Aðventfréttir - 01.03.2009, Blaðsíða 6

Aðventfréttir - 01.03.2009, Blaðsíða 6
Fæddar 1912 og 1993 Eiga þær eitthvað sameiginlegt? Rósa Teitsdóttir er fædd í Dölunum 1912 og er því að verða 97 ára gömul. Aðalbjörg Ellertsdóttir er fædd í Reykjavík 1993. Rósa er komin á elliheimili en Aðalbjörg á lífið framundan. Hér fáum við að sjá hvað þeim tlnnst um lífið, og hvað það þýðir að vera kristin. Rósa fæddist að Svarfhóli, Miðdölum, Dalasýslu árið 1912. Hún ólst upp við kristin gildi og var kennt að fara með bænir kvölds og morgna. Henni var líka kennt að fara út á lilað á hverjum morgni og signa sig og segja “Nú er ég klæddur og komin á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól, í guðsóttanum gef þú mér, að ganga í dag svo líki þér.” Þegar veðrið var mjög vont var leyfilegt að reka bara nefið út í dyragættina og fara með morgunversið þannig. Rósa tók skírn í Aðventistasöfnuðinn árið 1936. Aðdragandinn að þeirri ákvörðun var að hún var kölluð á næsta bæ til að vera vinnukona. Húsbóndinn veiktist alvarlega af mislingum og Rósa fékk það hlutverk að vaka yfír honum. Algengt var að fólk létist af völdum mislinga og voru bæjir settir í sóttkví vegna þessa. Læknir kom til að undirbúa síðustu stundina fyrir sjúklinginn þar sem talið var að hann myndi ekki lifa þetta af. Læknirinn bað Rósu um að setja hitapoka til fóta hjá sjúklingnum og fljótlega eftir það fékk hann mikið hóstakast og fór að hressast upp úr því. Rósa hafði þá vakað í 4 sólarhringa og var orðin úrvinda af þreytu. Hún gekk heim að Svarfhóli, lagðist í rúmið og fékk sjálf mislinga. Hún var sjúklingur í heilt ár á eftir vegna þess að hjartað var veikt, og ekkert varð úr því að hún yrði vinnukona á næsta bæ. Nú bar svo við að Rósa fékk tækifæri til að fara til Njarðvíkur í vask. Þar kynntist hún manninum sínum, Olafl Ingimundarsyni sem hafði þá nýlega tekið skírn. Olafur var líka Dalamaður. Rósa komst ekki mikið á samkomur vegna lasleika, en henni fannst athyglis- verður boðskapurinn um að hlýða skap- aranum, þar með talið að halda hvíldar- daginn. Hún tók ákvörðun um að fylgja Jesú því hún hafði upplifað návist og tilvist Guðs svo sterkt þegar hún sat yflr húsbóndanum og sá hann læknast, og einnig í gegnum sín eigin veikindi. Hún fann alltaf að Guð var með henni og hann styrkti hana svo sannarlega því hjartað hennar slær enn, 74 árum seinna! Á heimili þeirra Ólafs á Austurgötu 15 í Keflavík voru haldnar samkomur á hvíldardögum í 26 ár. Stundum var allt að 32 manns í stofunni þeirra, sem Ólafur hafði stækkað til að geta hýst alla. Alltaf var einhver í hádegismat á eftir. Rósa hafði verið alin upp við mikla gestrisni og þarna kom það sér ákaflega vel. Það var með glöðu geði að hún gaf gestunum að borða. Sumir komu langt að eins og til dæmis Helga Sigfúsdóttir (mamma Siggu, Önnu og Stínu Elísdætra) sem kom gangandi alla leið innan úr Innri-Njarðvík á peysu- fotunum. Það fylgdi því oft mikil vinna að fá svona marga gesti á hvíldar- deginum, en Rósa reyndi að undirbúa það sem hún gat deginum áður. Hún er afar þakklát fyrir það að hafa fengið þetta tækifæri til að veita þessa þjónustu. Ólafur sá um veita andlega næringu en Rósa sá um líkamlegu næringuna fyrir alla þá sem leið áttu um Austurgötu 15. Rósa segir að það hafí verið um 50 - 60 manns sem hafí búið hjá þeim í lengri eða skemmri tíma. Hún lofar Guð fyrir gamalmennin sem voru á heimilinu, því þau voru yndislegur félagsskapur og svo hjálpuðu þau heilmikið til. Ólafur var alltaf með kvöldstundir fyrir heimilis- fólkið og það var Rósu mikils virði og hjálpaði henni að sofna á kvöldin. Aðventistar voru litnir hornauga af sumum og voru kallaðir “tistar” af því þeir voru öðruvísi. Þegar Rósa fékk vinnu á sjúkrahúsinu í Keflavík setti hún það sem skilyrði að hún ynni ekki á laugardögum og fékk þess vegna að vinna á sunnudögum í staðinn. Það var talið “skrýtið”, en var þó látið óáreitt. Rósa hefur alltaf beðið Guð um að hjálpa sér að gera það sem rétt er. Hún vill ekki gera það sem er rangt þó aðrir telji það allt í lagi. Rósa trúir því að “maður sé manns gaman” eins og sagt er í Hávamálum og einnig trúir hún að Guð hafl skapað okkur hvert fyrir annað. Það er lífsnæring í því að tala við annað fólk og einnig að brosa. Það hefur hún alltaf reynt að gera við sitt heimilisfólk. Rósa segir að þessi síðustu tímar séu að mörgu leyti erflðir. Það mætti vekja marga af værum blundi. Það veit ekki á gott að það skuli vera færri nú í hvíldardagsskólanum í Reykjanesbæ, en var á þessum árum þegar íbúa- fjöldinn var aðeins um 800 manns, en hún er þakklát fyrir allt það góða starf sem unnið er í Aðventsöfnuðinum víðs vegar um landið. Rósa bíður þess að Kristur komi afitur í skýjum himinsins og taki hana “heim”. Aðalbjörg er nemandi í 10. bekk í Suðurhlíðarskóla. Hana langar að starfa sem hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir og hyggst á nám þar að lútandi. Hún hefur einnig mikinn áhuga á tónlist og gæti hugsað sér að vinna í tónlist í framtíðinni, t.d. með kórum og þá sér- staklega barna- og unglingakórum, vegna þess að henni fannst svo gaman að vera í kór þegar hún var yngri. í dag AÐVENTFRÉTTIR • MARS 2009 spilar hún á píanó og flautu. Frítíma sínum ver hún með vinum sínum og fjölskyldu, og við æfingar á píanóið og flautuna. Henni finnst mjög gaman að passa börn og passar reglulega fyrir þrjár fjölskyldur. Á laugardagskvöldum fer hún á unglingasamkomur í kirkjunni og hlustar á hugvekju. Þar spilar hún stundum undir söng og hittir alla vinina sína sem eru í kirkjunni. Hún hefur

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.