Aðventfréttir - 01.01.2004, Qupperneq 7
Glœsilegur árangur fiðlunemenda
Á myndinni sjást nemendur ásamt kennara sínum, frá vinstri;
Fairlyn Anne Ditta, Sean Bradley (kennari), Freyja Rut
Garðarsdóttir, Beverly Mariel Ditta, Kristín Gísladóttir
(listgreinakennari) og Elfa Frið Haraldsdóttir.
Glœsilegur árangur náðist
hjá nemendum á fyrsta
stigi fiðlunáms við
Suðurhlíðarskóla skólaárið
2003-2004, undir stjórn
Sean Bradley kennara.
Lokaeinkunnir nemendanna
voru á bilinu 8,8 - 9,6!
Prófdómari var Mary
Campbell skólastjóri
Suzuki tónlistaskólans. Einn
hinna áhugasömu
nemenda er Kristín
Gísladóttir,
listgreinakennari skólans.
Prófskírteini fyrir
fiðlunámið voru afhent á
skólaslitunum, 9. júní s.l.
Sérstakar þakkir til Esterar
Ólafsdóttur, píanókennara
skólans, fyrir framlag sitt.
Judel Ditta
/Eskulýðsbœnavika 2.- 8. febrúar 2004
Harald Giesebrecht frá
Noregi kom og var
rœðumaður á
Æskulýðsbœnavikunni í
febrúar. Hann er kennari
við bréfaskólann okkar í
Noregi ásamt því að vera
prestur nýjasta safnaðarins
í Osló. Harald beindi
þessa viku sjónum okkar að
því hvernig það er að lifa í
ríki Guðs. Við hittumst á
hverju kvöldi frá
mánudeginum til
fimmtudagsins og vorum
svo saman í
Hlíðarsdalsskóla frá
föstudagskvöldi til
sunnudags. Yfirskrift
vikunnar var að þessu sinni
Hœttuleg trú — því þegar
maður tekur við Guði
breytist lífið stórkostlega.
Kristur vill ekki aðeins að
við lifum eilíflega með
honum eftir að hann kemur
aftur, heldur vill hann að
við byrjum þá göngu með
honum nú í dag! Harald
sýndi okkur m.a. hvernig
við sem ríkisborgarar í ríki
Guðs eigum fyrirmynd í
frelsara okkar og hvernig
við getum tekist á við
mannlegar tilfinningar svo
sem reiði og afbrýðisemi
Harald og fjölskylda
hans viö
Hlióardalsskóla
á hátt sem sœmir íbúum
konungsríkis Krists.
KRISTUR VILL EKKI
AÐEINS AÐ VIÐ
LIFUM EILÍFLEGA
MEÐ HONUM
EFTIR AÐ HANN
KEMUR AFTUR,
HELDUR VILL
HANN AÐ VIÐ
BYRJUM ÞÁ
GÖNGU MEÐ
HONUM NÚ í
DAG!
Blaðsíða 7