Aðventfréttir - 01.02.1999, Blaðsíða 1
Aðvent
FRÉTTIR
MÁLGAGN SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA Á ÍSLANDI - 62. ÁRG. - 2. TBL. 1999
Skírnin
leika þeirra og einlægni, félagslyndi
þeirra og andlega þrá. Tel ég það fullvíst
að Eric get sagt hið sama um skírnarþeg-
ann að austan.
A þessum langa tíma sem við höfum
hitst í kristinfræðitímum skólans og í
skímarfræðslunni sjálfri höfum við farið
víða. Við höfum skoðað sköpunarfrá-
sögnina og undrast yfir ómælanlegum
krafti og visku Guðs, þegar hann bauð
og allt varð til samkvæmt hugsun hans,
hönnun og sköpun. Við fórum einnig
um óravíddir alheimsins með aðstoð
stjörnufræðinnar og glöddumst yfir ótrú-
legu litrófi og endalausu formi þessa
stórkostlega listaverks. Einnig þótti
okkur gaman af nákvæmni og áreiðan-
leik spádómanna varðandi bæði fyrri og
síðari komu Jesú Krists. Lögmálum
Drottins lærðum við að bera mikla virð-
ingu fyrir: lögmáli miskunnarinnar, lög-
máli siðferðisins og lögmáli náttúrunnar.
Dauðann óttumst við ekki lengur, því
hann er eins og nætursvefn eða stutt hlé
þar til nýr dagur rennur og eilífðin sem á
sér engan endi tekur við, á nýrri jörð -
undir nýjum himni, þar sem hvorki er til
sjúkdómur, né elli, né dauði, því öll lög-
mál Skaparans starfa fullkomlega. Eg
gæti haldið frásögninni áfram enn um
góða stund, en ég vil ljúka henni hér og
þakka af hjartans einlægni ungmennun-
um samfylgdina með bæn til Guðs um
að blessun hans fylgi þeim sérhvert fót-
mál þar til að himininn sjálfur tekur við
- við endurkomu Jesú Krists.
Björgvin Snorrason
Efri röð frá vinstri: Hjörtur Már Helgason, Aron Axel Cortes, Marinó Muggur
Porbjamarson, Amar Bjarki Kristinsson, Andri Pór Kristinsson. Neðri röð frá vinstri:
Sigríður Lena Sigurbjamadóttir, Berglind Rós Davíðsdóttir, Aðalheiður Erla Davíðsdóttir
og Björgvin Snorrason sem skirði hópinn. Pau tilheyra öll Reykjavíkursöfnuði.
Skírnin er stórkostlegur og mikil-
vægur atburður í lífi sérhvers krist-
ins manns. Hún er undirritun hins
nýja sáttmála hins kristna við Guð. En
Jesús Kristur undirritaði þennan sama
sáttmála fyrir hönd Guðs á krossinum
með dauða sínum og síðar upprisu sinni
frá dauða. Þessi sáttmáli er órjúfanlegur
nema ef hinn kristni skyldi kjósa að
hverfa til lífsstíls í stöðugri synd. Gerast
atvinnumaður í synd, þ.e.a.s., ljúga stöð-
uglega og stela án afláts, svo dæmi séu
tekin.
Fyrirgefning sáttmálans er ótæmandi
brunnur miskunnar. Frá sáttmálanum
streymir einnig ómælt tilreiknað réttlæti,
vegna eilífrar fyrirbænar Jesú Krists, því
hann þekkir ófullkomleika okkar. Sátt-
málinn veitir að lokum hinum kristna
stöðugan aðgang að Heilögum Anda, svo
framarlega sem hinn kristni velur að vaxa
í kærleika til Guðs og manna á hverjum
degi, svo lengi sem líf varir.
Gæði þessa sáttmála eru svo mikil að
ungmennin 9 kusu að undirrita hann í
skím þann 1. maí síðastliðinn. Þeim
degi mun ég aldrei gleyma. Guð var til
staðar fyrir Anda sinn og engla sína.
Sérstakar þakkir vil ég færa söng- og
tónlistarfólkinu sem blessaði alla við-
stadda með list sinni.
Það voru stórkostleg forrettindi fyrir
mig að hitta 8 af þessum ungmennum
síðastliðna tvo vetur og upplifa hrein-
Perla Dís Ragnarsdóttir sem tilheyrir
Amessöfnuði. Eric Guðmundsson skírði.