Aðventfréttir - 01.03.2009, Blaðsíða 14
Fadia og Chad ennþá iðin við boðun!
Ákveðið að fara til íslands
Fadia og Chad Kreuzer voru kennarar á
Mission College í Noregi þegar Stefán
Rafn Stefánsson var nemandi þar. Þau
urðu góðir vinir og þegar Stefán kom
afiur til Islands hvatti hann Kirkjuna að
bjóða þeim að koma og starfa hér að
boóun. Guó sá um að það varð svo.
Fadia og Chad voru á Islandi frá janúar
til desember 2004 og þess má til
gamans geta að á því ári tóku 22 skírn,
þar með talin sú sem þetta skrifar. Þau
voru ófá skiptin sem ég fór í
Skriðustekkinn og hlustaði á enda-
lausan fróðleið um Biblíuna hjá Fadiu.
Ég var í lyfjameðferð á þessum tíma og
var ekki mjög hress, en var alltaf
endurnærð þegar ég kom frá henni.
Fadia og Chad, ásamt Nathaniel Gibbs,
héldu úti miklu boðunarstarfi þetta ár
sem þau voru hér, í formi námskeiða,
heimsókna, biblíufræðslu og undir-
búnings fyrir skírn.
Það sem þau sakna mest frá íslandi er
fallegu sumardagarnir þegar hitabylgja
reið yfir sumarið 2004, tungumálið og
allra vinanna sem þau eignuðust hér.
Það sem þau sakna minnst er að fara
gangandi leiðar sinnar í íslensku roki
og rigningu! Þau myndu mjög gjarnan
vilja koma í heimsókn til Islands, ef
Drottinn lofar.
Hjónabandið og starfið
Fadia og Chad giftu sig 26. ágúst 2007
í Chicago og var Nathaniel svara-
maður. Hjónabandið hefur verið þeim
mikil blessun, bæði persónulega og í
boðuninni. Þau lofa Drottinn fyrir
handleiðslu hans. Þau búa í um
klukkutíma fjarlægð frá Chicago. Þau
ferðast mikið vegna starfsins og eru því
lítið heima. Síðasta ár voru þau að
mestu leyti í Kaliforníu og Arkansas.
Þau halda námskeið um Biblíuna, spá-
dómana, sköpun og hvernig á að sigrast
á veikleikum. Þau hafa sérstaka ánægju
af því síðastnefnda, því þau námskeið
halda þau saman. Námskeiðið stendur
yfir í 5 daga og það hjálpar ein-
staklingum að sigrast á slæmum ávana,
slæmum hugsunum og fíkn hvers
konar. Einnig hjálpa þau einstaklingum
að fyrirgefa. Það hefur verið mikil
blessun fyrir þau að halda þessi nám-
skeið og sjá fólk sigrast á því sem
hefur haft það í fjötrum.
Þau hafa nú víkkað út þjónustu sína og
boðun með Anchor Point Films, þar
sem þau búa til fræðslumyndbönd. Þau
voru að enda við aö gefa út fyrsta
myndbandið, „Draumurinn sem
gleymdist“ (The Forgotten Dream) sem
fjallar um 2. kafla Daníelsbókar. Næsta
myndband er þegar komið í vinnslu og
fjallar um Spádómana um Messías og
líf Jesú. Þau ferðast um og taka upp
fyrirlestra hjá prófessorum í fomleifa-
fræði og guðfræði, og vinna í því að
raða því saman á daginn en halda svo
námskeiðin á kvöldin. Drottinn hefur
blessað þau í þeirra starfi og án hans
handleiðslu hefði ekkert af þessu verið
gert. Vefsíðan þeirra er:
www.anchorpointfilms.com
bandið hálftíma áður en skilafresturinn
rann út, þökk sé Guði.
Fadia og Chad bíða eftir endurkomu
Krists, en þangað til ætla þau að halda
áfram að vinna fyrir hann með nám-
skeiðahaldi og myndbandagerð. Þau
langar í framtíðinni að búa í sveitinni.
Þau vilja koma því á framfæri að þau
hafa fylgst með fréttum frá Islandi og
vita að margir hér eru í erfiðleikum.
Þau biðja fýrir okkur og ráðleggja
okkur að verja tíma daglega við lestur
Biblíunnar og til bæna sem mun draga
okkur nær Guði.
Jóhanna Aðalveig Jóhannsdóttir
Handleiðsla Guðs
Hér er ein lítil saga sem sýnir hvernig
Guð leiðir þetta starf. Þau voru að falla
á tíma með fyrsta myndbandið, voru að
reyna að finna tíma á milli boðunar-
námskeiðanna. Þá voru þau beðin að
halda námskeið í Arkansas. Það var í
mjög afskekktum smábæ í Ozarks. Þau
höfðu ákveðið að sleppa nám-
skeiðunum á meðan þau voru að klára
myndbandið, en þá var þeim sagt að
einn meðlimur aðventistakirkjunnar í
Ozarks ætti upptökuver þar sem þau
gætu klárað myndbandið. Þannig gat
Chad prédikað á kvöldin og unnið við
myndbandið á daginn. Það var krafta-
verk að það hafi verið til upptökuver í
eigu aðventista í þessum afskekkta bæ í
Ozarks. Þau gátu loksins klárað mynd-
Þarftu á fyrirbæn að halda?
Hafið samband:
867-1640/588-0848 EÐA
vigdislinda@hotmail.com.
Fullum trúnaði heitið.
Kveðja, Vigdís Linda, Sandra
Mar, Jóhanna og Íris.
| AÐVENTFRÉTTIR • MARS 2009