver hlutur er að andvirði 10.000 krónur, en þeim sem styðja vilja við bakið á félaginu er vitaskuld heimilt að kaupa fleiri hluti eða styrkja það með öðrum hætti. Frekari upplýsingar veita Sigurður Flosason gjaldkeri s. 554-0900, Elvar Ástráðsson stjórnarformaður s. 561-5549 og Stefán Pálsson s. 617-6790. Einnig má senda tölvupóst á netfangið sha@fridur. is. 3

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.