Dagfari - 01.10.2005, Page 8
Sprengjurnar
Uppgjöf Japana var yfirvofandi, pað
var í raun engin ástœðafyrir okkur að
beita þessu hroðalega vopni.
Tilvitnunin að ofan er ekki úr fengin úr
bók einhvers róttæks sagnfræðings eða
bláeygðs friðarsinna. Hún er höfð eftir
Dwight Eisenhower, yfirhershöfðingja
sveita bandamanna í Evrópu og síðar
forseta Bandaríkjanna. Hún er í fullu
samræmi við það álit bandarískra
sérfræðinga þegar komið var fram á mitt
ár 1945 að japanski herinn gæfist upp
fyrir árslok, jafnvel þótt hvorki kæmi til
innrásar bandarísks herliðs eða Rauði
herinn blandaði sér í átökin.
Þeir fræðimenn sem ráðist hafa gegn
goðsögninni um að kjarnorkuárásirnar
á Hiroshima og Nagasaki hafi verið
“óumflýjanlegar” hafa úr nægu að moða
og þeirra bestu heimildir eru einmitt skrif
og skýrslur Bandaríkjamanna sjálfra. I
ljósi þessa má ótrúlegt heita hversu lífseig
hugmyndin um nauðsyn þess að eyða
borgunum tveimur hefur reynst í sumum
vestrænum fjölmiðlum. Svo litið sé framhjá
brjálsemi þeirrar hugmyndar að reyna að
réttlæta sprengjuárásir sem þurrkuðu út
heilar borgir með “mannúðarrökum”,
standast slíkar rökfimiæfingar enga
sögulega skoðun.
Megintilgangurinn með kjarnorku—
árásunum á Hiroshima og Nagasaki
var tvíþættur. I fyrsta lagi var
markmið Bandaríkjastjórnar að sýna
umheiminum mátt hins nýja vopns.
Hins vegar réðu innanlandspólitískar
ástæður för. Bandaríkjaþing hafði eytt
gríðarlegum fjárhæðum til þróunar
á kjarnorkusprengjunni og krafðist
þess að sjá afrakstur útgjaldanna. Ef
sprengjunum hefði ekki verið varpað, var
hætt við að Manhattan-áætlunin yrði talin
stórkostlegasta dæmi sögunnar um sóun á
almannafé og því getað rústað pólitískan
feril þeirra sem börðust fyrir henni.
Margt gagnrýnivert má segja um stefnu
Bandaríkjastjórnar síðustu áratugina,
en eitt verður þó að hrósa bandaríska
stjórnkerfinu fyrir. Það er hversu litlar
hömlur stjórnvöld þar reyna að leggja á
birtingu skjala og upplýsinga sem náð
hafa tilteknum aldri - hversu vandræðaleg
sem opinberun þeirra kann að reynast
fyrri valdhöfum.
Sagnfræðingar hafa þannig getað kynnt sér
í þaula ýmis skjöl er tengjast aðdraganda
kjarnorkuárásanna og áætlanir stjórnvalda
í Washington í þeim efnum. Þessi gögn
leiða berlega í ljós að öll vinna Manhattan-
áætlunarinnar miðaðist að því að varpa
sprengjunni á Japan. A fundum æðstu
ráðamanna á árinu 1943, þegar Þýskaland
Hitlers var ennþá virkur þátttakandi
í stríðinu, var aldrei rætt um þann
möguleika að beita kjarnorkuvopnum
gegn Þýskalandi. Tæknilegar ákvarðanir á
byggingarstigi sprengjanna, miðuðust við
flugvélar Kyrrahafsflotans og fleira mætti
telja til.
8