Dagfari - 01.10.2005, Side 8

Dagfari - 01.10.2005, Side 8
Sprengjurnar Uppgjöf Japana var yfirvofandi, pað var í raun engin ástœðafyrir okkur að beita þessu hroðalega vopni. Tilvitnunin að ofan er ekki úr fengin úr bók einhvers róttæks sagnfræðings eða bláeygðs friðarsinna. Hún er höfð eftir Dwight Eisenhower, yfirhershöfðingja sveita bandamanna í Evrópu og síðar forseta Bandaríkjanna. Hún er í fullu samræmi við það álit bandarískra sérfræðinga þegar komið var fram á mitt ár 1945 að japanski herinn gæfist upp fyrir árslok, jafnvel þótt hvorki kæmi til innrásar bandarísks herliðs eða Rauði herinn blandaði sér í átökin. Þeir fræðimenn sem ráðist hafa gegn goðsögninni um að kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki hafi verið “óumflýjanlegar” hafa úr nægu að moða og þeirra bestu heimildir eru einmitt skrif og skýrslur Bandaríkjamanna sjálfra. I ljósi þessa má ótrúlegt heita hversu lífseig hugmyndin um nauðsyn þess að eyða borgunum tveimur hefur reynst í sumum vestrænum fjölmiðlum. Svo litið sé framhjá brjálsemi þeirrar hugmyndar að reyna að réttlæta sprengjuárásir sem þurrkuðu út heilar borgir með “mannúðarrökum”, standast slíkar rökfimiæfingar enga sögulega skoðun. Megintilgangurinn með kjarnorku— árásunum á Hiroshima og Nagasaki var tvíþættur. I fyrsta lagi var markmið Bandaríkjastjórnar að sýna umheiminum mátt hins nýja vopns. Hins vegar réðu innanlandspólitískar ástæður för. Bandaríkjaþing hafði eytt gríðarlegum fjárhæðum til þróunar á kjarnorkusprengjunni og krafðist þess að sjá afrakstur útgjaldanna. Ef sprengjunum hefði ekki verið varpað, var hætt við að Manhattan-áætlunin yrði talin stórkostlegasta dæmi sögunnar um sóun á almannafé og því getað rústað pólitískan feril þeirra sem börðust fyrir henni. Margt gagnrýnivert má segja um stefnu Bandaríkjastjórnar síðustu áratugina, en eitt verður þó að hrósa bandaríska stjórnkerfinu fyrir. Það er hversu litlar hömlur stjórnvöld þar reyna að leggja á birtingu skjala og upplýsinga sem náð hafa tilteknum aldri - hversu vandræðaleg sem opinberun þeirra kann að reynast fyrri valdhöfum. Sagnfræðingar hafa þannig getað kynnt sér í þaula ýmis skjöl er tengjast aðdraganda kjarnorkuárásanna og áætlanir stjórnvalda í Washington í þeim efnum. Þessi gögn leiða berlega í ljós að öll vinna Manhattan- áætlunarinnar miðaðist að því að varpa sprengjunni á Japan. A fundum æðstu ráðamanna á árinu 1943, þegar Þýskaland Hitlers var ennþá virkur þátttakandi í stríðinu, var aldrei rætt um þann möguleika að beita kjarnorkuvopnum gegn Þýskalandi. Tæknilegar ákvarðanir á byggingarstigi sprengjanna, miðuðust við flugvélar Kyrrahafsflotans og fleira mætti telja til. 8

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.