Aðventfréttir - 01.01.2004, Blaðsíða 9
rökstuddar athugasemdir
við fyrirhugað deiliskipulag
þar sem kraf-ist var að
sveitarstjón Ölfuss myndi
binda deiliskipulagið
ítarlegri skilyrðum en fram
koma í úrskurði
Skipulagsstofnunar.
Jörundur upplýsti Orkuveitu
Reykjavíkur og
Iðnaðarráðuneytið
jafnframt um málið.
Möquleiki á sölu
áhœttusvœðisins
Jafnframt benti Jörundur í
greinargerð sinni á þann
möguleika hreinlega að
hefja viðrœður við
Orkuveitu Reykjavíkur um
að fyrirtœkið leysti til sín
þau vatnsréttindi sem vœru
í mestri hœttu með að
skerðast eða spillast af
völdum virkjunarinnar. Þessi
tillaga er byggð á þeim
rökum að skerðing
landgœða á umrœddu
landsvœði af völdum
niðurrennslisins er talin ncer
óumflýjanleg en jafnframt
er talið afar torsótt og
kostnaðarsamt að sanna
raunverulegt umfang
þessarar skerðingar og
ekki á fœri einkaaðila. Því
taldi Jörundur sölu á
landinu farsœlasta kostinn
og að það mœtti m.a.
byggja slíkar viðrœður á
lagalegum sjónarmiðum um
grennd, eignarnám og
jafnrœði.
Kirkjan fól Jörundi að rœða
við Orkuveituna um að
gera tilboð í vatns- og
landsréttindi á nyrsta hluta
jarðarinnar sem afmarkast
af línu sem dregin er milli
eftirtalinna landamerkja:
miðju Þúfnavalla, Rauðhóls,
Lambafells, vestasta horns
Lönguhlíðar og aftur í miðju
Þúfnavalla. Hér eru þó
undanskyld fjöllin
Lambafell og Litla-Sandfell
sem verða áfram í eigu
kirkjunnar en í þeim eru
virkar malarnámur sem
áfram verða nýttar. Um er
að rœða 21,7 ferkílómetra
lands. Viðbrögð
Orkuveitunnar voru þau að
bjóða 1,1 milljón króna
fyrir hvern ferkílómetra
landsins sem er sama verð
og fyrirtcekið hefur greitt
öðrum landeigendum í
Ölfusi fyrir land þeirra á
Hellisheiði. Þó vildu þeir
greiða tvöfalda þá
upphceð fyrir um Va
landsins, þann hluta þess
sem telst á mörkum
háhitasvœðis.
Samráðsfundur stiórnar.
fulltrúa safnaða oq
löamanns
Þann 23. maí s.l. var síðan
efnt til samráðsfundar þar
sem stefnt var saman
fulltrúum frá hinum ýmsu
söfnuðum kirkjunnar,
prestum, deildarstjórum og
öðrum ráðgjöfum með
Jörundi Gaukssyni lögmanni
og stjórn kirkjunnar í
Suðurhlíðarskóla. A
fundinum var rceddi sú
tillaga að veita Jörundi
umboð til að ganga frá
sölu á nyrsta hluta jarðar
Breiðbólstaðar í hendur
Orkuveitu Reykjavíkur eins
og áður segir eða allt land
norðan línu sem dregin
hefur verið milli
landamerkjanna vestasta
horn Lönguhlíðar og
Þúfnavalla. Landið yrði selt
Orkuveitunni með öllum
gögnum og gceðum að
undanskildu Lambafelli og
Litla-Sandfell þar sem
námuvinnsla er starfrcekt.
A stjórnarfundi sama dag
var samþykkt, í samrœmi
við vilja meirihluta fulltrúa
kirkjunnar á
samráðsfundinum, að veita
Jörundi umboð til að ganga
til samninga fyrir hönd
kirkjunnar enda sé
samningurinn í öllum megin
atriðum í samrœmi við það
sem að framan er rakið. Þó
var Jörundi falið að leita
leiða til að fá hcerra verð
fyrir umrcett landsvceði, t.d.
þá spildu sem talin er
meira virði, og að kanna
möguleika á tryggingu fyrir
ncegilegu heitu vatni til
upphitunar Hlíðardalsskóla
og Breiðabólstaðar ef ské
kynni að sannanlegt vceri
eða sennilegt þcetti að
aðgerðir Orkuveitunnar
hefðu spillt hitaveitu
Hlíðardalsskóla úr eigin
borholu.
Niðurstöður
Endanleg viðbrögð eða
tilboð frá Orkuveitu
Reykjavíkur hefur enn ekki
borist við útgáfu þessa
blaðs en þó liggur fyrir
staðfest viljayfirlýsing frá
fyrirtœkinu um að greiða
nokkuð hcerra verð fyrir
landið en fyrst var boðið,
eða alls 33,623,173
milljónir króna. Eins og er
bíðum við endanlegs
tilboðs frá Orkuveitunni
varðandi þetta. Þess ber
einnig að geta að
afgreiðsla þessa máls mun
bíða endanlegrar
niðurstöðu krafna ríkisins
um þjóðlendur sem getur
tekið um eitt og hálft ár.
Biðjum fyrir farscelum
lyktum og að vilji Guðs
megi ná fram að ganga í
þessu máli. Einnig um það,
ef af sölu verður, að þeir
fjármunir sem þar koma inn
mcettu nýtast vel málefni
Guðs til uppbyggingar hér
Frá samráðsfundinum
þann 23. maí.
JÖRÚNDI VAR
FALIÐ AÐ LEITA
LEIÐA TIL AÐ FÁ
HÆRRA VERÐ FYRIR
UMRÆTT
LANDSVÆÐI, T.D.
ÞÁ SPILDU SEM
TALIN ER MEIRA
VIRÐI, OG AÐ
KANNA
MÖGULEIKA Á
TRYGGINGU FYRIR
NÆGILEGU HEITU
VATNI TIL
UPPHITUNAR
HLÍÐARDALSSKÓLA
Blaðsíða 9