Dagfari - 01.10.2005, Blaðsíða 9

Dagfari - 01.10.2005, Blaðsíða 9
Fregnir þessar áttu síðar eftir að koma mörgum þeirra vísindamanna sem unnu að gerð kjarnorkusprengjunnar í opna skjöldu, enda margir þeirra Evrópubúar sem töldu sig vinna í kapp við nasista og að vopnið skelfilega yrði notað til að knésetja Þriðja ríkið. Ljóst má vera að bandarískir ráðamenn töldu kjarnorkusprengjuna vera of skelfilegt vopn til að beita gegn kristnum, hvítum íbúum Þýskalands. Falsrökin um að beiting kjarnorkusprengju væri réttlætanleg til að afstýra mögulegu mannfalli í hernaði áttu greinilega ekki við í Evrópu. I ljósi þessa liggur beint við að álykta að valið á skotmörkum fyrir sýnissprengingarnar hafi byggst á rasískum sjónarmiðum. Nokkuð ber á því að þeir sem fjalla um þessa sögu, reyni að bera blak af þeim mönnum sem tóku ákvörðunina um fjöldamorðin. Er þá stundum gripið til þeirra raka að hana beri að skilja í ljósi aðstæðna, að stærð hamfaranna hafi ekki verið mönnum ljóst eða drápin virst léttvægari í ljósi hörmunga stríðsins. En sú málsvörn er máttlaus, því af umræðum þeirra manna sem ákvörðunina tóku sést að þeir skildu fyllilega umfang þeirra glæpaverka sem þeir ætluðu að fremja. Sprengjurnar sem féllu á Hiroshima og Nagasaki voru stærsta opinbera aftaka sögunnar. Slíka glæpi er aldrei unnt að fyrirgefa. Stefán Pálsson Aður birt á Friðarvefnum www.fridur.is 2. ágúst 2005. Ályktun vegna komu rússneskra herskipa til Reykjavíkur Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla komu rússnesku herskipanna Levtsjenkó aðmíráls og Vjazma til Reykjavíkur og árétta að slík herskip eigi ekki erindi í Reykjavíkurhöfn. Það er óskiljanlegt að Reykjavíkurborg skuli ítrekað hleypa slíkum drápstólum að bryggju. í “virðingarskyni við Island”. Við viljum árétta að slíkar seremóníur eru ekki í samræmi við hefðir vopnlausrar þjóðar og að ýmsar aðrar leiðir eru til að sýna Islandi og Íslendingum virðingu. SHA - 11.7.2005 Einnig mótmælir SHA fallbyssuskothríð rússnesku skipanna sem að sögn var gerð 9

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.