Aðventfréttir - 01.01.2004, Page 10
AÐVENTFRETTIR
Fréítir frá Suðurhlíðarskóla: 1.- 4. bekkur
I vetur hefur verið í gangi
tilraun í skólanum með
markvissara
einstaklingsnám í 1. — 4.
bekk. Einnig hefur verið
meira um sameiginlega
tíma þessara árganga.
Hluti af kristinfrœðinni,
samfélagsfrœðinni og
náttúrufrœðinni hafa verið
unnin sem þemaverkefni.
Við unnum þema um bílinn.
Þar fengumst við við
margvísleg verkefni og
vorum heimsótt af Theo-
dóri Marinóssyni bílasmið.
Hann sýndi okkur myndir
og sagði okkur frá því
hvernig bílarnir litu út í
gamla daga og hvernig
það var þegar hann var
að smíða bíla og rútur.
Við fórum út og gerðum
athugun á fjölda bíla eftir
lit sem keyra hér framhjá.
Fyrir páskana unnum við
með söguna um síðustu
daga Krists fyrir dauða
hans og upprisu. Við
lœrðum allt um það sem
gerðist þá daga sem við
minnumst í dimbilvikunni.
Eric kom í heimsókn og
leyfði okkur að upplifa
fótaþvott og kvöldmáltíð
og sagði okkur frá því
hvað þetta allt táknar.
Það var mjög sérstök og
eftirminnileg stund fyrir
börnin.
Við lcerðum einnig um
dýrin í sveitinni og unnum
verkefni og skrifuðum
sögur. Að lokum fórum við
svo í heimsókn á sveitabœ
en það var okkar vorferð.
Heimsókn á
h júkrunarheimili
Lífsleikniverkefni 1.
bekkjar hefur verið meðal
annars að fara í heimsókn
á hjúkrunarheimilið Sóltún.
Börnin hafa farið einu sinni
í mánuði og átt þar
huggulega stund með
gamla fólkinu þar sem
kynslóðirnar spjalla og
syngja saman. Krakkarnir
eru oft búin að cefa lög
eða Ijóð sem þau flytja
fyrir gamla fólkið.
Markmiðið með þessu er
þó fyrst og fremst að
börnin fái tœkifceri til að
umgangast þetta
yndislega eldra fólk. Þau
hafa œft sig í að heilsa og
vera kurteis. Þetta hafa
verið mjög dýrmœtar
stundir bceði fyrir börnin
og gamla fólkið.
Einn nemandinn komst svo
að orði að það vœri svo
gott að koma til gamla
fólksins því þar vceri svo
mikil ró.
Lundurinn okkar
Þeir sem þekkja til
umhverfis Suðurhlíðarskóla
muna eftir því að handan
við götuna eru mikið af
trjám en inn á milli þessara
trjáa er lundur. Skólinn
hefur nú sótt um og fengið
leyfi til að hugsa um þetta
svœði. Markmiðið er að
skapa þarna fallegan stað
sem við getum notað við
margvísleg tœkifceri og
að nemendur fá tœkifœri
til að stunda hagnýtt nám.
Ellen White talar um það í
bók sinni Menntun og
uppeldi að börnin þurfi að
fá tcekifceri til að upplifa
sköpunarverk Guðs og
kynnast Guði gegnum
náttúruna. Með þessu
framtaki leitumst við við
að skapa grundvöll fyrir
slíkri frceðslu. Svceðið er í
mikilli órœkt og er þetta
því viðamikið verkefni.
Við vonumst til að geta
þrifið þarna og jafnvel
búið okkur til kartöflugarð
fyrir vorið.
Þeir sem hafa áhuga á að
styðja þetta verkefni geta
talað við Jón skólastjóra.
Okkur vantar t.d. heilmikið
af verkfœrum. JD.
Blaðsíða 1 0