Dagfari - 01.10.2005, Blaðsíða 4

Dagfari - 01.10.2005, Blaðsíða 4
Virt fræðikona heimsækir Island Þriðjudaginn 9. ágúst s.l. minntust íslenskar friðarhreyfingar þess að 60 ár væru liðin frákjarnorkuárás Bandaríkjanna á japönsku borgina Nagasaki. Metfjöldi lagði leið sína á kertafleytingu á bakka Reykjavíkurtjarnar þá um kvöldið. I Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur stóð Samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir fundi þar sem þessara hryðjuverka var minnst. Meðal ræðumanna var sænski rithöfundurinn og fræðikonan Monica Braw. Hún flutti erindi um afleiðingar árásanna, afdrif fólksins sem lifði þær af og hvernig stjórnvöld í Japan og Bandaríkjunum reyndu að þagga niður umræðu um málið. Monica Braw er einn kunnasti sérfræðingur Norðurlandanna á þessu sviði. Hún bjó í Japan um árabil og bók hennar “Overlevarna” hefur komið út á fjölda tungumála. Heimsókn hennar vakti milda athygli fjölmiðla og var hún meðal annars gestur í Kastljósi Sjónvarpsins og í ýmsum fréttaskýringaþáttum á Rás 1 og Rás 2. Það er íslenskum friðarsinnum mikill styrkur að fá að njóta krafta erlendra fyrirlesara og fræðimanna sem geta eðlilega miðlað sýn á þessi mál sem er ólík því sem við eigum að venjast. Stefnuskrá SHA endurskoðuð StefnuskráSamtakaherstöðvaandstæðinga var samþykkt á landsráðstefnu haustið 1995 eftir talsverðar umræður. Markmið samtakanna eru skýr og standa vel fyrir sínu, þrátt fyrir að margt hafi breyst í heiminum á síðustu tíu árum. Þannig hafa Islendingar í þrígang gerst aðilar að stríðsátökum, ýmist með beinum hætti eða með almennum stuðningsyfirlýsingum. Hverjum félagasamtökum er hollt að fara reglulega í málefnalega endurskoðun. A landsráðstefnu SHA laugardaginn 5. nóvember næstkomandi verður stefnuskráin rædd og tekin til endurskoðunar. Sú vinna er raunar þegar hafin og hafa tveir almennir félagsfundir verið helgaðir þessu efni, báðir haldnir í hinum nýju húsakynnum samtakanna á horni Snoorabrautar og Njálsgötu. Voru báðir velsóttir og var skipst á skoðunum af hreinskiptni. 4

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.